Bæjarins besta - 15.09.1993, Síða 1
OHAÐ
FRÉTTABLAÐ
/
A
VESTFJÖRÐUM
AÐILIAÐ
SAMTÖKUM BÆJAR- OG
HÉRAÐSFRÉTTABLAÐA
IMIÐVIKUDAGUR
15. SEPTEMBER 1993
37. TBL. • 10. ÁRG
Verð kr. 170,-
með virðisaukaskatti
ísafjörður:
Deilt um
niðurrif húss í
Aðalstræti
- sjá bls. 2
Suðureyri:
Nýsköpun í
fiskverkun?
- sjá bls. 5
Bolungarvík:
Styttist í vinnslu
í frystihúsinu
- sjá bls. 5
ísafjörður:
Hraðahindranir
valda
skemmdum
- sjá baksíðu
ísafjörður:
Nýtt íþróttahús
tekið í notkun
- sjá bls. 7
OP/Ð KL. 09-12
OGKL. 13-17
FLUGLEIDIR
- SÖLUSKRIFSTOFA -
MJALLARGÖTU1 • ÍSAF/RÐ!
Fimmtíu manns í mat?
- láttu okkur taka afþér ómakið
Mánagötu 1
ísafirði, 3 4306
Staða skattstjóra Vestfjarðaumdæmis:
Fyrsta komm sem
sett er skotfsfljóri
- Elín Árnadóttir lögfræðingur tekur við starfinu 1. október
FJÁRMÁLARÁÐ-
HERRA, Friðrik Sophusson
gekk á mánudaginn frá ráðn-
ingu Eiínar Árnadóttur, lög-
fræðings hjá Ríkisskattstjóra
í stöðu skattstjóra Vest-
fjarðaumdæmis og mun hún
taka við hinu nýju starfi 1.
október næstkomandi en þá
lætur núverandi skattstjóri,
Kristján Gunnar Valdimars-
son af störfum.
Hinn nýi skattstjóri mun
vera fyrsti kvenmaðurinn sem
settur er í embætti skattstjóra á
Islandi ef frá er talin kona ein
sem settur var skattstjóri á
Norðurlandi um tveggja vikna
skeið á síðasta ári. Elín Árna-
dóttir er 32 ára, fædd og upp-
alin á Suðureyri til ársins 1970.
Foreldrar hennar eru þau Árni
Erling Sigmundsson, fæddur á
Hesteyri í Jökulfjörðum, en
hann lést á síðasta ári og Sigur-
laug Inga Árnadóttir, ættuð frá
Gelti í Súgandafirði. Er hún
fór frá Suðureyri fluttist hún
ásamt foreldrum sínum til
Akraness. Hún lauk skóla-
göngu sinni á Akranesi, varð
stúdent frá Fjölbrautarskóla
Elín Ámadóttir.
Vesturlands og lauk lögfræði-
prófi frá Háskóla Islands árið
1989. Frá þeim tíma hefur hún
starfað sem lögfræðingur hjá
Ríkisskattstjóra. Eiginmaður
Elínar er Magnús Orn Frið-
jónsson, sjúkraþjálfari. Hann
er einnig fæddur á Suðureyri
og er sonur hjónanna Friðjóns
Guðmundssonar og Fanneyjar
Guðmundsdóttur. Þau eiga
fjögur böm.
„Starfið leggst bara vel í
mig. Eg held að þetta verði
spennandi verkefni. Það verð-
ur einnig gaman að koma
vestur á heimaslóðirnar, það
er svo gott fólk fyrir vestan. Eg
hlakka mjög mikið til að takast
á við þetta krefjandi starf. Það
er nú kannski ekki alveg rétt
að ég sé fyrsta konan til að
gegna þessu embætti hér á landi
því ein vinkona mín hafði þann
heiður af mér með því að
vera settur skattstjóri á Akur-
eyri í hálfan mánuð á Akureyri
á síðasta ári. Eg er settur skatt-
stjóri til að byrja með en haldi
ég áfram og ef ég stend mig
vel, þá verð ég fyrsta konan
sem skipuð er í embætti skatt-
stjóra hér á landi,” sagði Elín í
samtali við blaðið í gærdag.
Sjö umsóknir bárust um
stöðu skattstjóra og óskuðu
þrír umsækjenda nafnleyndar.
Auk Elínar sóttu um stöðuna
og óskuðu ekki nafnleyndar,
þeir Guðmundur Halldórsson
viðskiptafræðingur og starfs-
maður Ríkisskattstjóra, Har-
aldur Teitsson viðskiptafræð-
ingur og starfsmaður á Skatt-
stofu Vestfjarða og Jónas
Guðmundsson lögfræðingur
og sýslumaður í Bolungarvík.
