Málfríður - 15.09.2003, Blaðsíða 18

Málfríður - 15.09.2003, Blaðsíða 18
Það þýðir ekki að bíða heilu eða hálfu sólarhringana eftir ensku dag- blöðunum eða liggja yfir orðabókum þegar maður þarf að fylgjast með spennandi atburðum hér í Japan. 18 — Hvaða not hefur þú haft af náminu hittg- að til? I fyrsta lagi, þá er japönskukunnátta algjört grundvaUarskilyrði fýrir því að geta stund- að nám í mörgum háskólum í Japan og minn háskóli er einn af þeim. Eg hef líka fyrst og fremst notað japönsk gögn fyrir rannsóknir mínar hingað til og hefði alls ekki getað vahð mér sömu viðfangsefni ef ég hefði ekki getað lesið heimildir og tek- ið viðtöl á japönsku. Eg vinn einnig sem fréttaritari fyrir Ríkisútvarpið og í því starfi er nauðsynlegt að hafa góða þekkingu á japönsku samfélagi og japanskri tungu. Það þýðir ekki að bíða heilu eða hálfu sólarhringana eftir ensku dagblöðunum eða hggja yfir orðabókum þegar maður þarf að fylgjast með spennandi atburðum hér í Japan. I fríum hef ég stundum tekið að mér leiðsögn með japanska ferðamenn og ýrnsa þýðingarvinnu og það hefur verið mjög lærdómsríkt. — Hvaða not munt þú hafafyrirþessa kunn- áttu þina eftirleiðis? Það er mikið urn að vera í samskiptum Is- lands og Japans um þessar mundir og ég vonast til að Japansáhugi minn og reynsla geti nýst vel í því samhengi. Tungumála- kunnáttan, ásamt alls 7 ára dvöl í Dan- mörku og 6 1/2 árs dvöl í Japan á vonandi eftir að koma að góðum notum að námi loknu. Vangaveltur varðandi framtíðarstarf verða þó aðeins að bíða meðan ég einbeiti mér að því að ljúka doktorsnáminu. — Hvað mundir þú ráðleggja þeim sem hafa hugsað sér að leggja stund á tungumálanám í framandi löndum? Ég held að það sé algjört grundvallaratriði að hafa áhuga á því sem maður er að gera. Þeim mun erfiðara sem tungumálið er þeim mun mikilvægara er að áhuginn sé fyrir hendi. Það er líka mikilvægt að hafa góðan skammt af þqósku í náminu til að maður gefist ekki upp eða láti heimþrána draga úr sér námsviljann. Maður þarf auk þess að vera tilbúinn til að leggja á sig mikla vinnu og vera opinn fyrir menn- ingu annarra. Karl F. Thoraren- sen nam rússnesku við HI skólaárið 1997-1998 og síðar í Pétursborg í Rússlandi, frá september 2001 fram í júlí 2002. Hann starfar nú í innkaupadeild Vííilfells hf. og stundar kvöldnám í markaðs- og útflutningsfræðum hjá Endurmenntun HI. — Hvað varð til þess að þú ákvaðst að læra málið? Ég hef lengi haft mikinn áhuga á sögu og menningu Rússlands, að fara þangað í nám var á dagskrá hjá mér lengi. Arið 2001 sló ég loks til og fór út. Ég sé ekki eftir því í dag, þvílíkt land. — Hvernig barstu þig að við að komast til náms (landinu þar sem málið er talað? Menntamálaráðuneyti Islands og Rúss- lands bjóða upp á styrki til tungumála- náms við Ríkisháskólann í St. Pétursborg (Leningrad) í Rússlandi og ég sótti ein- faldlega um. — Hvernig reynsla var það að stunda nám ( landinu þar sem málið er talað? Þetta var mikil og góð reynsla. Rússar leggja mikið upp úr menntun. Fjárskort- ur hefur þó gert það að verkum að menntakerfið er ekki eins sterkt og á Sov- éttímanum. Þetta horfir þó allt til betri vegar. í Ríkisháskólanum í Pétursborg var t. a. m. öll aðstaða til fyrirmyndar og kennararnir mjög hæfir og áhugasamir. Námið var vel uppbyggt og fróðlegt og byggðist mikið á sjálfsnámi, maður fékk t.d. í hendur rússneskar smásögur eftir ýmsa höfunda og Htil ljóð eftir Alexander Pushkin, ástsælasta ljóðskáld Rússa. Rússneskt tungumál er ekki eins óhkt íslenskunni og margir halda. Það eru sex fóH í stað fjögurra. Ef maður kann íslenska málfræði vel þá kemur það einnig að mjög góðum notum í rússnesku. Stafrófið er auðvitað erfitt til að byga með, en maður er furðufljótur að ná því, sérstaklega ef maður býr í Rússlandi og lifir og hrærist í tungumáhnu. Helstu erfiðleikarnir eru að þeir beygja allan andskotann rétt eins og

x

Málfríður

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Málfríður
https://timarit.is/publication/1081

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.