Fréttablaðið - 20.01.2021, Blaðsíða 40
RITSTJÓRN
ritstjorn@frettabladid.is
AUGLÝSINGADEILD
auglysingar@frettabladid.is
PRENTUN
Torg ehf.
DREIFING Póstdreifing ehf.
dreifing@postdreifing.is 550 5000
Jónu Hrannar
Bolladóttur
BAKÞANKAR
Ég hef verið að hugsa undan-farið um þær jákvæðu breyt-ingar sem sjást í viðbrögðum
fyrirtækja þegar fólk verður fyrir
áföllum. Mikil framför hefur orðið
á því hvernig fyrirtæki og stofn-
anir mæta fólki í slíkum aðstæð-
um. Það er æ algengara, hvort sem
starfsmaður fellur frá eða verður
fyrir missi, að vinnustaðurinn fái
ráðgjöf fyrir starfsfólk sitt til þess
að ræða úrvinnslu og sorgarvið-
brögð. Þar koma bæði prestar og
sálfræðingar auk annarra sorgar-
ráðgjafa gjarnan við sögu.
Við gleymum því stundum hve
mikil vinátta skapast milli vinnu-
félaga og hvað fólk deilir gleði
og raunum oft náið á vinnustað
sínum. Fólk vill vera fært um að
taka vel á móti samstarfsfélaga
sem orðið hefur fyrir þungu
höggi af varfærni og umhyggju, á
sama tíma og hjólin verða að fá að
halda áfram að snúast. Misjafnt
er hversu f ljótt fólk kemur aftur
til starfa. Þar hef ég séð fyrirtæki
sýna margvíslega stórmennsku.
Ég þekki meira að segja til fyrir-
tækis sem opnaði atvinnuhús-
næðið og hélt erfidrykkju þegar
vinnufélagi hafði fallið frá. Margir
syrgjendur velja að koma f ljótt til
starfa í kjölfar áfalls, þar sem föst
rútína styður þau í gegnum þunga
daga. Þá gildir að viðkomandi
starfsmaður hafi rými til að taka
frídaga þegar sorgarbylgjurnar
leggjast yfir, eða jafnvel fara á
miðjum vinnudegi þegar eitthvað
kemur upp sem veldur óvæntum
sársauka. Svo eru önnur sem þurfa
vikur og jafnvel mánuði í leyfi.
Sum biðja um tilfærslu innan
vinnustaðarins sem gefi þeim
kost á að starfa í ögn minna áreiti
en fyrr. Fullyrða má að á þessu
sviði hafi lífsleikni okkar sem
þjóðfélags aukist og lýðheilsan
með. Þar er vöxtur fyrirtækjanna
í landinu ekki síst áberandi í
mínum huga.
Vöxtur
fyrirtækja
993
kr/kg
aðeins
29%
afsláttur
— Heilt lambalæri —
Fjallalamb
BIG
DEALS
Gildir
20.-27.
jan.
Syngjum
sem fjandinn
Það er komin Helgi snýr aftur laugardaginn 23. janúar.
Í þættinum mun sjálfur lestarstjóri stuðvagnsins, Helgi
Björns, halda uppteknum hætti og trylla lýðinn í beinni
ásamt Reiðmönnum vindanna og frábærum gestum.
Útsendingin hefst á laugardaginn kl. 20 á Mbl.is, K100
og að sjálfsögðu í Sjónvarpi Símans.
siminn.is