Fréttablaðið - 20.01.2021, Side 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —1 3 . T Ö L U B L A Ð 2 1 . Á R G A N G U R M I Ð V I K U D A G U R 2 0 . J A N Ú A R 2 0 2 1
KOMDU
STRAX
Í STUÐIÐ!
Þú ert aðeins eina
mínútu að skipta yfir
Það var mikið rok víða á höfuðborgarsvæðinu gær. Svo mikið á tímabili að erfitt var að standa í lappirnar. Þessi verkamaður notaði tækifærið og brá á leik við Hörputorg í gærmorgun.
Hélt hann fast í staurinn og lék sér að því að blakta í vindinum. Mikil norðanátt er á landinu og má búast við álíka roki í dag sem bætist við kuldann í lofti. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN KARLSSON
BANDARÍKIN Joe Biden verður svar-
inn í embætti 46. forseta Banda-
ríkjanna klukkan 17 í dag, eða 12 að
staðartíma, við þinghúsið í Wash-
ington D.C. Kamala Harris verður
einnig svarin í embætti varaforseta.
Árásin á þinghúsið þann 6. janúar
og heimsfaraldurinn setja mark
sitt á athöfnina og munu 25 þúsund
þjóðvarðliðar standa vörð.
Donald Trump, fráfarandi Banda-
ríkjaforseti, verður í Flórída. Er það
er fyrsta sinn frá árinu 1869 sem frá-
farandi forseti er ekki viðstaddur
athöfnina. – khg / sjá síðu 6
Biden tekur við
Joe Biden,
verðandi Banda-
ríkjaforseti.
VIÐSKIPTI „Ég á bágt með að trúa
því að tvö fyrirtæki á samkeppnis-
markaði semji um jafntefli á þeim
grundvelli að sömu lífeyrissjóðir
eigi hlut í báðum fyrirtækjum,“
segir Ólafur Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri lífeyrissjóðsins Birtu.
Tilefnið er umsögn Samkeppnis-
eftirlitsins um fyrirhugaða sölu á
fjórðungshlut ríkissjóðs í Íslands-
banka. Eftirlitið hefur áhyggjur af
því að það kunni að hafa hamlandi
áhrif á samkeppni ef lífeyrissjóðir
verða stórir eigendur að bankanum
en fyrir eiga þeir samanlagt um 40
prósenta hlut í Arion banka. Ólafur
nefnir að ekki megi líta á lífeyris-
sjóði sem eina heild, enda séu fjöl-
margir sjóðir umsvifamiklir á inn-
lendum verðbréfamörkuðum og
þeir taki fjárfestingarákvarðanir
hver á sínum forsendum.
Mat Bankasýslunnar er að
umfram eigið fé Íslandsbanka sé
allt að 57 milljarðar en stofnunin
mun kanna hvort hagkvæmt sé að
greiða hluta af því fé til ríkisins í
formi arðs fyrir sölu. Niðurstaðan
veltur á því hvernig fjárfestar verð-
meta umfram eigið féð.
„Fræðilega séð þá ætti ríkið að
fá 100 aura fyrir hverja krónu sem
bankinn er með í umfram eigið fé,“
segir Jón Gunnar Jónsson, forstjóri
Bankasýslunnar. Þannig myndi
ekki skipta ríkissjóð máli, út frá
markmiðinu um að hámarka endur-
heimtur af eignarhlutnum, hvenær
umfram eigið fé yrði greitt út. wEf
verðmat á umfram eigin fé er aftur
á móti nálægt margfeldinu 0,80 gæti
verið betra að greiða út sérstakan
arð fyrir sölu.
Jón Gunnar segir að stjórn bank-
ans geti ráðstafað umfram eigin fé
með þrenns konar hætti.
„Stjórnin getur ákveðið að við-
halda umfram eigin fénu til að hafa
svigrúm fyrir útlánavöxt. Sama
gildir ef bankinn sér fram á frekari
varúðarniðurfærslur á lánasafninu.
Í þriðja lagi er hægt að greiða arð til
hluthafa.“ – tfh, thg / sjá Markaðinn
Hamli ekki samkeppni banka
Framkvæmdastjóri Birtu tekur ekki undir áhyggjur Samkeppniseftirlitsins af mögulegu eignarhaldi
lífeyrissjóða á tveimur bönkum. Bankasýslan metur umfram eigið fé Íslandsbanka á 19 til 57 milljarða.
183
milljörðum nam eigið fé Ís-
landsbanka í lok september.