Fréttablaðið - 20.01.2021, Side 12

Fréttablaðið - 20.01.2021, Side 12
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit- stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@ frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf Ábyrgðarmaður: Björn Víglundsson Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@ frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103. Hafþyrnisolía er unnin úr ald­inkjöti og fræjum hafþyrnis (e. sea buck thorn) en haf­ þyrnir vex á norðurhveli jarðar við hafið og skartar fagurappelsínu­ gulum berjum. Olían er rík af ómega­7 fitusýrum, en miklar rannsóknir hafa verið gerðar undanfarin ár á ómega­ 7 með til­ liti til allra slímhúða sem og fyrir húðina. „Þá hafa ómega­7 fitusýrur reynst afar vel í baráttunni gegn þurrki, hvort tveggja í slímhúð og húð. Slímhúð er að finna víða í líkamanum og er meðal annars í munn­ og nefholi, augum, lungum og leggöngum,“ segir Inga Krist­ jánsdóttir, næringarþerapisti hjá Mulier Fortis ehf. Membrasin vörurnar eru fram­ leiddar af finnska fyrirtækinu Aromtech. Fyrirtækið er stofnað og rekið af konum og sérhæfir sig í framleiðslu á vörum úr hafþyrnis­ olíu. „Grunnurinn í Membrasin vörunum er einmitt hafþyrnis­ olían. Að auki er öðrum virkum efnum bætt í hverja vöru fyrir sig til þess að auka virkni þeirra enn frekar. Við hófum að flytja inn Membrasin Vaginal Vitality legganga­ og kynfærakrem og Membrasin Vitality bætiefni fyrir ári síðan. Í haust bættum við svo Membrasin Vision Vitality bæti­ efni og Membrasin Vision Vitality augnúða í f lóruna. Bætiefnin, augnúðinn og leggangakremið hafa verið að gefa afar góða raun. Allar þessar vörur eru vegan,“ segir Inga. Vision Vitality bætiefni Augnþurrkur er algengt vandamál og hrjáir afar breiðan hóp fólks á öllum aldri. Flestir þekkja áhrif öldrunar, en með hækkuðum aldri eykst þurrkur í slímhúð augna. Enn fleiri hafa sett samasemmerki á milli tölvunotkunar og augn­ þurrks. En augnþurrkur er þar fyrir utan fylgifiskur fjölda lyfja, sjúkdóma og lífsstílsvenja. „Mem­ brasin bætiefni fyrir augu inni­ heldur, líkt og allar Membrasin vörurnar, hafþyrnisolíuna góðu en hún virkar einstaklega vel gegn augnþurrki. Að auki inniheldur það lútein og zeaxanthin sem bæði auka virkni vörunnar með því að vinna gegn skaðlegum geislum frá snjalltækjum og tölvuskjáum. Þá hjálpa þau til við að blokkera áhrifin frá bláa ljósinu sem stafar af þessum tækjum. Lútein er þar að auki þekkt bætiefni fyrir augu og augnbotna. Membrasin bæti­ efnið er sérstaklega hentugt fyrir þá sem vinna mikið við tölvuskjái en það er ekki bara bláa ljósið sem hefur slæm áhrif á augun okkar. Við blikkum að jafnaði minna þegar við horfum á tölvu­ Framhald af forsíðu ➛ Membrasin kynfæra- og leggangakrem er gott og græðandi krem í baráttunni gegn legganga- þurrki og tíðum sýkingum í leggöngum. Membrasin Vitality bæti- efnið vinnur svo innan frá og eykur á virknina. skjá heldur en annað og þá þorna augun enn meir en ella.“ Bætiefnið er í olíuformi og kemur í litlum og nettum vegan­ hylkjum sem auðvelt er að kyngja. Þá er ekkert eftirbragð af vörunni eins og er oft með fitusýrubæti­ efni. Ráðlagt er að taka hylki einu sinni á dag og þá með mat, þar sem það eykur upptöku á bætiefninu. „Til þess að auka virknina enn frekar er mælt með að nota Mem­ brasin augnbætiefnið með Mem­ brasin augnúðanum, sérstaklega ef fólk er slæmt. Því það er gott að smyrja bæði utan frá og að innan.“ Vision Vitality augnúði Membrasin augnúðinn er f lokkað­ ur sem lækningatæki með sannaða virkni. Úðinn er sérlega einfaldur í notkun en þú einfaldlega lokar augunum og úðar á augnlokið og efnin seytla inn í augun. Er óhætt að nota með hvort tveggja augn­ farða og augnlinsum. Þá inni­ heldur úðinn einnig hýalúrónsýru sem styður við vatnsbindigetu táravökvans. „Aukaverkun úðans er ánægjuleg, en bæði hafþyrnis­ olían og hýalúrónsýran er rosalega góð fyrir húðina kringum augun. Þetta er því eins konar hrukku­ krem í leiðinni. Vandamál tengd þurrki í slím­ húð augna hafa færst í aukana síðustu ár vegna breyttra lífshátta, en við erum mörg hver farin að eyða miklum tíma með snjall­ tækin fyrir framan okkur. Börn allt niður í þriggja ára eru farin að þurfa lausnir við augnþurrki enda verja mörg þeirra óhóflega miklum tíma með snjalltækjum. Úðinn er sérstaklega hannaður fyrir viðkvæm augu og er óhætt að nota hann á börn niður í allt að þriggja ára aldur.