Fréttablaðið - 20.01.2021, Side 8

Fréttablaðið - 20.01.2021, Side 8
Frá degi til dags Halldór ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Björn Víglundsson RITSTJÓRI: Jón Þórisson jon@frettabladid.is, FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@frettabladid.is Ari Brynjólfsson arib@frettabladid.is, Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Til lengri tíma felst stærsta áskorunin ekki síst í því að endurreisa vægi sann- leikans í þjóðfélags- umræðunni. Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur @frettabladid.is Loftslagsvandinn sprettur upp úr ákvarðanatöku hins opinbera. Styrkjum, fjárfestingum, skipulagi samfélagsins. Stjórnvöld bera stærstu ábyrgðina þó framlag einstaklinga geti haft mikil áhrif. Það er ekki bara hvað yfirvöld ákveða að gera sem skiptir máli heldur líka hvað þau ákveða að gera ekki. Þegar tekin var ákvörðun um að gera Reykjavík að bílaborg var í raun samhliða tekin ákvörðun um að byggja ekki upp öflugar almenningssamgöngur. Loftslagsvandinn sprettur upp úr ákvarðanatöku hins opinbera en það geta lausnir líka gert. Á fundi borgarstjórnar á þriðju- dag var ný loftslagsáætlun Reykjavíkurborgar kynnt. Hér eru lagðar til lausnir eins og að fletta upp mal- biki og draga úr umfangi akreina, að almenningssam- göngur verði lausar við jarðefnaeldsneyti 2025, að fjár- munir sem fara í vegasamgöngur verði jafnaðir með fjármunum fyrir innviði fyrir gangandi og hjólandi, að ný hverfi verði umhverfisvottuð, að rækta stóra lofts- lagsskóga, að endurheimta um 60% af votlendi fyrir árið 2040 og síðast en ekki síst að líta inn á við og meta hvernig við getum styrkt stjórnsýslu borgarinnar í loftslagsbaráttunni með tilliti til ábyrgðar og fram- fylgd verkefna. Þetta eru örfá dæmi. Loftslagsvandinn er ekki tilviljunum háður. Hann var skapaður, meðvitað og ómeðvitað. Hér er lofts- lagsáætlun sem snýst einmitt um að taka meðvitaða ákvörðun um að koma okkur á réttan kjöl. Um meiri náttúru og minna malbik. Meiri borg fyrir fólk. Við ætlum ekki að sitja og bíða og vona að aðgerðirnar hitti í mark heldur mæla árangurinn árlega til þess að geta brugðist við ef ástandið sýnir að gefa þurfi í. Við setjum stefnuna hátt, öflum gagna, metum og endur- skoðum. Verkefnið er það flókið að við verðum að leysa það í sameiningu með nýsköpun og samvinnu. Í þessari nýju loftslagsáætlun voru markmiðin mótuð eftir útreikningum sérfræðinga og hlustað var á óskir almennings um auknar aðgerðir. Almenningur var fenginn að borðinu sem skilaði mörgum góðum til- lögum. Núna er það yfirvalda, okkar í borgarstjórn, að framkvæma. Yfirvöld bera ábyrgðina Dóra Björt Guðjónsdóttir formaður mannréttinda-, nýsköpunar- og lýðræðisráðs Sigurborg Ósk Haraldsdóttir formaður skipu- lags- og sam- gönguráðs borgarfulltrúa Pírata Bara MAGA Búsetuáform við Bræðraborgar- stíg, sprottin af hugmynda- fræðinni Baba Yaga, hafa vakið athygli. Samkvæmt þeim verða íbúar að deila sameiginlegri sýn um femínisma og sjálf bæra þróun. Ekki eru allir jafn hrifnir og stendur nú til að finna stað fyrir kommúnu karlpunga sem mótvægi, byggða á hug- myndafræðinni Bara MAGA, helst við Síðumúla eða á Höfða. Munu umsækjendur þurfa að sýna fram á f lokksskírteini í Miðf lokknum eða Samtökum eldri Sjálfstæðismanna, hafa virka Moggabloggsíðu og mega ekki hafa vegabréfsáritun utan Íslands og Tenerife. Í kjarn- anum verður dísilolíupumpa, kjötsjálfsali og vitaskuld heitur pottur. Húsfélagsgjöldin verða hins vegar nokkuð há enda verður múr reistur í kringum byggðina