Bæjarins besta - 01.11.1995, Blaðsíða 6
Reykjafoss tók niðrí f
Sundunum á ísafirði
Losnaði af
strandstað
ef tir 12 tíma
REYKJAFOSS, skip Eim-
skipafélags Islands tók niðri í
innsiglingunni tii fsafjarðar-
hafnar, við flugvöllinn á ísa-
firði, rétt eftir kl. 22 á mið-
vikudagskvöld í síðustu viku.
Skipið var komið inn fyrir
innstu baujuna og átti stutt eftir
að bryggju þegar óhappið varð.
Skipið mun hafa komið á
hægri ferð fyrir Suðurtangann
og ekki náð að beygja upp í
vindinn og inn að höfninni, en
hávaðarok var á þessum tíma.
Settist Reykjafoss utan í kant
rennunnar og festist að framan.
Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir
tókst ekki að losa skipið fyrir
eigin vélarafli og var því leitað
aðstoðar hafnsögubátsins á ísa-
firði og togarans Þorsteins EA.
Háflóð var þegar óhappið átti
sér stað en fljótlega fjaraði
undan skipinu og tókst því ekki
að losa það fyrr en á flóðinu
morguninn eftir, eða um tólf
klukkustundum eftir að það tók
niðri. Ahöfn Reykjafoss var
aldrei í neinni hættu.
Eftir að Reykjafoss hafði
Reykjafoss á strandstað í innsiglingunni til ísafjarðarhafnar aðfaranótt miðvikudags í síðustu viku.
verið losaður af strandstað, lestaði vörur. Skipið beið um veðurofsans en hélt síðan skemmdir urðu á skipinu.
lagðist hann að bryggju og tíma átekta á Isafirði vegna áleiðis til Akureyrar. Engar
Bæjarstjórn ísafjarðar boðaði tii aukafundar vegna atburðanna á Fiateyri
Bæjarstjórn ísafjarðar ákvað á aukafundi sínum á föstudag að veita
Fiateyringum aiia þá aðstoð sem möguiegt er.
BÆJARSTJÓRN ísatjarðar
samþykkti samhljóða á auka-
fundi sem boðað var til síð-
degis á föstudag, að bjóða Flat-
eyrarhreppi alla þá aðstoð sem
kaupstaðnum er unnt að veita
við endurreisnarstarfið. Við
upphaf fundarins ávarpaði for-
seti bæjarstjórnar, Kolbrún
Halldórsdóttir, fundinn og
minntist hinna hörmulegu at-
burða sem áttu sér stað á Flat-
eyri, aðfaranótt 26. október sl.
Viðstaddir stóðu upp til að
votta hinum Iátnu, aðstand-
endum þeirra og Flateyringum
virðingu sína. Þá flutti forseti
samúðarkveðju til Flateyringa
frá vinabæ ísafjarðar á Græn-
landi, Nanortalik.
Smári Haraldsson, bæjar-
fulltrúi Alþýðubandalagsins,
sagði á fundinum að byggðir á
Vestfjörðum ættu í vök að
verjast og áföll sem þessi væru
kannski banabiti þeirra, þó að
vonir hans stæðu til annars, og
hvatti hann menn til að standa
saman að uppbyggingu þessa
landfjórðungs. Magnús Reynir
Guðmundsson, varabæjarfull-
trúi Framsóknarflokksins,
sagði að skyldur Isafjarðar-
kaupstaðar væru miklar á
stundum sem þessum og vildi
hann láta kanna hvort mögu-
leiki væri áaðflýta opnunjarð-
ganganna undir Breiðadals- og
Botnsheiði í öryggiskyni. Þá
vildi hann láta kanna hvort til
væru lausar íbúðir á Isafirði til
handa þeim, sem stæðu hús-
næðislausir á Flateyri, auk þess
sem hann hvatti bæjarstjórnina
til að leita allra leiða til að
verða Flateyringum að sem
mestu félagslegu liði.
A fundinum var samþykkt
að fela bæjarráði ísafjarðar
yfirumsjón með verkinu og á
það að kalla til liðs við sig hina
ýmsu aðila sem geta orðið að
liði í þessu máli. Guðrún
Stefánsdóttir, bæjarfulltrúi
Kvennalistans, hvatti fundar-
menn til að gleyma ekki ungl-
ingunum á Flateyri, og taldi að
borið hefði á slíku eftir snjó-
flóðin í Súðavík.
Eftir harðar umræður um raf-
magnstruflanirnar á Vest-
fjörðum í síðustu viku, sendi
bæjarráð Isafjarðar eftirfarandi
áskorun til stjórnar Orkubús
Vestfjarða: ,,Bæjarráð ísa-
tjarðar skorar á stjóm Orkubús
Vestfjarða að vinna bráðan bug
á því ófremdarástandi sem
alltof oft skapast vegna ónógs
varaafls á Isafirði.”
Opnun jarðganganna undir Breiðadais- og Botnsheiði f öryggisskyni
Á BÆJARSTJÓRNARFUNDI á ísafirði síðastliðinn föstudag kom fram ósk varabæjarfulltrúa
Framsóknarflokksins um að kannað yrði hvort möguleiki væri á að flýta opnun jarðganganna
undir Breiðadals- og Botnsheiðar í öryggisskyni. Vegagerðin opnaði jarðgöngin fyrir umferð
í síðustu viku, svo hægt væri að koma björgunarliði til Flateyrar á sem skemmstum tíma eftir
að snjóflóðið féll á porpið.
Áætlað er að opna göngin fyrir bráðabirgðaumferð 20. desember næstkomandi, I líkingu
við það sem var gert við legginn undir Botnsheiði á sínum tíma. Göngunum verður síðan
lokað fyrir umferð næsta sumar, og þau kláruð endanlega á haustmánuðum 1996. Björn
Harðarson, hjá Vegagerðinni sagði að erfitt væri að flýta endanlegum frágangi á jarð-
göngunum. ,,Það skiptir meginmáli að hafa þau opinyfir veturinn, það skiptir minna máli þó
lokunin næsta sumarverði aðeins lengri. Við leggjum alla áherslu á að hafa opið í vetur, en
það er ekki svigrúm til að klára göngin mikið fyrr, það er keppst við en hver dagur sem
umferð er á göngunum veldur seinkun,” sagði Björn.
Jarðgöngin voru opnuð þrjá daga í síðustu viku, vegna atburðanna á Flateyri, en hafa að
öðru leyti verið lokuð allri umferð. Skamma stund tók að gera göngin fær umferð í síðustu
viku aó sögn Björns. „Menn höfðu andvara á sér og það var lítið mál að tæma göngin. Það
var kannski klukkutíma vinna. En þessi mál eru í skoðun hjá Vegamálastjóra og stjórnmála-
mönnum, hvað tryggi bestu samgöngur á milli staða næstu mánuðina, en það liggur ekkert
fyrir enn,” sagði Björn að lokum.
Vegamáiastjóri er með vetrarsamgöngur á norðanverðum Vestfjörðum
í athugun.
6
MIÐVIKUDAGUR 1. NÓVEMBER 1995