-s.
Vestí .-.danfömu og
hafa verið að koina með allt að 150 tonn að landi. Meðfylgjandi mynd var tekin á
þriðjudag þegar löndun stóð yfir úr þreinur togaranna.
Vestfjarðamiö:
Stakir jakar á relá
TÖLUVERT er um staka ísjaka á reki á siglingaleið úti
fyrir Vestfjörðum og Húnaflóa og þarf að leita marga
áratugi aftur í tímann til að finna heimildir um svo mikinn
ís á milli íslands og Grænlands á þessum árstíma.
Ástæða þessa mikla íss eru
norðlægar áttir sem hafa verið
ríkjandi í sumar en það er fyrst
núna í september tekið hefur
að hlýna á þessu hafsvæði og
vindátt að snúast. Vegna
veðuifarsins hefur ísinn borist
nær Islandi en í meðalári og
mikið af stökum jökum borist
inn í strandstrauma. Veður-
stofan hvetur því skipstjórnar-
menn til að tilkynna alla jaka
á siglingaleið út af Vest-
fjörðum og á Húnaflóa.
-s.
ísafjörður:
lingum áfengi
SAMKVÆ.MT upplýs-
ingum blaðsins var tölu-
vert magn af rússneskum
vodka selt til l'ólks á ísa-
firði um helgina og skipti
aklur kaupenda lillu máli.
Vodkinn mun vera ætt-
dagskvöld auk þess sem
unglingar nutu hans á götum
bæjarins. Að sögn lög-
regiunnar á ísafirði bárust
henni fregnir af sölu áfcngis
úr skípínu og var litlu magni
af vökvanum hellt niður cr
aður úr rússneskum togara
sem skipaði upp rækju í
Sundahöfn um helgina. Mik-
ið magn af vökvanum var í
umferð á busaballinu svo-
þeir urðu þess varir hjá
unglingum.
Ekkí tókst að hafa upp á
sölumönnunum, svo leynt
mun salan hafa farið fram.
kallaða í Sjallanum á föstu-
■s,
Óshlíð:
Keyrdi á staur
UM IIADEGISBIL á
laugardag l'ékk lögreglan á
ísallrði tilkynningu uin að
alvarlegt umferðarshs
hefði orðið á Oshlíðar-
vegi, rétt utan við vtri
Hvanngjá.
Við nánari athugun kom í
ljós aö ckki var um eins
alvarlegt slys að ræða og
talið var í fyrstu en öku-
maöur bifreiöareinnar. sem
grunaður er um ölvun við
akstur, mun hafa ekið á járn-
staur sem heldur uppi örygg-
isneti á hlíðinni. Meiðsl
ökumannsins munu hafa
verið minniháttar en bif-
reiðin var flutt af vettvangi
meðkranabíl. Js.
Aðalskipulag ísafjarðar:
Frestur til að skila
athugosemdum
að renna út
Á FUNDJ bæjarráðs ísa-
Ijarðar sem haldinn var 6.
september síðastliðinn
voru mcðal annars tekin
fvrir skipulagsmál bæj-
arins. Á fundinum kom
m.a. fram að frestur til að
gera athugasemdir við
deiliskiþulag miðbæjarins
hefði runnið út 1. júlí
sfðastliðinn og að engar
athugasemdir hefðu borist.
Tvær athugasemdirbárust
hins vegar víð skipulag um-
ferðar utn Aðalstræti og
Hafnarstræti og lagði bæjar-
ráð til við bæjarstjórn að
deiliskipulag miðbæjarins
yrði sent til Skipulags-
stjórnar ríkisins til stað-
festingar. Fresturtil aðskila
athugasemdum við deili-
skipulag I Engidal rann út 3.
september sl. og bárust tvær
athugasemdir. Onnur var frá
Karli Aspelund vegna fjar-
lægðar fyrirhugaðrar sorp-
brennslustöðvar frá loð-
dýrabúýog hin var frá Skot-
félagi Isafjarðar þar sem
farið er fram á stærri lóð
fyrir skotsvæði.
Fresturtil aðskilaathuga-
semdum við aðalskipulag
Isafjarðar í heild sinni renn-
ur út 17. september næst-
komandi sem er á föstu-
daginn og fer því hver að
vera síðastur, vilji hann á
annað borð gera athuga-
semdir við framtíðarskipu-
lag bæjarins. -v.