Málfríður - 15.09.2003, Page 11

Málfríður - 15.09.2003, Page 11
Framfaramöppur í tungumálanámi Á evrópska tungumáladeginum 26. sept- ember tóku fulltrúar tungumálakennara Laugalækjarskóla við Evrópumerkinu úr hendiVigdísar Finnbogadóttur í hátíðarsal Háskóla Islands en þar fór fram málþing á vegum StofnunarVigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum. Evrópumerkið 2003 var veitt fyrir verkefnið Fmmfam- möppur í tungumálanámi. Kennararnir sem standa að verkefninu eru: Ágústa Harðar- dóttir, Brynhildur A. Ragnarsdóttir, Nanna Ævarsdóttir, Helga Finnsdóttir, Þórunn Sleight, Helga Hilmisdóttir og Gry Ek Gunnarsson. Sótt var um viður- kenninguna fyrir verkefnið til að vekja at- hygli á möguleikum slíkra mappa við að efla sjálfstæði og ábyrgð nemenda, að auka tengsl á milli þarfa nemanda og námsefn- is, að vekja athygli á mikilvægi þjálfunar í að beita námsaðferðum á sveigjanlegan hátt og síðast en ekki síst að leggja áherslu á tengshn mifli markmiða, kennsluaðferða og mats. Hvað er framfaramappa? Framfarmöppur eru í senn kennsluaðferð þar sem áhersla er lögð á námsferlið, hvað nemandinn er að fást við á hveijum tíma, í hvaða tilgangi og hvað hann telur sig læra af því sem unnið er að. I öðru lagi eru þær matstæki sem byggir á áþreifanleg- um sönnunargögnum sem sýna vinnu- framlag, árangur og framfarir nemanda í tiltekinn tíma. Matið miðar að því að kanna í hvaða mæli nemanda hefur tekist að ná tilteknum markmiðum. Metið er með samanburði við viðmið, gátlista og/eða með samanburði við fyrri verk af sama eða svipuðum toga. I þriðja lagi eru framfaramöppurnar öflugt samskiptatœki í samskiptum nemenda og kennara, nem- enda, kennara og foreldra. Mappan verður miðja umræðna um stöðu og framfarir nemanda. Áherslan flyst frá einkunnum og óljósum umsögnum til þess hvort nem- andi hafi staðist markmið og kröfur hvers verkefnis. Uppbygging framfaramöppu Námsmappan er þrískipt og er sívirkt samspil á milli allra hluta hennar. Leiðar- bókin hefur að geyma námsferilinn og í hana eru skráð markmið fyrir vikuna, mán- uðinn og/eða önnina. Þar er skráð hvað gert er til að ná þessum markmiðum, þ.e. hvaða viðfangsefni var tekist á við og hvaða námsaðferðum (learning strategies) var beitt við úrlausn viðfangsefnisins. Síð- ast en ekki síst er skráð í leiðarbókina sjálfsmat nemandans á því sem hann telur sig hafa lært af viðfangsefninu sem unnið var að. Þar sem áherslan er á námsferlið er þess vænst að vinnan við leiðarbókina efli námsvitund nemenda og veiti þeim yfir- sýn og tengi eina kennslustund við aðra, eitt verkefni við annað. Annar hluti er vinnumappan, en í hana er safnað öllum verkum nemenda — til- búnum verkum og atrennum að þeim, prófum, styttri æfingum, sjálfsmati og jafn- ingjamati. Þar koma einnig ýmiss konar skrár sem nemandinn heldur til að fá yfir- sýn yfir framlag sitt, s.s. skrá yfir texta sem hann les um tiltekið efni bæði innan og utan skóla, skrár yfir efni sem hann' hefur hlustað á, skrár yfir bækur sem hann hefur lesið, skrár yfir það sem nemandi telur sig hafa orðið betri í á einhveiju tímabili. Síð- ast en ekki síst er mat nemanda á því, sem hann telur sig hafa haft gagn af, fært til bókar. Tilgangurinn ef að draga fram og gera sýnileg viðfangsefni sem nemandi tekst á hendur og oft eru ekki augljós, s.s. eins og hlustunar- og talæfingar. Matinu er ætlað að fá nemendur til að mynda sér skoðun og setja hana í orð. Þriðji hluti möppunnar er matsmappa en í hana fer úrval efnis úr vinnumöpp- unni. I matsmöppuna er valið eftir forsögn kennara, sem liggur fyrir fljótlega eftir að skóli hefst. Oll eintök í þessari möppu eru vegin og metin eftir viðmiðum og for- sendum, sem bæði kennarar og nemendur í viðkomandi grein þekkja. Forsögnin get- ur kveðið á um tiltekið innihald, s.s. sýnis- horn af ritun, hljóðupptökum, teikning- um, prófum, skrám af ýmsu tagi og sjálfs- Brynhildur A. Ragnarsdóttir. 11

x

Málfríður

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Málfríður
https://timarit.is/publication/1081

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.