Bæjarins besta - 19.12.1991, Qupperneq 19
BÆJARINS BESIA • Fimmtudagur 19. desember 1991
19
móður sinni þegar hún lítur
tií baka. „Hún var nýtin,
bakaði alltaf kökur og brauð
og saumaði á okkur fötin.
Það var talað um það hve
dætur hennar Rannveigar
væru alltaf vel til fara. Sam-
heldnin var mikil í bænum á
þessum árum og ég vona að
hún sé það enn. Fólk fylgd-
ist vel með og spurði eftir
hvernig gengi. En þó við
værum fátæk þá sást það
aldrei út á við. Eg hugsa oft
um það í dag hvað mamma
stóð sig vel. Það var engin
armæða í henni og hún
hugsaði alltaf fyrst um
aðra.“
Eplailmurinn
minnir á
ísafjörð
Pað varð að bjargast með
það sem til var og helstu
minningar Gunnþórunnar
frá æskuárunum eru tengdar
hlýju og bjartsýni móður
hennar. „Ég vona að mér
hafi tekist að taka hana mér
til fyrirmyndar," segir hún
alvarleg í bragði.
Minningarnar tengdar
uppátækjum og leikjum
skólafélaga og vina eru líka
margar. „Ég held samt að
við höfum verið saklaus, við
tókum ekki upp á neinu al-
varlegu,“ segir hún og hlær.
Hún man vel daginn sem
hún kynntist Svönu vin-
konu, Svanhildi Þórðardótt-
ur kaupkonu á ísafirði, þeg-
ar þær voru báðar fimm ára
gamlar. Endurminningin er
tengd ríkum eplailmi og jól-
um. „Á þessum tíma var
ekki mikið um ávexti og um
hver jól gaf Kaupfélagið
starfsfólkinu mikið af eplum
og appelsínum og öðru góð-
gæti. Eplailmurinn var um
allan bæ um jólaleytið. Ég
man svo vel þegar Tóti,
pabbi Svönu, kom heim
með eplin okkar. Svana var
með honum, ég stóð í dyr-
unum og við horfðumst í
augu. Og upp frá því vorum
við óaðskiljanlegar. Og
eplailmur minnir mig enn
alltaf á ísafjörð.“
Þær Svana voru og eru
enn nánar vinkonur þó sam-
bandið sé ekki eins reglulegt
og var. Reyndar svo nánar,
segir Gunnþórunn, að kenn-
ararnir í barnaskólanum
voru í vandræðum og urðu
að stía þeim í sundur í tím-
um, svo mikið höfðu þær að
segja hvorri annarri. „Við
vorum fjórar mest saman,
við Svana, Margrét Óskars-
dóttir og Ásdís Asbergsdótt-
ir. Við gerðum í því að vera
eins til fara og saumuðum
okkur til dæmis allar bleikar
skyrtum með upphafsstaf
hverrar ísaumuðum í brjóst-
vasann. Skólabræður okkar
voru meðal annarra Ólafur
Pálsson fiskifræðingur,
Finnur Birgisson arkitekt,
Halldór Guðbjarnarson,
bankastjóri í Landsbankan-
um, og Magnús Finnsson,
formaður Kaupmannasam-
takanna. Magnús var kall-
aður Maggi Elli og Halldór
var kallaður Haddi Gústi.“
Gunnþórunn dregur upp
mynd af sér og bankastjór-
anum núverandi sem hún
harðneitar þó að láta birta í
blaðinu. Á myndinni sjást
tvö tíu ára börn á bekk á
Silfurtorgi, stúlkan stór og
stæðileg, drengurinn ósköp
grannur og fyrirferðarlítill.
„Ég geri Halldóri það ekki
að sýna öðrum þessa
mynd,“ segir hún og skelli-
hlær.
Bekkurinn var samheld-
inn og Gunnþórunn rifjar
upp fyrsta alvörupartíið:
Piltarnir buðu stúlkunum
heim í hús, þegar foreldrar
eins þeirra voru fjarverandi.
