Bæjarins besta - 19.12.1991, Qupperneq 31
BÆJARINS BESIA • Fimmtudagur 19. desember 1991
31
—eftir Ólaf Helga Kjartansson, bæjarfógeta og sýslumann í ísafjarðarsýslu
HANN GEKK eftir götunni álciöis til miðbæjarins. Snjókoman var óvenju þung. Veð-
urfarið hafði verið með öllu móti síðustu dagana. Skelfilegir umhleypingar, engu lik-
ir, höfðu angrað alla undanfarin hálfan mánuð.
Veðurspáin var þó heldur upplífgandi, því með kvöldinu átti að stytta upp. Þá yrði von-
andi bjart. En samtímis átti að kólna mikið. Við hverju var svo sem að búast norður undir
heimskautsbaug í mesta skammdeginu. Umhleypingarnir virtust taka sinn toll af mannlíf-
inu. Ekki þennan þungbæra skclfilega skatt, mannslífin sjálf. Sú heimta var þungbærari en
nokkru tali tók. Þær fórnir voru orðnar alltof margar og tilgangslausar. Þær voru óaftur-
kræfar, endanlegar. Mörg þung sporin hafði hann átt til þess að tilkynna mæðrum, eigin-
konum, unnustum og dætrum andlát sona, eiginmanna, unnusta eða feðra. Enn var hann
haldinn þeirri bábilju að karlmenn væru meiri karlmenni en konur. Þó vissi hann fullvel að
svo var ekki. Uppeldið sagði til sín í þessum efnum sem öðrum. Dánarorsökin skipti engu,
alltaf var jafn erfitt að standa frammi fyrir karli eða konu og segja þau þungbæru orð, að
nákominn ástvinur væri látinn. Fyrirvarinn var oftast svo skammur að fólk meðtók þennan
bitra sannleik ekki fyrr en seinna. Og samt hafði hann séð lífsneistan í augum viðmælenda
sinna deyja á slíkum stundum. Glitrandi augu full af fjöri urðu mött á á andartaki. Heil
ævi var horfin úr þeim fyrir sjónum hans. Endalok; og hann var boðberinn. Þessi þáttur
starfsins gat ekki lærst. Oft helltist sú tilfinning yfir hann, að slíkar sendiferðir yrðu hon-
um þungbærari með hverju árinu sem leið; með hverri slíkri för sem hann fór.
Ekkert var þó sárara en
að bera boðskap um brott-
hvarf ungs fólks. Hvers kyns
þjóðfélag er það, sem getur
ekki kennt nemendum sín-
um einföldustu atriði í
mannlegum samskiptum, en
leyfir þeim óhindrað að
keyra óbeisluð tryllitæki,
aðeins sautján ára gömlum.
Árinu síðar má þetta unga
fólk ganga í hjúskap, án
nokkurs leyfis. Hverjum
dettur í hug að þetta sama
fólk hirði um boð þess efnis
að áfengi megi það ekki
kaupa fyrr en tvítugsaldrin-
um er náð. Leyfi boð og
bönn skipta mannskepnuna
engu. Hún verður að fara
sínu fram og ekkert skiptir
máli nema ímynduð velferð,
sem engan gleður, að
minnsta kosti ef marka má
allar ævisögurnar. Hugsa
sér! Að fólk nýskriðið á
fimmtugsaldurinn skuli telja
sig hafa frá einhverju að
segja, sem réttlætir útgáfu
heillar bókar. í öllu þessu
sjálfumglaða tali lifsreyns-
lusagnanna mátti skýrast
greina vanhæfni þjóðarinnar
til þess að mennta börnin
sín. Námskeið og próf eru
skilyrði réttinda til aksturs
bíls. Ekki var að vísu spurt
um þroska. En í hjónaband
gat hver gengið án leyfis og
prófs. Ekki var þroskanum
alltaf fyrir að fara. Stundum
blessaðist það þó. Alltof oft
misheppnaðist blessun pres-
tanna. Samt var það svo, að
þó einhverju lyki fyrir slit
hjónabandsins varð það
ekki endanlegt með sama
hætti og andlát. Auðvitað
tók það á, sleit honum hægt
og bítandi, en örugglega.
