Tölvumál - 01.01.2018, Síða 39

Tölvumál - 01.01.2018, Síða 39
39 Árið 1989 var Póstur og Sími ennþá með einokun. Þá þurfti að bíða í biðröð niðrí bæ til að sækja um síma og svo var beðið í lágmark viku eftir að símvirki kæmi og tengdi símann sem hann hafði meðferðis því símtækið var í eigu símans. Þetta ár flutti ég til Bandaríkjanna og leigði hús. Ég spurði leigusalann hvernig ég fengi síma. „Farðu út í búð, þar er sjálfsali frá AT&T“. Sjálfsalinn spurði hvað ég héti og ætti heima? Ég sló það inn og sjálfsalinn svaraði: „Númerið hefur verið tengt“. Þetta var mikið A-ha augnablik fyrir íslending. Ég fór í Radio Shack, keypti síma fyrir tólf dollara, heim, stakk í samband og hringdi í mömmu. Mér hefur verið ákaflega hlýtt til sjálfsala alla tíð síðan. Fyrir mér eru þeir boðberar frelsis og ódýrrar og góðrar þjónustu. Sjálfsafgreiðsla fyrir mér þýðir að einhver er búinn að gera afgreiðsluferlið svo smurt að jafnvel tölva getur framkvæmt það. Hún þýðir líka yfirleitt að einhver röð hverfur sem ég þurfti að standa í. Einu sinni þurfti vegabréf (biðröð) og útprentaðan farmiða (biðröð) til að mega fljúga. Svo þurfti ekki farmiðann. Svo þurfti ekki vegabréf þökk sé Schengen. Svo hætti brottfararspjaldið að vera nauðsynlegt, í stað kom strikamerki á símann. Bensín er löngu orðið sjálfsafgreitt og þeim fækkar sem muna eftir bensínstöðvaköllunum með tóbaksklút til taks. Sjálfsalar virðast aðallega afgreiða gos og nammi á Íslandi enn sem komið er en annars staðar hef ég séð þá afgreiða fimm lítra dunka af bjór, rafhlöður, reiðhjólaslöngur og nærbuxur. Sjálfsali í skóla sonar míns selur blýanta, reiknivélar og fleira þarflegt. Sjálfsafgreiðslur á flugvöllum þar sem farþegar skanna töskuna sjálfir eru farnar að virka ágætlega. Póstbox Íslandspósts virka mjög vel því viðskiptavinir losna við að bíða í röð niðrí bæ milli 9-16. Bankar eru óðum að loka útibúum og breyta þeim í þægilegar viðtalsstofur þar sem fólk getur látið bankafulltrúann stjana við sig með konfekti og kaffi - afgreiddu úr sjálfsala. Gamlir sjálfsalar tóku skiptimynt en svo lærðu þeir að taka seðla – svo visakort og nú eru viðskiptin snertilaus. Það hlýtur að vera orðið ódýrara að búa sjálfsalana til, og ætti þeim þá ekki að fjölga enn frekar? Sjálfsalar eru oft bara millibilsástand. Á neðanjarðarlestarstöðvum notar maður ennþá pening til að kaupa lestamiða en það hlýtur að vera spurning um tíma þar til maður gengur inn í lest með ekkert nema farsímann og borgar snertilaust við inngönguna. Þá er sá sjálfsali farinn. Tölvubankar voru algengir en svo hurfu seðlarnir úr umferð og með þeim hurfu tölvubankarnir. Reiðufé er ennþá til en ég skal veðja að það verður farið fyrr en varir. Reiknistofa bankanna var að kynna app í símann sem breytir honum nánast í posa. NFC flaga er skrúfuð á afgreiðsluborð verslana. Síminn les reikningsnúmer kaupmanns og millifærir beint - enginn posi og ekkert greiðslukort. Milliliðunum fækkar og fækkar. Hlutverk banka er í algeru uppnámi. Starfsmenn gera mest gagn þegar einhverja þekkingu þarf á vörunni sem verið er að selja. Á dögum netsins fara neytendur út í búð, skoða vöruna og máta - en svo panta þeir vöruna á netinu og afgreiða sig sjálfir. Siðlaust en óumflýjanlegt. Framtíðin liggur í að aðgreina þekkinguna frá afgreiðslunni. Bauhaus, BYKO og Húsasmiðjan gætu farið að einbeita sér að þekkingar- miðlun og hætt að láta kennarana sem þeir ráða í vinnu ráfa um verslunina og setja skrúfur í poka. Af hverju eru skrúfur ekki seldar í sjálfsala? Af hverju þarf starfsmaður með sérþekkingu í smíði og pípulögnum að láta horfa á sig skrifa niður tólf stafa númer fyrir hverja skrúfu sem ég kaupi þar á plastpoka sem vill ekki láta skrifa á sig? Sjálfsafgreiðsla mun bara færast í aukana. Milliliðir með sérþekkingu hverfa síðast en þeir munu líka hverfa. Ykkur að segja held ég að lögfræði- stéttin sé næst á gapastokkinn. EYÐUR VERÖLD SEM VERÐUR

x

Tölvumál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.