Málfríður - 15.09.2003, Qupperneq 7

Málfríður - 15.09.2003, Qupperneq 7
A comparison of student and teacher ratings of selected learning activities Activity Student Teacher pronunciation practice very high medium explanations to class very high high conversation practice very high very high error correction very high low vocabulary development very high high listening to/using cassettes low medium high student self-discovery of errors low very high using pictures, film and video low low medium pair work low very high language games very low low Hugmyndir um tungumálanám og viðhorf til sjálfstýringar Ohefðbundnar námsaðferðir eins og t. d. sjálfstýrt nám geta verið á skjön við hug- myndir nemenda um tungumálanám, sér- staklega þar sem hlutverk kennara og nemenda eru önnur en þeir eiga að venj- ast í hefðbundnu námi. Broady (1996) kannaði viðhorf til sjálfstýringar meðal tungumálanemenda á fyrsta ári í háskólan- um í Brighton. I ljós kom að flestir nem- endur gera sér grein fyrir eigin ábyrgð í náminu og að þeir eru almennt jákvæðir gagnvart sjálfstæðum vinnubrögðum. Hins vegar virðast margar hugmyndir þeirra um tungumálanám líklegar til þess að takmarka mjög getu þeirra til sjálfstýr- ingar: • Meirihluti nemenda telur kennarann ómissandi til þess að ná árangri og flest- ir tjá þörf fýrir hópkennslu með ná- kvæmum útskýringum kennara. • Lítið sjálfstraust varðandi sjálfsmat og áhersla á námsmat kennara sem hvatn- ingu. • Aðeins 20% aðspurðra telja sig geta leyst sjálfir erfiðleika sem upp koma í náminu og 22% telja sig vita sjálfa hvað er þeim fýrir bestu. • Mjög stór meirihluti metur sig neikvætt í samanburði við samnemendur sína. Af niðurstöðum þessarar rannsóknar mætti ráða að nemendur virðast ekki vera fyllilega reiðubúnir til þess að stýra eigin tungumálanámi og það er ekki mjög hvetjandi fyrir kennara sem vilja auka sjálfræði nemandans í náminu. En er hugsanlegt að hafa áhrif á hugmyndir nemenda og búa þá þannig undir sjálfstýrt nám? Unnið með hugmyndir nem- andans Eitt af grundvallaratriðum í sjálfstýrðu tungumálanámi er það sem kallað hefur verið „sjálfvæðing nemendans“3 (Holec 1981); það þýðir í raun að nemandinn lærir að verða sjálfráða. Eins og fram kem- ur hér að ofan þá mótast hugmyndir nem- enda ekki síst af fýrra námi og í flestum tilfellum er þar um „kennaramiðað“ nám að ræða. Það er því mikilvægt að nemand- inn læri að stýra eigin námi. Til þess þarf nemandinn að fara í gegnum s.k. „sjálf- væðingarferli“4, þar sem m.a. er unnið með hugmyndir nemandans varðandi tungumálið og tungumálanám. Þetta ferh hefur líka verið kallað að „læra að læra“. Utfærslur á slíku ferli geta verið breytileg- ar eftir aðstæðum. Sjálfvæðingarferlið get- ur átt sér stað á undap- tungumálanáminu eða samhliða því og það getur jafnt verið í formi sjálfsnáms og hópkennslu. En hugmyndir og viðhorf sem eiga rætur sínar í félagslegum túlkunum geta verið lífsseigar og það getur verið erfitt að hafa áhrif á þær og það þurfa kennarar sem vilja breyta kennsluháttum sínum að hafa í huga.Vinna með hugmyndir nem- enda má heldur ekki taka of mikinn tíma frá tungumálanáminu sjálfu því þá er hætt við að nemendur missi sjónar af hinum raunverulegu markmiðum tungumála- námsins. Það þarf því í þessu sem svo 3 Þýðing höf. á franska hugtakinu „autonomisatidn de l’apprenant“. 4 Þýðing höf. á fianska hugtakinu „processus d’autonomisation". En hugmyndir og viðhorf sem eiga rætur sínar í félagslegum túlkunum geta verið lífsseigar og það getur verið erfitt að hafa áhrif á þær og það þurfa kennarar sem vilja breyta kennsluháttum sínum að hafa í huga. 7

x

Málfríður

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Málfríður
https://timarit.is/publication/1081

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.