Bæjarins besta - 19.12.1991, Síða 22
22
BÆJARINS BESIA • Fimmtudagur 19. desember 1991
Nýjar bækur:
Hólmavíkurhreppur
óskar Hólmvíkingum
og Vestfirðingum öllum
gleðilegra jóla og
farsœldar á komandi ári.
Súðavíkurhreppur óskar
Súðvíkingum og Vestfirðingum
öllum gleðilegra jóla og
farsœldar á líðandi ári.
Sveitarstjórinn
í Súðavík
Flugsaga
íslands
s
UT ER komið hjá Erni
og Örlygi fyrsta bindið
í þriggja bóka flokki sem ber
heitið „Flugsaga Islands í
stríði og friði“ í samantekt
Eggerts Norðdahl.
I bókinni eru um 200 ljós-
myndir af flugvélum, mönn-
um og mannvirkjum sem
tengjast fluginu, þar af
fjöldinn allur úr síðustu
heimsstyrjöld og teknar
voru hér á landi. Fæstar
þeirra hafa birst áður á
prenti. Verkið hefst með
komu fyrstu flugvélarinnar
árið 1919. Rakin er saga
flugfélaganna og sagt frá
stofnun fyrstu félaga flugá-
hugamanna en sum þeirra
eru starfandi enn í dag. Sagt
er frá upphafi millilanda-
flugs og uppbyggingu flug-
valla og flugmannvirkja.
Hér er um stórmerkt
tímamótaverk að ræða.
Bæjarstjórn Bolungarvíkur
óskar Bolvíkingum og Vestfirðingum
öllum gleðilegra jóla og
farsœldar á líðandi ári.
Bœjarstjórinn
í Bolungarvík
Dagbók, hvers
vegna ég?
• •
ORN og Örlygur hafa
gefið út þriðja og síð-
asta bindið af unglingabók-
um Kolbrúnar Aðalsteins-
dóttur sem borið hafa heitið
„Dagbók“.
Fyrri tvær bækurnar hétu
Dagbók - í hreinskilni sagt
og Dagbók - í fullum trún-
aði. Sú bók sem nú kemur út
ber heitið Dagbók - hvers
vegna ég. Tvær fyrri bækurn-
ar hafa notið mikilla vin-
sælda hjá unglingum og eru á
meðal útlánahæstu ung-
lingabóka á íslenskum bóka-
söfnum.
Söguþráður þriðja og
lokabindisins er sá að Kata,
aðalsöguhetjan, hefur átt
velgengni að fagna í starfi
sínu á Ítalíu sem sýninga-
stúlka. Hún er orðin velmet-
in og efnuð og skreppur
heim til fslands í stutta
heimsókn, þá fyrstu síðan
hún var 17 ára.
Græn börn
SKJALDBORG hefur
sent frá sér bókina
„Græn börn“ eftir Dr.
Penny Stanway.
í kynningu útgáfunnar
segir m.a.: Dr. Penny
Stanway kallar börn græn ef
foreldrar þeirra gera sér
Ijóst að þau geti verndað
þau fyrir óhollum áhrifum
nútímaiðnvæðingar. Og
grænir foreldrar telja ekki
eftir sér að breyta slífsvenj-
um sínum þannig að þær
valdi sem minnstum spjöll-
um á umhverfinu. f þessari
bók sinni heldur höfundur
metsölubókarinnar „Breast
is Best“ (Brjóstið er best)
því fram að fólk eins og þú,
ég og börn okkar geti haft
bætandi áhrif á umhverfið,
og segir okkur hvernig við
eigum að fara að því.
Áminntur um
sannsögli
SKJALDBORG hefur
sent frá sér bókina
Aminntur um sannsögli“ eft-
ir Þorstein Antonsson.
í kynningu útgáfunnar
segir m.a.: Varla hafa nein
málaferli vakið aðra eins at-
hygli hérlendis og mann-
hvarfsmál þau er upp komu
hér á landi um miðbik átt-
undaáratugarins og þær
málafylgjur sem við þau
loddu.
Svonefnt Geirfinnsmál
var á hvers manns vörum
um fjögurra ára skeið á ár-
unum 1976 til 1980 og var
raunar samsafn meintra
glæpaverka undir einu heiti.
Margir minnast enn leir-
styttu sem mikið veður var
gert út af á sínum tíma.
í bók þessari fjallar sögu-
maður um málsrannsóknina
og skyggnist bak við tjöldin í
leit að raunverulegu sam-
hengi atburða. En það hefur
verið margra álit til þessa
dags að ekki hafi fundist
fullnægjandi skýring á mál-
um þótt nokkur ungmenni
hafi fyrir Hæstarétti 1980
hlotið þunga dóma fyrir tvö
manndráp.
Betri
helmingurinn
SKJALDBORG hefur
sent frá sér bókina
„Betri helmingurinn" sem
nú kemur út í þriðja sinn.
Sem fyrr er í bókinni rætt
við eiginkomur fimm lands-
þekktra manna. Þessar kon-
ur lýsa lífi sínu á lifandi og
skemmtilegan hátt en um-
fram allt tala þær af einlægni
og hreinskilni.
Framsetning viðtalanna
er unnin af alúð og frágang-
ur þeirra vandaður. í þess-
ari þriðju útgáfu segja frá
Ólöf Stella Guðmundsdóttir
eiginkona Róberts Arn-
finnssonar leikara. Skrásetj-
ari er Jón Daníelsson. Sig-
ríður Guðmunda
Brynjólfsdóttir eiginkona
Ásgeirs Guðbjartssonar,
skipstjóra og aflakóngs á
togaranum Guðbjörgu frá
Isafirði. Skrásetjari er Ingi-
björg Daníelsdóttir.
Jóna Dóra Karlsdóttir
eiginkona Guðmundar
Árna Stefánssonar bæjar-
stjóra í Hafnarfirði. Skrá-
setjari er Önundur Björns-
son. Ástríður Andersen
eiginkona Hans G. Ander-
sen sendiherra. Skrásetjari
er Jón Daníelsson og Matt-
hildur Jónsdóttir eiginkona
séra Bolla Gústavssonar
vígslubiskups. Skrásetjari er
séra Kristján Björnsson.
Hestar og
menn 1991
SKJALDBORG hefur
sent frá sér bókina
„Hestar og menn 1991“ eftir
þá Guðmund Jónsson og
Þorgeir Guðlaugsson.
Bókin sem er í raun árbók
hestamanna 1991 segir frá
frækilegri fimm daga hesta-
ferð eins manns með fjóra
hesta norður fyrir Vatnajök-
ul. Einnig er sagt frá hestá-
ferð nokkurra fjölskyldna
kringum Tindfjöll. Rakin er
saga fjórðungsmóta á Suð-
urlandi. Hér segir frá fjórð-
ungsmóti Suðurlands, ís-
landsmóti og