Málfríður - 15.09.2003, Qupperneq 30

Málfríður - 15.09.2003, Qupperneq 30
Franskan var tunga bænda- stéttarinnar og það var ekki síst fyrir tilstuðlan kaþólsku kirkj- unnar að frönskumælandi Kanadabúar, sér í lagi í Québec- héraði, samlög- uðust ekki enskumælandi löndum sínum. 30 Þó að Suðaustur-Kanada hafi verið frönsk nýlenda um skeið þá leið ekki á löngu þar til þessar lendur urðu að stórum hluta breskar nýlendur og á meðan þær byggð- ust hratt voru Frakkar tregir til að sigla yfir hafið og setjast að á þessum harðbýlu svæðum jafnvel þótt landrými væri mikið. A síðari hluta 18. aldar voru franskir inn- flytjendur í N-Ameríku aðeins 75.000 en þá var fjöldi íbúa í Nýja-Englandi orðinn rúmlega 1,5 milljón (Chaurand; 530). Þá þegar var farin að myndast togstreita á milli þessara tveggja samfélaga og átti hún eftir að aukast mjög með tímanum. Smám saman gengu frönsku nýlendurnar í greip- ar Englendinga jafnvel í kjölfar styrjalda sem háðar voru á meginlandi Evrópu á milli Frakklands og Englands. Strandhéruð SA-Kanada, einu nafni nefnd Acadie, urðu eign Englendinga árið 1713 með Utrecht sáttmálanum sem batt enda á erfðastríðin á Spáni. Arið 1763 var gengið frá Parísar- sáttmálanum í kjölfar sjö ára stríðsins sem varð til þess að gjörvallt Kanada var sett undir stjórn Englands. Síðasta franska landsvæðið í N-Ameríku, Louisiane, seldi Napoléon Bonaparte hinum nýstofnuðu Bandaríkjum árið 1803. Þó varð dálítill eyjaklasi sem er staðsettur sunnan við Ný- fundnaland, St Pierre et Miquelon, eftir í eigu Frakklands í þessari heimsálfu og til- heyrir hann Frakklandi enn í dag. Þar hafði myndast ffönsk verstöð í bygun 17. aldar er franskir sjómenn hófu að veiða þorsk á hinum fengsælu miðum sem þar var að finna og smám saman settist fólk þar að, afkomendur sjómannanna sem og þeirra sem höfðu sest að í Kanada en þoldu ekki lengur við þar vegna yfirráða Englendinga. A meðal þessara síðast- nefndu voru frönskumælandi íbúar Acadie en þá höfðu Englendingar rekið á brott með harðræði árið 1755 og eru þeir brottflutningar kallaðir Röskunin mikla (le Grand Dérangement). II. Bresk yfirráð Hver urðu örlög ffönsku innflytjendanna í Kanada eftir að Englendingar tóku yfir stjórn á þessum svæðum? Frönsk tunga og menning í Kanada bera vitni um að frönskumælandi íbúar svæðisins samlöguðust ekki alfarið hinum nýju nýlenduherrum. í þessu sambandi hlýtur að skipta máli hveijir fóru aftur til Frakklands og hveijir urðu eftir. I síðar- nefnda hópnum voru bændur, veiðimenn, fýrrverandi hermenn sem ákváðu að láta af hermennsku og hefja búsetu í nýju landi og lágt settir klerkar. Efna- og yfir- stéttarfólk fór aftur til Frakklands, þeir sem urðu eftir lokuðu að miklu leyti fýrir sam- skipti við nýju nýlenduherrana, Englend- inga, sem tóku yfir stjórnsýslu, verslun og iðnað sem þá var hafin uppbygging á. Fljótlega öðlaðist ensk tunga sterkari sess í þessu tvítyngda samfélagi aðfluttra og til að eiga möguleika á að bæta stöðu sína var nauðsynlegt að hafa vald á enskunni jafn- vel þótt frönskumælandi íbúar svæðisins væru um þriðjungur íbúa þess. Franskan var tunga bændastéttarinnar og það var ekki síst fýrir tilstuðlan kaþólsku kirkj- unnar að frönskumælandi Kanadabúar, sér í lagi í Québec-héraði, samlöguðust ekki enskumælandi löndum sínum. Kaþólska kirkjan var einingarafl hinna frönskumæl- andi og það sem vóg þungt í þessu sam- bandi var að hún var eina stofnunin sem bauð upp á kennslu í franskri tungu. Skólagangan var gjarnan stutt meðal hinna frönskumælandi íbúa, áhersla var lögð á að yrkja jörðina, að komast af í harðbýlum sveitum landsins. Þessi staða var við lýði allt fram á miðja 20. öld í Québec-héraði og hafði gríðarleg áhrif á félagsgerð hins frönskumælandi samfélags. Þeir sem náðu að vinna sig upp, verða hluti af „elítu“ landsins, höfðu tilhneigingu til að sam- sama sig hinu enskumælandi samfélagi. Jafnvel þó að með stofnun kanadíska rík- isins (la Confédération canadienne), árið 1867, hafi lagalegt tvítyngi þjóðfélagsins verið staðfest. Þess ber að geta að á þess- um tíma taldi Kanada aðeins fjögur fýlki: Ontario (hluti m.v. nú), Québec (hluti m.v. nú), Nouveau-Brunswick og Nou- velle-Ecosse (Nýja-Skotland). Hin fýlki þess sem við þekkjum sem Kanada í dag voru enn breskar nýlendur en gengu smám saman í ríkjabandalagið, fýrst Man- itoba (1870), þá Breska Kólumbía (1871), Prince-Édouard eyja (1873) og, á 20. öld, Alberta (1905), Saskatchewan (1905) og síðast Nýfundnaland, ekki fýrr en 1949. I lögum hins nýja ríkis ffá árinu 1867 er ein grein helguð málstefnu og kveður

x

Málfríður

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Málfríður
https://timarit.is/publication/1081

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.