Fyrir tuttugu árum rúm-
um hlutu þau blessun í
heilögum hjúskap. Fimmtán
árum og þremur börnum
síðar lauk þeirri blessun.
Margs var að sakna, en þau
voru bæði guðs lifandi fegin
þegar því lauk. Þó var skip-
brot hans meira. Hún fékk
þessar fátæklegu eignir og
kom undir sig fótunum á
nýjan leik. Hann fékk ek-
kert nema fötin og bækurn-
ar. Hún var nú komin í sam-
búð á nýjan leik. Trúin á
hjónabandið var víst rokin
út í veður og vind. Börnun-
um þeirra líkaði nokkuð vel
við sambýlismanninn. Þau
skorti ekki lengur glingrið
sem hugurinn stóð til. Nýi
maðurinn var alltaf glæsi-
lega klæddur, átti fínan bíl
og fór til útlanda með þau
öll. Honum líkaði ekki alls
kostar við ástandið. En
þessu var lokið. Verst af
öllu var þó, að það sem
hann hafði trúað á, brást.
Heldur þyngdi í veðrinu.
En svo djúpt hafði hann ver-
ið sokkinn í hugsanir sínar
um ranglæti heimsins, að
hann fann ekki til kuldans
fyrr en nú. Svo sannarlega
vonaðist hann til þess að
veðrið batnaði. í raun hafði
honum létt við þessar dap-
urlegu hugsanir. Geta hugs-
anir orðið dapurlegar?
Varla ef þær lýsa staðreynd-
um. Þær geta ger menn
hrygga. Annars hljóta þær
að vera hlutlausar. Og nú lá
leiðin til einstæðrar þriggja
barna móður, sem átti þau
hvert með sínum mannin-
um. Enginn þeirra hafði víst
viljað búa með henni til
lengdar. Af hverju vissi
hann ekki. Fátæktin hrjáði
konuna. Honum varð hugs-
að til heppni sinnar fyr-
rverándi. Sú hafði allt til
alls. Þessi átti ekkert, hafði
ekki einu sinni atvinnu.
Börnin fengju hvorki fínu
merkjafötin né allt glingrið
sem var svo sjálfsagt nú um
stundir. Hvað gat hann svo
sem gert. Fátt annað en að
afhenda þessar tuttugu þús-
und krónur sem henni höfðu
verið úthlutaðar úr söfnun-
inni. Sem betur fór var
til fólk sem lét sig varða hag
nágrannans, í hljóði og jafn-
framt í verki. Slúðrið í bæj-
arfélaginu var óþolandi.
Órökstuddar kjaftasögur og
dylgjur um náungann. Sum-
ir nærðust á því. Hann bein-
línis sá þær fitna af kjafta-
ganginum sumar konurnar í
kirkjunni. Karlarnir voru
svo sem ekki betri. Ekki
eins meinfýsnir en klúrari.
Nú var gósentíð fyrir sögu-
smetturnar. Erfiðleikar í at-
vinnulífinu komu niður á
mörgum. Gjaldþrot fyrir-
tækja og einstaklinga snertu
marga beint og óbeint.
Eðli mannsins kom þar
glöggt fram. Sumir, sem
borist höfðu á, gerðu það
ekki lengur. Hann trúði því
ekki, en margir virtust kæt-
ast. Kannski var það miss-
kilningur, kannski ekki?
I síðustu viku hafði einn
útgerðarmaðurinn komið til
hans og talað lengi. Grát-
andi hafði sá lýst fyrir hon-
um vandræðum sínum.
