Bæjarins besta - 01.11.1995, Blaðsíða 11
Snjófíóðiö á Flateyrí
Kristján Jóhannesson, Hinrik Kristjánsson, fram- Magnea Guðmunds- Einar Oddur Kristjáns-
sveitarstjóri á Fiateyri. kvæmdarstjóriKambs. dóttir, oddviti. son, aiþingismaður.
Hreppsnefnd F/ateyrarhrepps boðaði tii
borgarafundar um má/efni byggðar/agsins
Hrepps-
nehid
vill byggja upp að nýju
á neðrl hluta eyraiinnar
HREPPSNEFND Flateyrarhrepps boöaði til borgarafundar siðastliðinn sunnudag kl. 17, þar
sem farið var yfir stöðu mála í byggðarlaginu sem og framtíðaráform hreppsnefndarinnar
varðandi uppbyggingu staðarins. Um 200 Flateyringar mættu til fundarins auk fundarboðenda og
nokkurra gesta á vegum hreppsnefndar. Þar var einnig þingmaður Vestfirðinga, Einar K.
Guðfinnsson, formaður samgöngunefndar Alþingis, sem falið var að reka erindi fyrir hrepps-
nefndina innan stjómkerfisins. Einar Oddur Kristjánsson, alþingismaður og íbúi á Flateyri, setti
fundinn og bað viðstadda að minnast látinna vina og ættingja með einnar mínútu þögn. Hann tjáði
síðan fundannönnum að fjölmiðlar myndu fylgjast með fundinum en óskaði síðan eftir fjarveru
þeirra um leið og fundarmönnum yrði gefinn kostur á að koma með fyrirspurnir til hrepps-
nefndarinnar og annarra gesta sem voru á vegum hennar á fundinum.
Kristinn Tómasson, sér-
fræðingur á geðdeild Lands-
spítala Islands tók fyrstur til
máls og fjallaði um streitu, af-
leiðingar hennar og aðgerðir
til að vinna bug á henni.
Kristinn sagði fundarmönnum,
sem flestir áttu um sárt að
binda, að mikilvægt væri að
reyna að hugsa rétt og láta sér
líða vel þrátt fyrir alla þá erfið-
leika sem á dyndu.
Skolastarf hófst að
nýju á mánudag
Magnea Guðmundsdóttir,
oddviti Flateyrarhrepps, þakk-
aði Flateyringum fyrir sam-
stöðuna sem og björgunar-
sveitarmönnum fyrir það ómet-
anlega starf sem þeir hafa lagt
af hendi. „Við finnum kraftinn
frá fólkinu í landinu. Við
verðum að vera róleg, ná áttum
og taka síðan höndum saman.
Mín hugsun er að halda áfram
uppbyggingu á staðnum og ég
hef þá trú að það sé einnig
ykkar hugsun,” sagði Magnea,
en mikið hefur mætt á henni
frá því snjóflóðið féll á Flat-
eyri aðfaranótt miðvikudags,
þar sem sveitarstjórinn var
erlendis í sumarleyfi.
Magnea sagði að hrepps-
nefnd hefði fundað fyrr um
daginn og kvatt nokkra menn
til skrafs og ráðgerða, þ.á.nt.
Jón Gauta Jónsson, sem settur
var sveitarstjóri í Súðavík, eftir
að snjóflóð féll á þorpið þann
16. janúar síðastliðinn. Hún
sagði ennfremur að ákveðið
hefði verið að hefja skólastarf
að nýju á mánudag, og yrði
skólanum skipt í tvo 10 manna
hópa. Öðrum hópnum yrði
kennt í verkalýðshúsinu, fyrir
ofan sparisjóðinn, og hinum á
bókasafni staðarins, sem er til
húsa í húsnæði sveitarstjórnar
Flateyrarhrepps. Magnea sagði
ennfremur að fjölmargir Flat-
eyringar væru nú húsnæðis-
lausir og yrði því gerð könnun
á þörfinni strax eftir helgi, en
hún mun hafa yfirumsjón með
því verki.
Flateyrarhreppi hafa boðist
nokkrir sumarbústaðir til láns
og geta a.m.k. þrír þeirra verið
komnir til staðarins innan 10
daga eða í byrjun næsta mán-
aðar. „Okkar bíður ótal verk-
efni að leysa og það er mín ósk
að við getum leyst þau saman,
því lífið heldur áfram,” sagði
Magnea.
Mikið verk
framundan
Kristján Jóhannesson, sveit-
arstjóri á Flateyri, sem var í
sumarleyfi á Flórída, þegar
hörmungarnar dundu yfir,
vottaði viðstöddum samúð sína
sem og fjölskyldu sinnar og
sagði að þrátt fyrir að hann
hafði verið fjarri heimabæ
sínum þegar snjóflóðið féll,
hefði hugur hans verið heima.
Sagði liann það einstaklega
athyglisvert hvað allir íbúar
Flateyrar hefðu staðið sig vel.
„Snjóflóðið markaði stórt
skarð í byggðina okkar og
kollvarpaði öllum þeim hug-
myndum sem sveitarstjórnin
hafði unnið eftir. Framundan
bíður okkar því mikið verk,”
sagði Kristján.