Herrarnir keyptu sér sams
konar T-boli og splæstu í
tvær kókflöskur hver til að
bjóða dömunum. Elvis var
settur á fóninn, Ijósin demp-
uð og dansað eftir forskrift
kennarans Maríu Gunnars-
dóttur. „Þetta var yndislegt.
Við vorum svo innilega sak-
laus þá,“ segir hún svo með
dálítilli eftirsjá.
Á þessum tíma, eins og
kannski á öllum tímum,
voru fyrirmyndir ungra
stúlka, sem vildu tolla í tísk-
unni, frægar konur úti í hin-
• Vinkonurnar Svana og Gunnþórunn 14 ára gamlar. Kjól-
arnir eru saumaðir af móður Svanhildar. „Þetta þóttu alltof
djarfir kjólar á þeim tíma,“ segir Gunnþórunn.
• Gunnþórunn og Gabríela dóttir hennar á Salon Gabríela við Hverfisgötu.
um stóra heimi. „Svana var
dökk eins og Farah Deeba
Persadrottning og ég greiddi
henni eins og henni. Birgitte
Bardot var mikið í tísku og
af því að ég var ljós þá gerði
ég allt sem ég gat til að stæla
hana, gekk meira segja um
tíma með hálfgerðan stút á
munninum um allan bæ!“
Gunnþórunn skellir upp úr
þegar hún rifjar þetta upp.
Ég var Ijóti
andarunginn
Hún var ekki gömul þegar
hún byrjaði að fara um bæ-
inn og greiða og krulla hár
ísfirskra kvenna. Fjórtán
ára gekk hún um bæinn með
dótið í tösku og var harðá-
kveðin í að læra hárgreiðslu.
„Systur mínar voru falleg
börn en ég var feit, eigin-
lega eins og ljóti andarung-
inn og hafði mikla minni-
máttarkennd út af hárinu
mínu. Ég var eina systirin
sem var ekki með krullur.
Fólk horfði á okkur saman,
dáðist að fallegu hári systra
minna en leit svo á mig og
sagði: „En hún, ætlar hún
ekki að fá krullur?" Mér
fannst þetta hræðilegt en
mamma gerði allt sem hún
gat til að geðjast mér. Hún
bleytti og ýfði til slétta og
þunna hárið mitt og ég leit í
spegilinn og sá þessar fínu
krullur. Hún skellihlær og
samsinnir því að ef til vill
eigi áhuginn á hárgreiðsl-
unni rætur sínar að rekja til
þessa. Hún viðurkennir að
enn reyni hún krullurnar
með jöfnú millibili en nú er
dóttir hcnnar, hárgreiðslu-
meistarinn Gabríela, farin
að neita henni um lokkalið-
un, eins og permanentið er
kallað í dag á góðu máli.
„Það klæðir hana bara ekki,
hún er fín eins og hún er,“
segir dóttirin ákveðin.
Lærimeistari Gunnþór-
unnar í hárgreiðslunni var
Helga Jóakimsdóttir, systir
Kristjáns Jóakimssonar sem
varð fyrri eiginmaður henn-
ar og faðir barnanna Gabrí-
elu og Jóns. Sveinsprófið
tók hún fyrir sunnan 1965,
sama ár og Jón kom í heim-
inn.
Hún hlær þegar hún
• Rannveig með dæturnar
fjórar.
Þau Kristján trúlofuðust
þegar Gunnþórunn var sext-
án ára og giftust árið 1964.
Hjónabandi þeirra lauk með
skilnaði árið 1973. Gunn-
þórunn rak eigin hár-
greiðslustofu allan tímann
og ferðaðist auk þess um
Vestfirði og greiddi á stöð-
um þar sem engar hár-
greiðslustofur voru.
