Bæjarins besta - 20.05.1992, Qupperneq 16
Lítið inn eða
hringið, áðuren
þið leitið annað
SgH-PRENT
ö SÓLGÖTU 9 ÍSAFIRÐI
F S 4560 S 4570
Föstudagskvöld: Pöbbinn opinn kl. 23-03.
Laugardagskvöld:
Nánar í götuauglýsingum.
Veri6velkomin
Víkurbær
Skemmtistaður
BolunqarvfkS7130
Isafjörður:
IFYRIRSPURNARTÍMA á Alþingi fyrir stuttu, þar sem
rætt var um ábyrgð verktaka kom fram hjá Kristni H.
Gunnarssyni, alþingismanni Vestfirðinga að komið hafi í
Ijós steypuskemmdir á Fjórðungssjúkrahúsinu á ísafirði og
væri áætlaður kostnaður við viðgerðir á húsinu um 40
milljónir króna. Kristinn sagði að kostnaðurinn af viðgerð-
unum myndi falla að öllu leyti á ríkið en ábyrgð verktakans
Ármannsfells hf., virtist engin vera.
Jes Einar Þorsteinsson,
arkitekt sjúkrahússins segir
í samtali við Morgunblaðið
að aðalástæður steypu-
skemmdanna séu þær að
húsinu hafi ekki verið haldið
við síðan þar var byggt og
að steypan í því sé gölluð.
Hún sé ekki nógu frostþol-
in. Þá sagði hann að gerð
hefði verið áætlun um að
gera við skemmdirnar fyrir
um 40 milljónir en hins veg-
ar væri ástæða til að hafa í
huga að inn í þeirri upphæð
væri virðisaukaskattur sem
rynni aftur til ríkisins og
eðlilegt viðhald á húsinu
hefði væntanlega kostað um
15 milljónir'. Þannig væri
kostnaðurinn við sjálfa við-
gerðina í raun um 20 millj-
ónir.
Skemmdirnar komu í ljós
fyrir 2-3 árum og voru rann-
sakaðar í fyrravetur. Nú
liggja niðurstöður fyrir og
unnið er að útboði. Áætlað
er að viðgerðir á sjúkrahús-
inu hefjist í sumar en fjár-
veiting er til þriggja ára. Jes
sagði að auðvitað ættu bæði
verktaki og steypustöð að
bera ábyrgð á skemmdunum
á sjúkrahúsinu en sam-
kvæmt íslenskum lögum
næði sú ábyrgð ekki svo
langt aftur.
-s.
• Fjórðungssjúkrahúsið á Isafirði. Miklar steypuskemmd-
ir hafa komið í Ijós á húsinu og er áætlað að viðgerðir á því
hefjist í sumar.
• Elín Óladóttir, elsti starfsmaður íshúsfélags ísfirðinga tekur við viðurkenningunni úr
hendi Páls Péturssonar, framkvæmdastjóra gæðaeftirlits Coldwater Seafood Corporation
í Bandaríkjunum.
Isafjörður:
s
AMÁNUDAGINN var, var íshúsfélagi ísfirðinga hf. afhent viðurkenning frá Cold-
water Seafood, sölufyrirtæki Sölumiðstöðvar Hraðfrystihúsanna í Bandaríkjunum
fyrir góða framleiðslu og góðan stuðning á síðasta ári.
Var þetta í sjötta skiptið sem fyrirtækið fær viðurkenningu sem þessa. Ellefu fyrirtæki
af sjötíu á landinu fá viðurkenningu að þessu sinni eða þremur fleiri en í fyrra. Við afhend-
inguna sagði Páll Pétursson, framkvæmdastjóri gæðaeftirlits Coldwater í Bandaríkjunum
m.a. aö í athugun væri að bjóða tveimur fastráðnum starfsmönnum þeirra fyrirtækja sem
viðurkenningu fengju í skoðunarferð til Coldwater í Bandaríkjunum.
Ishúsfélag ísfirðinga hf. fékk 94.2 stig í einkun fyrir framleiðslu sína af 100 mögulegum
en landsmeðaltal var 89.6 stig. Það var Elín Óladóttir, elsti starfsmaður íshúsfélags ísfirð-
inga hf. sem veitti viðurkenningunni móttöku.
-s.
ísafjörður:
Litlanes IS-608
vard eldi að
bráð og sókk
ÆKJUBÁTURINN
Litlanes ÍS-608 frá ísa-
firði brann og sökk tæpar 50
sjómflur norður af Skaga út
af Húnaflóa síðdegis á laug-
ardag. Þrír menn frá Isafirði
voru um borð í Litlanesi er
eldurinn kom upp og var
þeim bjargað um borð í Ingi-
mund gamla frá Blönduósi
sem sigldi með þá til lands.
Skipverjar urðu fyrst var-
ir við eld í vélarrúmi skips-
ins og magnaðist hann fljótt
þannig að ekki var við neitt
ráðið. Reyndu skipverjar að
nota slökkvitæki en án ár-
angurs og var því ekkert um
annað að ræða en að forða
sér frá borði. Skipverjar
sendu út neyðarkall á rás 16
á VHF-stöðinni svo og á
stóru stöðinni en án árang-
urs.
Skipverjar á nærstöddu
skipi, Ingimundi gamla frá
Blönduósi urðu varir við
reyk frá Litlanesi og sigldu
strax í átt til þeirra. Er Ingi-
mundur gamli kom á• stað-
inn, eftir um 30-40 mínútur
voru skipverjar á Litlanesi
komnir í gúmmíbát og var
þeim bjargað þaðan og þeir
síðan fluttir til lands. Litla-
nesið sökk síðan um hálfum
sólarhring seinna og flutu þá
olíutankar og fleira upp úr
bátnum.
Skipverjarnir þrír komu
til ísafjarðar á sunnudag.
Skýrslutökur vegna brunans
fóru fram á Blönduósi og
sjópróf eru fyrirhuguð á
næstu dögum. Skipstjóri á
Litlanesi ÍS-608 er Arnar
Kristjánsson.
-s.
ÓHÁÐ
FRÉHABLAÐ
/
A
VESITJÖRÐIM
• Menntaskólinn á ísa-
firði.
ísafjörður:
Skóla-
slit MÍ
Menntaskólan-
UM á ísafirði verður
slitið við hátíðlega athöfn í
sal skólans nk. laugardag
og hefst athöfnin kl. 14.00.
Við skólaslitin verður
sagt frá vetrarstarfi skól-
ans auk þess sem 30 ný-
stúdentar og ýmsir fleiri fá
prófskírteini sín. Þá verð-
ur tónlistarflutningur sem
að mestu leyti verður í
höndum nemenda
skólans.
Patreksfjörður:
Nýrprest-
urvígður
SÍÐ ASTLIÐINN sunnu-
dag vígði biskup ís-
lands, herra Ólafur Skúla-
son, þrjá guðfræðikand-
ídata til prestþjónustu.
Tveir vígsluþeganna
koma til starfa á Vestfjörð-
um en það eru þau Hans
Björnsson, sem verður
sóknarprestur í Patreks-
fjarðarprestakalli í Barða-
strandarprófastdæmi og
Sigríður Óladóttir, sem
verður sóknarprestur í
Hólmavíkurprestakalli í
Húnavatnsprófastsdæmi.
RITSTJÓRN s 4560 • FAX S 4564 • AUGLÝSINGAR OG ÁSKRIFT S 4560