Hann sagði að ákveðið hefði
verið að hefja starfrækslu leik-
skólans að nýju í þessari viku
og hefði honum verið valinn
staður að Hafnarstræti 13, og
hefur Samband íslenskra sveit-
arfélaga tekið að sér að útvega
hreppnum þrjár leikskóla-
fóstrur til starfa, svo að hið
daglega líf yngstu barnanna
komist sem fyrst í samt lag.
Bensínstöð staðarins gjör-
eyðilagðist í snjóflóðinu og
tjáði Kristján fundarmönnum
að ákveðið hefði verið að opna
nýja afgreiðslu strax á mánu-
dag við birgðastöð Essó, sem
stendur á hafnarbakkanum. Þá
gat hann þess að vilyrði hefði
fengist frá ríkisstjórninni fyrir
nýrri bráðabirgða innkeyrslu í
bæinn, en hún mun að hluta til
verða á vamargarði sem byggð-
ur hefur verið við höfnina.
Engin byggð ofan
Tjarnargötu
Kristján sagði ennfremur að
hreppsnefnd hefði ákveðið að
láta hefja að nýju vinnu við
gerð nýs hættumats fyrir Flat-
eyri svo að þeir sem vildu búa
áfram á staðnum gætu það án
nokkurrar hættu en það var ein-
róma álit hreppsnefndar að
hefja uppbyggingu að nýju á
neðri hluta eyrarinnar. Þá vill
hreppsnefnd láta reisa nýja
varnargarða fyrir ofan byggð-
ina en í hugmyndum hrepps-
nefndar er gert ráð fyrir að
engin byggð verði fyrir ofan
Tjamargötu. Verði svo mun bú-
seta í 40-50 íbúðarhúsum
leggjast af. Almannavarnaráð
ríkisins fundaði tneð hrepps-
nefnd á mánudag og var frekari
ákvörðunar að vænta í fram-
haldi af þeim fundi, sem og
fundi með Skipulagi ríkisins,
en fulltrúarþaðan voru væntan-
legir til Flateyrar í byrjun
vikunnar. „Eyrin verðurendur-
Um 200 manns voru a borgarafundinum sem sveitarstjórn Fiateyrarhrepss
boðaði tii í mötuneyti Ke.
skipulögð neðan Tjarnargötu
með það að markmiði að þar
geti risið byggð sem hýst getur
4-500 manns. Til þess að það
geti gerst þarf að leysa ýmis
mál og hefur Einari K. Guð-
finnssyni, alþingismanni Vest-
firðinga og formanni sam-
göngunefndar Alþingis, verið
falið að leysa það mál,“ sagði
Kristján.
Vinna hafin hjá
Kambi
Kristján sagði ennfremur að
Einar Kristinn hefði óskað eftir
því við Hafnarmálastjóra, að
Holtsbryggja yrði endurbyggð
og vonaðist hann til að við
þeirri beiðni fengjust jákvæð
og fljót viðbrögð. „Öll vinna
til að koma mann- og atvinnu-
lífinu í gang er hafin og horfur
eru þokkalegar. Samstaða er
það sem gildir,” sagði Kristján
Jóhannesson, sveitarstjóri á
nbs hf. á sunnudaginn.
Flateyri. Hinrik Kristjánsson,
framkvæmdastjóri Kambs hf„
sagði á fundinum að ákveðið
hefði verið að hefja vinnu að
nýju í frystihúsinu á mánudag,
en þar mun vera til fiskur sem
veiddist fyrir snjóflóð. Kambur
gerir út fjóra báta og vonaðist
Hinrik til að flestir þeirra yrðu
komnir á sjó í vikunni. „Við
erum staðráðnir í að halda upp-
byggingunni áfram, þrátt fyrir
áfallið. Látum því ekki deigan
síga,” sagði Hinrik.
Nýtt hættumat
ofarlega í huga
fólks
Einar Oddur Kristjánsson,
sagði í samtali við blaðið, eftir
lokaðan fund með bæjarbúum,
að spurningarnar hefðu verið
margar og engin ein hefði verið
áberandi. „Fólk vildi vita
hvernig hættumatið væri statt,
hvernig vinnan við það færi
fram, þá var spurt uin skóla-
málin sem og önnur mál er
varða sveitarfélagið. Við gerð-
um fólkinu grein fyrir því að
við yrðum að bíða eftir hættu-
matinu og fyrr en það lægi fyrir
eða útlínur þess, yrðu engar
ákvarðanir teknar. Það var
mjög mikið jafnvægi á fund-
inum og mikil ró.
Margir heimamanna höfðu
orð á því að fram yrði að koma,
þvílíkt afreksfólk hefði komið
til björgunarstarfa á staðnum
og hversu vel vinna þeirra hefði
gengið. Það voru allir á einum
rómi um þessi mál og það var
ntikið þakklæti í huga fólksins
til þessara einstaklinga.” Að-
spurður um hug bæjarbúa til
uppbyggingar á staðnum sagði
EinarOddur: „Viðsögðum sem
svo. Nú fer enginn fram úr
sjálfum sér, við tölum ekki um
þá hluti í dag. Við tökum eitt
fyrir í einu. Við höfum verið í
því að hugga og hjálpa," sagði
Einar Oddur.
MIÐVIKUDAGUR 1. NÓVEMBER 1995 11