Tölvumál - 01.01.2018, Síða 42

Tölvumál - 01.01.2018, Síða 42
42 Tölvunarfræði hefur verið kennd á háskólastigi á Íslandi frá árinu 1976, en þá hófst fyrst kennsla í Háskóla Íslands að tilstuðlan dr. Odds Benediktssonar. Árið 1998 hófst kennsla í tölvunarfræði hjá Háskólanum í Reykjavík, en fram að þeim tíma hafði kerfisfræði verið kennd við skólann. Á þessum tíma hafa útskrifast í kringum 2.500 nemendur úr grunnnámi, um það bil 160 manns hafa lokið meistaranámi og rúmlega 10 manns hafa lokið doktorsnámi. Á fyrstu árum tölvunarfræðinnar og lengi framan af hefur kynjaskiptingin verið frekar ójöfn þar sem karlmenn hafa verið í miklum meirihluta. En með talsverðu átaki hefur báðum skólum tekist að auka áhuga kvenna á tölvunarfræði sem námsleið og voru konur 30% þeirra sem útskrifuðust með B.Sc. í tölvunarfræði árið 2017. Er svo komið að hvergi er í heiminum er jafn mikil fjölgun nýinnritaðra kvenna í tölvunarfræði og í háskólunum hér á Íslandi. Það má hiklaust segja að tölvunarfræðideildir Háskólanna hafa lagt sitt af mörkum til samfélagsins með því mikla og góða starfi sem þar fer fram. Tölvunarfræði og tæknimenntun er að verða ein af grundavallar stöðum íslensks atvinnulífs og standa íslensk tölvufyrirtæki vel að vígi með háskólamenntaða starfsmenn en þó er ekki hægt að horfa framhjá því að framundan er skortur á starfsmönnum með tölvumenntun um allan heim enda tölvutæknin alls staðar í öllum geirum atvinnulífsins. Það er því með mikilli ánægju sem Ský veitir tölvunarfræði Háskólans í Reykjavík og Háskóla Íslands Upplýsingatækniverðlaunin 2018. HÁSKÓLI ÍSLANDS Fyrsta námsleiðin í tölvunarfræði var sett á stofn innan Stærðfræðiskorar í Raunvísindadeild Háskóla Íslands 1976. Aðal hvatamaður að stofnun námsleiðarinnar var dr. Oddur Benediktsson, prófessor í stærðfræði. Fyrstu þrír tölvunarfræðingarnir brautskráðust vorið 1978, tvær konur og einn karl. Síðan þá hafa brautskráðst vel yfir 1000 tölvunarfræðingar frá Háskóla Íslands. Hlutfall karla og kvenna hefur sveiflast talsvert í gegnum árin rétt eins og annars staðar í heiminum rétt eins og annars staðar í heiminum, en yfir heildina eru konur um fimmtungur nemenda. Nemendur sem hafa brautskráðst frá Háskóla Íslands hafa lokið framhaldsnámi um allan heim með góðum árangri. Aðrir háskólar búast við að fá góða nemendur frá Háskóla Íslands. Nám í hugbúnaðarverkfræði hófst 2002. Námið hefur notið vaxandi vinsælda og hafa tæplega tvö hundruð brautskráðst með B.S. próf í hugbúnaðarverkfræði. Til að öðlast verkfræðingstitil þurfa nemendur að ljúka M.S. gráðu í hugbúnaðarverkfræði sem nemendur geta gert hérlendis og erlendis. Árið 1998 hófst meistaranám í tölvunarfræði og nokkrum árum seinna í hugbúnaðarverkfræði. Yfir sjötta tug nemenda hefur lokið MS-prófi í tölvunarfræði og 15 nemendur hafa lokið MS-prófi í Hugbúnaðarverkfræði. Einn nemandi hefur lokið doktorsprófi í tölvunarfræði og einn nemandi hefur lokið doktorsprófi í hugbúnaðarverkfræði. Nemendur sem hafa verið í grunnnámi í tölvunarfræði og hugbúnaðarverkfræði við Háskóla Íslands og lokið doktorsprófi fylla á annan tug. Í upphafi námsins sinnti Oddur Benediktsson kennslunni ásamt stunda- kennurum. Einnig kenndi Sven Þ. Sigurðsson námskeið í fræðilegri tölvunarfræði. Síðan hefur kennurum fjölgað jafnt og þétt og núna eru við námsbraut í tölvunarfræði 14 fastir kennarar og aðjúnktar ásamt fjölmörgum stundakennurum. Á þessu tímabili hefur tölvunarfræðin sem þekkingariðnaður vaxið frá því að vera nánast ósýnileg í að verða nánast fjórðungur af þjóðarkökunni. Nemendur hafa átt þess kost að læra nýsköpun og frumkvöðlafræði í aldarfjórðung sem hefur leitt til þess að fjölmörg fyrirtæki hafa verið stofnuð. Kennarar í tölvunarfræði hafa stofnað á annan tug sprotafyrirtækja. Rannsóknir kennarar í tölvunarfræði og hugbúnaðarverkfræði spanna vítt svið. Þeir eru í nánu samstarfi við fyrirtæki og stofnanir hérlendis sem erlendis. HÁSKÓLINN Í REYKJAVÍK Tölvunarfræði hefur verið kennd við Háskólann í Reykjavík frá stofnun háskólans árið 1998. Hlutverk HR er að sinna þörfum atvinnulífs og sam félags fyrir menntun og þekkingu á sviðum tækni, viðskipta og laga. Því hefur það verið keppnismál frá upphafi að sinna vel menntun á sviði upplýsingatækni, enda þörf samfélagsins mikil og stöðugt vaxandi. Námsframboð í upplýsingatækni við Háskólann í Reykjavík hefur þróast mikið á þeim 20 árum sem liðið hafa. Í upphafi var boðið upp á grunnnám og meistaranám í tölvunarfræði og diplóma í kerfisfræði. Síðar bættist Mennta- og menningarmálaráðherra Lilja Alfreðsdóttir afhenti Kristjáni Jónassyni Háskóla Íslands og Gísla Hjálmtýssyni Háskólanum í Reykjavík. UT-verðlaun Ský í 50 ára afmælishófi félagsins þann 6. apríl 2018. TÖLVUNARFRÆÐI HÁSKÓLA ÍSLANDS OG HÁSKÓLANS Í REYKJAVÍK VERÐLAUNA- HAFAR UPPLÝSINGA- TÆKNI- VERÐLAUNA SKÝ 2018

x

Tölvumál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.