“ Vaginal Vitality legganga- og kynfærakrem fyrir slímhúð Það er ekkert leyndarmál að í kringum 80% kvenna upplifa leggangaþurrk einhvern tíma á lífsleiðinni, hvort sem er í lengri tíma eða tímabundið. „Þetta hefur hingað til verið feimnismál, trú­ lega af því þetta tengist kynlífi. En þær konur sem þjást af legganga­ þurrki finna margar fyrir miklum sársauka þegar þær stunda kynlíf. Það er tími til kominn að stinga á þessa feimnisbólu enda er það alls ekki hjálplegt að leyna upp­ lýsingum frá konum sem finna fyrir óþægindum í leggöngum. Til dæmis er mjög algengt að konur séu ranggreindar með sveppa­ eða þvagfærasýkingu, þegar vandamálið í grunninn er leggangaþurrkur. Margar upplifa mikla vanlíðan við að fara á hvern sýklalyfjakúrinn á fætur öðrum og uppskera fátt annað en sveppa­ sýkingu í kjölfarið, ásamt því að fá aldrei viðeigandi meðhöndlun á þurrki í slímhúð legganga. Það vita það flestar konur að ef þeim líður ekki vel þarna niðri þá er líkaminn undirlagður og maður er alveg ómögulegur. Kynlíf, sundferðir, líkamsrækt, þetta verður allt ein og sama píningin.“ Hrjáir margar konur Leggangaþurrkur er stórt og mikið heilsufarsvandamál og hefur verið að koma enn betur í ljós undan­ farin ár með aukinni umræðu. „Þurrkur í slímhúð legganga er ekki bara eitthvað sem hrjáir konur á breytingaskeiði, þótt það sé vissulega stærsti hópurinn. Það er þetta blessaða estrógen, þegar það fellur þá byrjar ballið. En leggangaþurrkur hrjáir líka yngri konur. Hann getur stafað af því að vera með barn á brjósti og verið fylgifiskur þess að taka getn­ aðarvarnapilluna. Einnig getur hann einfaldlega stafað af því að það vantar fitu eða önnur efni í mataræðið. Þá er leggangaþurrkur sem og þurrkur í annarri slímhúð einnig þekktur fylgifiskur krabbameinsmeðferðar. Krabba­ meinslyfin eru hönnuð til þess að drepa allar frumur í líkamanum sem fjölga sér hratt. Og til allrar óhamingju þá er slímhúðin ein­ mitt byggð úr slíkum frumum. Það góða við kremið og aðrar Mem­ brasin vörur er að þær er óhætt að nota meðfram lyfjameðferðum. Þá má einnig nota kremið samhliða hormónameðferðum.“ Kremið inniheldur hafþyrnis­ olíuna góðu og hýalúrónsýru upp á rakann að gera. „Einnig er þarna mjólkursýra sem er mikilvæg til að halda réttu sýrustigi í leggöngum og til þess að koma í veg fyrir að sýkingar nái að taka sig upp og grassera. Því þurr og óheilbrigð slímhúð er kjöraðstæður fyrir sveppa­ og bakteríusýkingar.“ Kremið er f lokkað sem lækninga­ tæki og hefur sannaða virkni. Það er notað eftir þörfum og getur haft fyrirbyggjandi áhrif gegn sýkingum. Kremið er ekki ætlað til þess að vinna bug á sýkingum sem þegar eru til staðar. „Flestar konur byrja á því að nota kremið daglega en minnka svo við sig eftir því sem á líður. Flestar konur finna það svo strax ef eitthvað er öðruvísi en það á að vera, og þá er mælt með því að auka aftur notkun kremsins. Einnig er mælt með því að taka Membrasin bætiefni meðfram.“ Inga stofnaði spjallhóp á Facebook til þess að rjúfa þögnina um leggangaþurrk. „Þetta er lokaður hópur með 1.300 konum þar sem ég deili ýmsum fróðleik og greinum sem tengjast málefninu. Hópurinn heitir Membrasin Ísland, Spjall og góð ráð, og þarf að sækja um aðgang til að lesa og taka þátt í umræðum.“ Vitality bætiefni fyrir húðina Síðast en alls ekki síst er Mem­ brasin bætiefnið. En um er að ræða almennt bætiefni fyrir alla slímhúð líkamans. „Það inniheldur hreina hafþyrnisolíu sem og A­ og E­vítamín í litlum skömmtum, rétt til þess að ýta undir virknina. Bætiefnið er algert dúndur fyrir alla slímhúð og húðina almennt, en margir eru að taka bætiefnið í vetrarþurrkinum. Þetta er það allra besta sem við getum gert til þess að næra húðina innan frá.“ Bætiefnið kemur í hylkjaformi en hylkin eru lítil og nett og er þægi­ legt að gleypa þau. Membrasin vörurnar fást í Apó- tekum, Heilsuhúsinu, Fjarðar- kaupum og Hagkaupum. Nánari upplýsingar um vörurnar má finna á numereitt.is/membrasin. Augntvennan er frábær í baráttunni gegn augnþurrki. Úðinn er einfaldur í notkun og bætiefnið vinnur gegn þurrki og slæmum áhrifum bláa ljóssins. Membrasin vörurnar hentar fyrir öll kyn og fólk á öllum aldri sem þjáist af þurrki í slímhúð. MYND/AÐSEND. 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 0 . JA N ÚA R 2 0 2 1 M I ÐV I KU DAG U R

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.