Málfríður - 15.04.1990, Blaðsíða 21

Málfríður - 15.04.1990, Blaðsíða 21
Auður Hauksdóttir: „FLIMMER“ ASKJANUM Að nota myndbönd í kennslu Þegar rætt er um notkun mynd- banda við kennslu erlendra mála er oft bent á hve ákjósanleg tilbreyting þau séu og vel til þess fallin að vekja áhuga nemenda á málanáminu. Ekki er ætlunin að fjölyrða hér um þessa kosti myndbanda, látið er nægja að benda á viðtal við nemendur hér í blaðinu um þetta efni. í upphafi þessa greinarkorns verður fjallað almennt um hlutverk myndbanda í mála- kennslu, en síðar greint frá námsefn- inu Flimmer við samnefnt myndband DSB. Myndbönd, sjónvarp og kvikmynd- ir eru hluti af daglegu lífi Vesturlanda- búa, ekki síst unglinga. Hér er um að ræða tækni sem gerir mögulega sam- hæfingu hljóðs, myndar og texta, fyr- irbæri sem ég vel að kalla hér mynd- texta. Myndtextar eru í raun sérstök textagerð sem lýtur ákveðnum lög- málum sem ráða þarf í eftir ákveðn- um lestrarreglum. Oft horfa menn á kvikmyndir, myndbönd og sjónvarp sér til afþreyingar eða fróðleiks en eru ekki endilega að gefa textanum sér- stakan gaum að öðru leyti. Þegar myndbönd eru notuð í kennslu veltur hins vegar allt á því að áhorfendur, nemendurnir, séu virkir. Sú tækni sem þróuð hefur verið grundvallast á hugmyndum hinna svonefndu ,,kom- munikativu" viðhorfa í málakennslu. Algjört skilyrði er að verkefnin séu þannig úr garði gerð að nemendur séu virkir bæði sem áhorfendur og móttakendur. Aðferðafræðingar leggja áherslu á að kennarinn verði að hafa á valdi sínu ákveðna kennslufræði- lega tækni til að búa til nothæf verk- efni við myndtexta. Að öðrum kosti verði kennarinn að notast við tilbúið kennsluefni. Myndtextar eru ríkur þáttur í lífi manna og er því áhersla lögð á að gera nemendur meðvitaða um nota- gildi þeirra fyrir málanám og bent er á að málanám mun teygja sig langt út fyrir veggi skólans ef þeim tekst að læra að meðtaka myndtexta á virkan 21

x

Málfríður

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Málfríður
https://timarit.is/publication/1081

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.