Gunnþórunn fór ein suð-
ur til Reykjavíkur með
börnin tvö. Hún vildi byrja
aftur á nýjum stað og keypti
fljótlega húsnæði fyrir sig og
börnin. Ári seinna var hún
aftur komin með sinn eigin
rekstur. „Ég vann á stofu í
eitt ár, tók síðan lán og
keypti Hárgreiðslustofu
Vesturbæjar. Það var engin
spurning, þetta var það sem
ég ætlaði mér,“ segir hún,
hálfhissa þegar hún er spurð
hvernig henni tókst þetta.
Hvert
fyrirtækið á
fætur öðru
Tveimur mánuðum eftir
að Gunnþórunn kom til
Reykjavíkur kynntist hún
Óla Kr. Sigurðssyni, þá
einnig nýlega fráskildum, og
lífið tók fljótlega nýja
stefnu. Þess má reyndar
geta að tilviljanirnar geta
verið áberandi í lífinu: Óli
er fimm dögum eldri en
Gunnþórunn og synir þeirra
tveggja, þeir Janus og Jón,
eru fæddir í sama mánuði
sama árið. Auk Janusar á
Óli frá fyrra hjónabandi
soninn Sigurð Óla sem er
fæddur 1970. í dag er Janus
sölumaður hjá heildsölunni
Sund og Jón vinnur hjá
Olís.
„Við höfum lifað hratt,
við Óli,“ segir Gunnþórunn
hugsi. Og það er ekki orð-
um aukið. Þau hófu sambúð
innan fárra mánaða og settu
á stofn innflutningsfyrir-
tæki. Seinna keyptu þau
Sænsk-íslenska verslunarfé-
lagið og ráku það í nokkur
ár með talsverð umsvif.
Árið 1978 settu þau á stofn
verslunina Victor Hugo í
Hafnarstræti. Gunnþórunn
rak hárgreiðslustofuna jafn-
framt því að sjá um verslun-
ina og var á báðum áttum
um hvað ætti að ganga fyrir.
„Ég ætlaði að hætta í hár-
greiðslunni og vera bara
með búðina þannig að ég
hætti með stofuna. En svo
fékk ég hreinlega leið á að
vera í búðarleik þegar ég
var búin að prófa það í svo-
lítinn tíma. Þetta var ágætis
reynsla og þannig lít ég á allt
sem fyrir kemur. Við lærum
eitthvað á öllu sem við
gerum og það er engu að
tapa.“
Árið 1982 ákváðu hjónin
að kúvenda lífi sínu. Þau
seldu allt sem þau áttu nema
húsið og sumarbústaðinn:
Sænsk-íslenska verslunarfé-
lagið, verslunina, lager og
bíla og héldu til Spánar. Þar
átti að lifa lífinu hægar og
slaka á. En það fer ekki allt
eins og ætlað er og það átti
ekki við þetta fólk að stoppa
strax. Spánardvölin stóð að-
eins í fimm mánuði og allan
þann tíma höfðu þau augun
opin fyrir vörum til innflutn-
• Bekkjarsysturnar í fermingarkjólunum. Frá hægri: As-
dís Ásbergs, Margrét Óskars, Anna Áslaug Ragnarsdóttir,
Gunnþórunn (aftar), Jóna Jónsdóttir, Málfríður Sigurðar-
dóttir, Svanhildur Þórðardóttir, Lára Rafnsdóttir, Guð-
finna Ólafsdóttir og Anna Lára Gústafsdóttir.
minnist þess hvernig hún
skipulagði líf sitt þegar hún
byrjaði að búa: „Takmarkið
var að verða hárgreiðslu-
kona, giftast, eignast börn
og verða fyrirmyndarhús-
móðirin. Ég ákvað að á til-
teknum dögum skyldi
skúrað, á tilteknum dögum
bakað og svo framvegis. En
þegar ég var búin að reyna
þetta í svolítinn tíma gafst
ég upp. Lífið varð svo leið-
inlegt svona þrautskipulagt
og ég kastaði þessari skipu-
lagsáráttu burt og hef aldrei
tekið hana upp aftur!“
• Sigríður Rósa Símonar-
dóttir og Gunnþórunn á leið
í dans á 17. júní.