Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi - 01.12.2009, Page 11
Alnæmissjóður MAC var stofnaður árið 1994 af Frank Angelo og Frank Toskan,
stofnendum MAC Cosmetics. Sjóðurinn er hjartað og sálin í MAC. Tilgangur hans
er að styðja karla, konur og börn um allan heim sem þjást af hiv eða alnæmi.
Sjóðurinn styrkir einnig fræðslu- og forvarnaráætlanir sem beinast að því fólki á
hverjum stað sem eru í mestri hættu að smitast af hiv eða fá alnæmi.
Alnæmissjóður MAC er frumkvöðull í vinnu á svæðum sem hafa til þessa notið
lítils stuðnings. Sjóðurinn styður mörg ólík samtök um allan heim, sem bjóða
upp á margs konar þjónustu til þeirra sem þjást af sjúkdóminum. Með þessu
reynir hann að brúa bil fátæktar og sjálfsagðra mannréttinda.
Alnæmissjóður MAC er sá þriðji stærsti sjóðurinn í heiminum sem leggur
þessum málaflokki liðsinni sitt. Tveir stærstu sjóðirnir eru lyfjarisar. Til þessa
hafa safnast yfir 148 milljónir bandaríkjadala eingöngu með sölu á MAC Viva
Glam varalitum og glossum.
Allt söluandvirði Viva Glam varalita og glossa rennur til sjóðsins. Hingað til hafa
verið framleiddar sex tegundir varalita og þrjár tegundir glossa. Hver ný Viva
Glam herferð byggir á stuðningi fræga fólksins úr heimi lista- og tónlistarfólks
sem leikur lykilhlutverk í að fræða almenning um hiv-smit og alnæmi. Þar má
nefna Elton John, RuPaul, K.d. Lang, Lil´Kim, Mary J. Blige, Christina Aguilera,
Missy Elliot, Linda Evangelista, Chloe Sevgny, Boy George, Pamela Anderson,
Dita Von Teese, Fergie og nú í ár Cindy Lauper og Lady Gaga.
Framlag MAC á Íslandi hefur verið eyrnamerkt fræðsluverkefni íslensku
Alnæmis-samtakanna, þar sem farið hefur verið í alla grunnskóla landsins með
fræðslu. Forvarnarstarf þetta miðar að því að kenna börnunum okkar að þau hafi
val um öruggt kynlíf. Allir fræðslufulltrúar Alnæmissamtakanna sem sinna þessu
forvarnarstarfi eru sjálfir smitaðir af hiv-veirunni eða nákomnir einhverjum er
smitast hefur og tala því út frá eigin reynslu.
Lísa Einarsdóttir,
tengiliður MAC á Íslandi
Styrkir fræðslustarf HIV-Íslands/Alnæmissamtakanna