Málfríður - 15.09.2003, Page 4

Málfríður - 15.09.2003, Page 4
Hvað eru nemendur að hugsa? Félagsleg túlkun og hugmyndiv um tungumálanám og kennslu Allt frá tilkomu tjáskiptanálgunarinnar á áttunda áratugnum hefur athygli fræði- manna í tungumálanámi og kennslu beinst í auknum mæli að nemandanum sem ein- stakhngi. I stað þess að reyna að finna hina fullkomnu kennsluaðferð sem hentar öll- um hefur áherslan færst yfir á námið og þá persónulegu og félagslegu þætti sem geta haft áhrif á það. Svo kallað nemendamið- Eyjólfur Már Sigurðsson. að nám sem miðast við þarfir nemandans hefur verið að ryðja sér til rúms á undan- förnum áratugum. Sjálfstýrt tungumála- nám er dæmi um nemendamiðað nám þar sem áhersla er lögð á sjálfræði nemandans hvað varðar aðferðir, efnistök og skipulag námsins (Holec 1996 og Eyjólfur M. Sig- urðsson 2002). En hver er þessi nemandi? Hvernig lærir hann og hvaða hugmyndir gerir hann sér um tungumálið og tungumálanám? Öll höfum við einhveijar hugmyndir1 um tungumáhð og hvað það er að læra erlend tungumál. Þessar hugmyndir mótast bæði af persónulegri reynslu (fyrra tungumála- nám, ferðalög og kynni af erlendri menn- ingu og tungumálum) og af umhverfinu, svo sem skólagöngu og ríkjandi viðhorfum í samfélaginu. Þegar nemandi hefur nám í ákveðnu tungumáli hefur hann fyrirfram ákveðnar hugmyndir um tungumálið og tungumálanámið. Er hugsanlegt að þessar hugmyndir hafi bein árif á námið sem slíkt og á viðhorf nemendans gagnvart breytt- um kennsluháttum svo sem sjálfstýringu? Getum við sem kennarar unnið með þess- ar hugmyndir nemenda okkar í því skyni að gera þá meðvitaðri um eigið hlutverk í náminu og bætt þannig námsárangur? Til þess að leita svara við þessum spurningum geta kenningar í félagssálfræði reynst gagn- legar. í greinarkorni þessu verður leitast við að skýra hugmyndir nemenda um tungumálanám og kennslu út frá kenning- unni um félagslega túlkun (représentations sociales).2 1 Hér er notast við „hugmynd" íýrú enska hugtak- a ið „behef' (Riley 1997). ' 2 Það vantar í raun góða íslenska þýðingu á franska Félagsleg túlkun Það var franski félagsfræðingurinn Emile Durkheim sem setti fram kenninguna um félagslega túlkun um aldamótin 1900. Durkheim (1898) greinir á milh einstak- lingstúlkunar (représentation individuelle) og hóptúlkunar (représentation collective). Moscovici (1961) sem þróaði nánar þessa hugmynd Durkheims á 7. áratugnum hef- ur sýnt fram á að félagsleg túlkun hefur fyrst og fremst það hlutverk að viðhalda tengslum innan ákveðins félagshóps og búa hann undir að hugsa og bregðast við á lík- an hátt. Þannig geta meðhmir þessa hóps skilgreint sjálfa sig sem shka. Hún er túlknn félagshópsins á raunveruleikanum og hún er félagsleg í þeim skilningi að hún verður til við samskipti innan þessa hóps, m.a. í uppeldi barna, í skólakerfinu og í fjölmiðl- um. Hún stuðlar að því að skapa mynd af veruleikanum sem er sameiginleg öllum meðhmum hópsins (Jodelet 1989: 53). Fé- lagstúlkunin hefur því mjög hagnýtt gildi fyrir samfélagið þar sem hún eykur sam- heldni og gerir viðkomandi hópi kleift að kortleggja heiminn og skapa þeirra útgáfu af veruleikanum. í raun má því segja að félagsleg túlkun sé einhverskonar lykill sem gerir meðlim- um tiltekins félagshóps kleift að lesa raun- veruleikann á sinn hátt. Hún auðveldar mjög almennt vitsmunahf manna en á sama tíma takmarkar hún hka túlkun okk- ar á veruleikanum. Félagsleg túlkun segir því meira um félagshópinn sem skapaði hana en það fýrirbæri sem hún leitast við að túlka. Lítum á eitt dæmi: Ef hægt er að líta á Islendinga sem einn félagshóp þá mætti kannski segja að hugmyndir þeirra um íslenska tungu sé félagsleg túlkun. í augum margra Islendinga er íslenska ákaf- lega „erfitt“ tungumál og þess vegna nán- ast ógerlegt fyrir útlendinga að læra það. hugtakinu „représentation sociale“. Hér verður notast við „félagslega túlkun“ og er það komið frá Friðrik H.Jónssyni forstöðumanni Félagsvís- indasto&unar HI.

x

Málfríður

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Málfríður
https://timarit.is/publication/1081

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.