Málfríður - 15.09.2003, Blaðsíða 13

Málfríður - 15.09.2003, Blaðsíða 13
ur leiðarbókin það uppfletti- og hjálpar- tæki nemandans sem henni er ætlað að vera í þessu sem öðru. Hjarta framfaramöppunnar er því leið- arbókin. Hún geymir námsferilinn eins og hann er færður frá tíma til tíma, verkefni til verkefnis og hlutverk kennarans er að sjá til þess að ferillinn verði nemandanum sýnilegur. Forsendur nemenda eru afar ólíkar, þar sem reynsla þeirra er ólík, þekk- ingar- og færnigrunnur er misjafn og þarf- ir þar af leiðandi ekki þær sömu. I ljósi þess eru engar tvær leiðarbækur eins, eng- ar tvær framfaramöppur eins. Þótt möpp- urnar séu að skipulagi svipaðar eru færsl- ur í leiðarbók, vinnumöppu og mats- möppu jafn ólíkar og nemendur eru margir. Framfaramappan sem matstæki I leiðarbókinni er unnið með námsferlið en vinnumappan geymir afrakstur náms- ferilsins. Því er mikilvægt að jafnhliða færslum í leiðarbók fari fram skipuleg söfnun á vinnu nemenda, tilraunir, atrenn- ur að verkum og fullbúin verk. Urval verka úr vinnumöppu verður kjarninn í matsmöppu. Til þess þarf kennarinn að gefa nemendum yfirlit yfir hvað mats- mappan á að innihalda. Sem matstæki spannar námsmappan vítt svið, m.a. sjálfsmat og einnig leiðbein- andi námsmat. Hvað varðar sjálfsmat fá nemendur tækifæri til að leggja markvisst mat á þætti eins og gildi verkefnis fyrir nemandann og tilgang, á gerð þess, þyngd, umfang, iforsögn verkefnisins og verklýsingu af hálfu kennara og síðast en ekki síst á eig- ið framlag og vinnubrögð. Matið beinist að verkefninu sjálfu, framlagi og vinnu nem- anda og undirbúningi kennara. Hvað varðar leiðbeinandi námsmat er sérhvert verkefni, sem lagt er í möppuna sjálfa og einnig mappan í heild, metið eft- ir matsviðmiðum (scoring rubric). Mikil- vægt er að nemendur viti hvaða atriði eru lögð til grundvallar mati og hve hátt vægi hvert og eitt þeirra hefur. Þeir geta haft áhrif á hvaða viðmiðum matið er byggt á. Nemendur geta auðveldlega gefið kennara hugmynd um hvernig verk þarf að vera unnið svo að það teljist framárskarandi, miðlungs eða slakt og eftir þeim tillögum eru viðmiðin samin.Viðmiðin má vinna í hópvinnu á málinu sem verið er að læra. Vænta má að slík vinna auki gagnkvæman skilning á forsendum og framkvæmd mats og gefi nemandanum augljósari grunn til að setja sér raunhæf markmið til að stefna að í næsta áfanga. Matsmappan eflir um- ræður milli kennara og nemanda um stöðu og framvindu þar sem umræður eru byggðar á áþreifanlegum dæmum sem nemandinn hefur sjálfur valið út og ber því ábyrgð á því sem þar er ásamt kennar- anum. Framfaramöppur og ævilangt nám Uppskeran af vinnu með leiðarbók og námsmöppur er margföld og ekki ein- göngu bundin við tungumálið sem verið er að læra. Þessi aðferð ber í sér þjálfun í skipulagningu á eigin námi, ferilnámi sem grundvallast á markmiðssetningum og sjálfsmati, sjálfsmati og markvissu jafn- ingjamati, vitund um eigin námsaðferðir og námsstíl og gagnavarðveislu sem felst í virð- ingu fyrir eigin verkum, fullunnum eða hálfkláruðum. Markmiðið með þessum vinnubrögðum er að efla einstaklinginn til frekara náms og þjálfa hann í vinnubrögð- um sem gagnast honum um alla framtíð. Rcynsla kennara af vinnu með náms- möppur sem þessar er yfirleitt jákvæð. Þeir eru sammála um að sá tími sem fer í undirbúning og skipulag borgar sig þegar til lengri tíma er litið. Og það sem mestu munar er að nenrandipn er sá sem fylgist með námsframvindu sinni og yfirferð ekki síður en kennarinn, námsmat og umræður nemanda og kennara um leiðir, aðferðir og árangur verða markvissari. Margir kveða svo sterkt að orði að hafi þeir kynnst námsmöppum sem kennsluaðferð verði ekki aftur snúið til fyrri kennslu- hátta. Brynhildur Anna Ragnarsdóttir, MA. Kennsluráðgjafi á Fræðslumiðstöð Reykjavíkur og deildarstjóri í tungumálaveri í Laugalækjarskóla. http: / /laugalaekjarskoli. ismennt. is/Tungumalaver/ Fleimildaskrá: Bandura, A. (1982). Self-Efficacy Mechanism in human Agency. American Psychologist, 37 (2): Matsmappan efl- ir umræður milli kennara og nemanda um stöðu og fram- vindu þar sem umræður eru byggðar á áþreif- anlegum dæm- um sem nem- andinn hefur sjálfur valið út og ber því ábyrgð á því sem þar er ásamt kennaran- um. 13

x

Málfríður

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Málfríður
https://timarit.is/publication/1081

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.