Fréttablaðið - 20.01.2021, Blaðsíða 29

Fréttablaðið - 20.01.2021, Blaðsíða 29
Sýnt hefur verið fram á virkni Viruseptin gegn helstu veirutegundum sem valda kvefi og flensulíkum einkennum í klínískum rannsóknum. Viruseptin virkar með því að mynda varnarfilmu yfir slím- húðina sem hindrar að veirur komist í gegnum hana. Einnig innlimar Viruseptin veirur og veiruagnir og gerir þær þannig óvirkar. Það kannast allir við að hafa fengið kvef og það er líklega algengasti sjúkdómurinn sem herjar á menn, en talið er að full- orðnir fái kvef að meðaltali tvisvar til fjórum sinnum á ári og börn á leikskólaaldri geta fengið kvef- pest allt að 12 sinnum á ári. Kvef og flensa er líka ein helsta ástæða fjarveru frá vinnu og skóla. „Kvef er í raun veirusýking í efri loftvegi (nefi og hálsi) sem gengur vanalega yfir á 3-7 dögum. Margar veirutegundir geta valdið kvefi en þar er rhinoveira algengust. Aðrar algengar veirutegundir eru til dæmis kórónaveira, parainflú- ensuveira, adenóveira og fleira,“ segir Unnur Sverrisdóttir, lyfja- fræðingur hjá Alvogen. „Engin sértæk lyfjameðferð er til við kvefi því sýklalyf hafa engin áhrif á veirur, heldur bara bakteríur.“ Ver slímhúðina „Alvogen var að setja á markað munn- og nefúða sem kallast Viruseptin. Viruseptin hefur notið mikilla vinsælda á Norðurlöndun- um og nú er loks hægt að fá vöruna á Íslandi. Hægt er að nota Viru- septin bæði í fyrirbyggjandi skyni gegn kvefi en einnig til meðferðar við kvefi og flensulíkum einkenn- um,“ segir Unnur. „Það hefur verið sýnt fram á virkni Viruseptin í nokkrum klínískum rannsóknum, það er í rannsóknum á fólki, gegn helstu veirutegundum sem valda kvefi og flensulíkum einkennum. Viruseptin getur stytt sýkingar- tíma, dregið úr alvarleika sýkingar og dregið úr líkum á endurtekinni sýkingu. Virka innihaldsefnið í Virus- eptin, jóta-karragenan (Carrage- lose®), er unnið úr rauðþörungum og það er kirsuberjabragð af munnúðanum. Öll önnur inni- haldsefni vörunnar eru náttúruleg og henta því þeim sem eru vegan. Viruseptin virkar með því að mynda varnarfilmu yfir slímhúð- ina sem hindrar að veirur komist í gegnum hana,“ útskýrir Unnur. „Einnig innlimar Viruseptin veirur og veiruagnir og gerir þær þannig óvirkar. Hámarksárangur næst af meðferð með Viruseptin ef með- ferð er hafin um leið og fyrstu ein- kenni gera vart við sig, til dæmis særindi í hálsi eða nefrennsli.“ Viruseptin er fyrir fullorðna og börn frá eins árs aldri. Einnig mega barnshafandi konur og konur með barn á brjósti nota Viruseptin. Viruseptin fæst á eftirfarandi stöðum: Akureyrarapóteki, Apó- tekaranum, Apóteki Garðabæjar, Apóteki MOS, Apóteki Ólafsvíkur, Efstaleitisapóteki, Garðsapóteki, Íslandsapóteki, Lyfjum og heilsu, Lyfjavali Mjódd, Lyfjaveri, Lyfsal- anum Glæsibæ, Reykjavíkurapó- teki, Urðarapóteki. Úði sem verndar gegn kvefi Alvogen var að setja á markað munn- og nefúða sem kallast Viruseptin. Úðinn ver slímhúðina og virkar í fyrirbyggjandi skyni gegn kvefi og til meðferðar við kvefi og flensulíkum einkennum. Unnur Sverrisdóttir, lyfjafræðingur hjá Alvogen. MYND/AÐSEND Nefúði Munnúði Við kve fi og flensulí kum einkenn um FÓLK KYNNINGARBLAÐ 3 M I ÐV I KU DAG U R 2 0 . JA N ÚA R 2 0 2 1

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.