á næstu fjórum árum. Skjaldarmerkið Sveitarfélagið Drekabyggð, sem ákvað í leiðindakasti að heita frekar Múlaþing, er komið í bobba vegna nýja skjaldar- merkisins síns. Mun það vera sama merki og hjá pítsustaðum Slæs í Garðabæ. Málið kom upp á Alþingi í gær þegar sveitar- stjórnarráðherra vitnaði í skýrslu sem sænskir sérfræð- ingar unnu þegar skipt var yfir í hægri umferð, var sú skýrsla einmitt styrkt af Slæs en ruglast mátti á því og Drekabyggð. Valdatíð Donalds Trump, forseta Banda-ríkjanna, lýkur klukkan 17 í dag að íslenskum tíma.Joes Biden bíður það erfiða verk-efni að leiða bandarísku þjóðina saman eftir fjögurra ára ófrið og óreiðu. Hann mun þurfa að leita jafnvægis milli þess að stilla til friðar milli stríðandi fylkinga og hins, að rannsaka og upplýsa um þá brotastarfsemi sem for- setinn og hans fólk virðist hafa stundað og draga þau til ábyrgðar. Það er þekkt herkænska að sá sem vinnur orrustu skuli ganga úr skugga um að hann hafi reitt höggið til fulls og andstæðingurinn eigi ekki afturkvæmt. Samkvæmt nýrri könnun segjast 55 prósent Repúblikana munu styðja Donald Trump í forkosn- ingum, verði hann í kjöri aftur 2024. Þótt stuðningur við hann hafi fallið um 16 prósent síðan í desember er ljóst að fráfarandi forseti er fjarri lagi dauður úr öllum æðum og gæti allt eins unnið stríðið þótt þessi orrusta hafi tapast. Afstaða herskárra Demókrata, sem vilja fara gegn Trump, starfsliði hans og fylgdar- liði, er því skiljanleg, enda verða óteljandi afglöp og embættisbrot forseta frá fyrri tíð hjákátleg í saman- burði við það sem nú hefur gengið á. Ímynd Bandaríkjanna út á við mun óumflýjan- lega styrkjast eða veikjast eftir því hvernig nýjum valdhöfum gengur að ná áttum innanlands og byggja aftur þær brýr til alþjóðasamfélagsins sem brotnar hafa verið í spón með tilheyrandi tjóni fyrir heims- byggðina. Til lengri tíma felst stærsta áskorunin ekki síst í því að endurreisa vægi sannleikans í þjóðfélagsum- ræðunni. Það verkefni verður þó ekki nema að tak- mörkuðu leyti í höndum nýs forseta. Við verðum þó að vona að rykið verði dustað af þeirri eðlilegu kröfu að leiðtogi hins frjálsa heims fari alla jafna með rétt mál og ljúgi ekki bókstaflega öllu sem hann segir. Og að sama krafa verði í auknum mæli gerð til fjölmiðla. Vandaðir fjölmiðlar vestanhafs geta sannar- lega varið kröftum sínum í annað en endalausar og lýjandi leiðréttingar á rangfærslum valdhafa. Til dæmis í að miðla réttum upplýsingum til borgaranna um stöðu mála innanlands og um allan heim. Erfiðara getur reynst að takast á við afleiðingarnar af þeim flaumi lyga og samsæriskenninga sem runnið hefur upp úr fráfarandi forseta undanfarin fjögur ár. Valdatíð Donalds Trump hefur sýnt hvernig hægt er að afvegaleiða almenning í landi sem hefur yfir að ráða öflugustu fjölmiðlum í heimi. Viðleitni þeirra til að miðla réttum upplýsingum hefur farið fyrir ofan garð og neðan hjá tugum milljóna manna og sá heila- þvottur sem liðist hefur í Bandaríkjunum undanfarin ár hefur dreifst víða um heim. Einn vandi sem fjölmiðlar standa frammi fyrir er að Biden er óneitanlega frekar óspennandi forseti og hætt við að lestur og áhorf hrynji þegar Donald Trump hverfur af sjónarsviðinu. Því fylgir væntan- lega fækkun áskrifenda og áhorfenda þeirra miðla sem meta sannleika og upplýsingar meira en aulagrín og kjánahroll. Andað léttar 2 0 . J A N Ú A R 2 0 2 1 M I Ð V I K U D A G U R8 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SKOÐUN

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.