Kvótaskerðingin var ekki
verst. í greiðaskyni við vin
sinn og félaga hafði útgerða-
rmaðurinn skrifað upp á víx-
il. „Ekkert mál sagði félag-
inn, örugg viðskipti“. Nú
riðaði fjárhagur fjölskyld-
unnar til falls. Þriggja millj-
ón króna skuld, fyrir annan,
var meira en fjölskyldan réð
við. Þessi harðduglegi mað-
ur grét og sjálfur hafði hann
átt bágt með tilfinningarnar,
þegar í Ijós kom að eigin-
konan hafði ekkert fengið
að vita enn. Erindið var að
fá aðstoð við að tala við
eiginkonuna, sem þótti
svarkur nokkur. Þegar til
átti að taka reyndist hún
sterki aðilinn í hjónaband-
inu. Útgerðarmaðurinn
fékk miklar skammir, en
eiginkonan tók málin í sínar
hendur og fór í bankann og
samdi um það sem þurfti til.
Meira hafði hann ekki heyrt
um afdrif málsins. Þegar
þeir höfðu mæst á götu fyrir
tveimur dögum brosti útger-
ðarmaðurinn en var eins og
hálf feiminn. Sjálfsagt var
víða erfitt þótt á yfirborðinu
væri allt slétt og fellt. Eitt
hafði þó breyst, útgerðarm-
aðurinn drakk ekki lengur,
að minnsta kosti ekki á al-
mannafæri. Og mannvænleg
börn áttu þau, þótt ekki sæj-
ust þau oft í kirkjunni.
Hvað gat hann sagt þegar
SMÁ
mssiaMéaimAiW
Til sölu er breytt Nintendo leikjatölva m. 9 leikjum, milli- stykki, tveimur fjarstýringum og byssu. Leikir m.a. Super Mario 3 og Simpsons. Upp- lýsingar gefur Haukur í 0 3787 kl. 20-22.
Til sölu er kanína, svartur og hvíturkall. Uppl. í 0 3927.
Til sölu er Fiat 127 GL ’85,3ja dyra. Upplýsingar í 0 3654.
Til sölu er Pajero '85, ekinn 68.000 km. Upplýsingar í 0 7066 efti kl. 20.
Jólakettlingar fást gefins. Uppl. í 0 3335 eftirkl. 19.
Til sölu er Arctic Cat Panther vélsleði, 66 ha. 440 cu. Raf- start og hiti í handföngum. Upplýsingar i 0 3421.
Til sölu eru 15x8” krómfelg- ur. Passa undir Range Rover eða Land Rover. Upplýsingar í 0 8320.
Til sölu er Wildcat 700 vél- sleði Uppl. í 0 985-32947.
Til sölu er Mazda 323 ’81, ek- inn 108.000 km. Góður bíll. Uppl. í 0 3727 á kvöldin.
Til leigu er 3ja herb. íbúð á ísafirði. Uppl. í 0 4097.
Foreldrar-forráðamenn. JC- jólasveinarnir fara um ísa- fjörð 22. des. nk. með gjafir handa börnunum eins og í fyrra. Upplýsingar í 0 4269, 3030 og 3155 á kvöldin.
Til sölu er vel með farið sófa- sett 3+2+1. Upplýsingar gefur Helga í 0 3609.
Til sölu eru Blizzard barna- skíði ásamt skóm nr. 34. Upplýsingar í 0 7418.
Kettlingar fást gefins. Upp- lýsingar í 0 3957.
í óskilum er kvenarmbands- úr. Upplýsingar í vefnaðar- vörudeild Verslunar E. Guð- finnssonar í 0 7001.
Til sölu eru húsgögn í ung- lingaherbergi, hvítlökkuð frá Ingvari og sonum. Upplýsing- ar í 0 3719.
íóskilumerbleikurtelpuvett- lingur með „skinni" Upplýs- ingar á Hótel (safirði í 0 4111
Til sölu er rúm 11/2 breidd og hillur í stíl. Lítið notað. Selst ódýrt. Upplýsingar í 0 3002.
L
JÓSR
ITUNAR
PAPPÍRINN
FRÁODDAFÆS
TÍH-PRENTIAÐ
SÓLGÖTU9