Bæjarins besta


Bæjarins besta - 19.12.1991, Síða 18

Bæjarins besta - 19.12.1991, Síða 18
18 BÆJARINS BESIA • Fimmtudagur 19. desember 1991 • Hjónin Gunnþórunn og Óli Kristján: „Við Óli stigum þéttingsfast á endann á dreglinum...“ BB-viðtal: — Gunnþórunn Jónsdóttir hárgreiðslumeistari rifjar upp æskuárin á ísafirði og segir frá viðburðaríku lífi sínu við hlið Óla Kr. Sigurðssonar. s EG KOM síðast vestur fyrir fáum vikum og það var yndislegt. Umhverfið hefur >reyst frá því ég var þar síðast en fólkið er allt það sama og hvar sem ég kom var mér heilsað innilega,“ segir hún og það er hlýja í röddinni. „ísafjörður er og verður alltaf minn heimabær.“ Gunnþórunn Jónsdóttir hárgreiðslumeistari flutti suður fyrir 18 árum sem einstæð tveggja barna móðir og hóf nýtt líf. Eða hóf næsta kafla í lífinu eins og hún orðar það sjálf. Það hefur margt breyst síðan þá en hún er enn sú sama. „Það hefur ekkert breytt mér að eiga eignir,“ segir hún. „Hvers vegna ætti það að gera það?“ Gunnþórunn er 45 ára, fimm dögum yngri en eiginmaður hennar, Óli Kr. Sigurðsson, forstjóri Olís. Saman hafa þau byggt upp hvert fyrirtækið af öðru og síðan tekið skref upp á við. „Ég lít svolítið á lífið eins og stiga sem við þurfum að ganga upp,“ segir hún. „Við stöndum í þessari tröppu núna og stígum í þá næstu þegar við höfum þroska og getu til. Stundum þurfum við að stíga niður aftur. Samt hef ég aldrei skipulagt þessa göngu, ég hef aldrei hugsað sem svo að svona yrði þetta. Það bara gerðist.“ Ög til þessara síðustu orða grípur hún oft í samtali okkar þegar hún er spurð hvers vegna þetta eða hitt varð: „Það bara gerðist...“ Gunnþórunn Jónsdóttir er fædd á ísafirði árið 1946 og alin upp á Austurvegi 12. Foreldrar hennar voru þau Jón Jónsson frá Hvanná og Rannveig Elísabet Her- mannsdóttir frá Ysta Mói í Fljótum í Skagafirði, bæði látin. Jón fluttist til ísafjarð- ar ungur að árum til að fara í Gagnfræðaskólann. Hann lauk síðan námi við Sam- vinnuskólann, kom aftur og varð aðalbókari Kaupfélags ísfirðinga. Konu sinni kynntist hann, eins og svo margir aðrir, þegar hún hélt vestur á firði til að nema við Húsmæðraskólann. Dætur þeirra urðu fjórar: Kristín, Elín, Nanna og yngst Gunn- þórunn. Hún hefur orðið fyrir miklum áhrifum af móður sinni og lífssýn hennar og talar um hana af mikilli væntumþykju og virðingu. Jón fékk heilablæðingu þeg- ar Gunnþórunn var aðeins átta ára og varð heilsunnar vegna að dvelja langdvölum á Heilsuhælinu í Hvera- gerði. Hann lamaðist hægra megin en hafði unnið upp máttinn að miklu leyti þegar honum versnaði aftur og lést þegar Gunnþórunn var sautján ára. Rannveig var ein með dæturnar fjórar á aldrinum átta til fjórtán ára, en þær skorti ekkert. „Mamma hélt heimili af reisn og bætti útivinnu ofan á heimilisstörfin,“ segir Gunnþórunn og er stolt af

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.