Bæjarins besta - 01.11.1995, Qupperneq 12
Snjóflóðið á Flateyrí
Ráðherrar og þingmenn
könnuðu vegsummerki
á Flateyri
Atvinnulífið
í gang á ný
DAVÍÐ Oddsson, forsætisráðherra og Páll Pétursson, félags-
málaráðherra komu til Flateyrar á föstudag ásamt þingmönnum
Vestfjarða og embættismönnum, tii að kanna aðstæður á snjó-
flóðasvæðinu sem og til að ræða við heimamenn. Almanna-
varnanefnd staðarins hélt formlegan fund með gestunum, en að
honum loknum fóru menn um svæðið þar sem snjóflóðið féll.
Hættuástandi var aflýst á Flateyri um miðjan dag á föstudag,
eftir að snjóflóðaeftirlitsmenn höfðu kannað aðstæður í fjallinu
um morguninn, sem og vegna þess að veðurspá var góð fyrir
næstu daga. Snjóflóðasvæðið verður þó lokað áfram en fólk fær
að fara í þau hús, sem eru heil á efri hluta eyrarinnar. Mikið
hreinsunarstarf bíður á Flateyri og standa vonir manna til að það
verk muni ganga vel þrátt fyrir að ítrustu varfærni verði gætt.
Stjóm Kambs ákvað á laugardag að hefja vinnslu að nýju í
fyrirtækinu á mánudag sem og að stefna að þvf að koma bátum
fyrirtækisins á sjó sem fyrst. Á milli 120 og 140 manns hafa
unnið hjá fyrirtækinu að undanförnu.
Davíð Oddsson, forsætisráðherra og Páll Pétursson, félagsmálaráðherra skoðuóu aðstæður á
F/ateyri á 1áugardag ásamt nokkrum embættismönnum, þingmönnum Vestfjarða og sveitarstjórn.
Páii Pétursson, féiagsmáiaráðherra og Davíð Oddsson, forsætisráðherra funduðu með hreppsnefnd
Fiateyrarhrepps um málefni staðarins á iaugardag. Hér eru þeir ásamt Einari Oddi Kristjánsyni,
aiþingismanni sem býrá Fiateyri. Á myndinni hér tii vinstri má sjá forsætisráðherra skoða eyðiiegginguna
sem varð á Fiateyri. Giöggt má sjá að forsætisráðherra var brugðið við þá sjón sem blasti við.
Ágúst Oddsson, héraðs/æknir skrifar
EINS og flestum er kunn-
ugt um hefur áfallahjálp
verið ríkur þáttur í hjálpar-
starfinu eftir náttúruham-
farirnar á Flateyri. Áfalla-
hjálp beinist fyrst og fremst
að því að fyrirbyggja alvar-
leg og langvinn sálræn eftir-
köst í kjölfar áfalla. Áfalla-
hjálp nær til þeirra sem
tengjast slysinu beint eða ó-
beint, s.s. hinna slösuðu,
þeirra sem bjargast án
áverka, vandamanna, sjónar-
votta, vinnufélaga. hjálpar-
aðila og stjórnenda hjálpar-
aðgerða.
Áfallastreituviðbrögð ráð-
ast af eðli og styrk áfallsins
ásamt þoli einstaklingsins
almennt eða gagnvart sér-
stökum streituvöldum. í fyrstu
eru mest áberandi líkamleg við-
brögð af ýmsum toga s.s.
skjálfti, hraður hjartsláttur,
sviti, ógleði, kviðverkir, köfn-
unartilfinning, hröð öndun og
svimi. Atferlið er í upphafi
allajafna Iítið afbrigðileg en
þó getur borið á óróleika, of-
virkni eða sinnuleysi.
Tilfinningaleg viðbrögð eru
lítil í byrjun en ryðja sér rúms
þegar frá líður sem kvíði,
hræðsla, reiði, sorg eða sektar-
kennd og lita minningarnar um
áfallið. Skynjun og rökhugsun
truflast gjarnan. Þetta hefur í
för með sér óraunveruleikatil-
finningu. brenglað tímaskyn,
tilhneigingu til að misskilja,
mistúlka og draga rangar
ályktanir. Hér er mikilvægt að
gera sér grein fyrir að um er að
ræða eðlileg viðbrögð eðlilegs
fólks við óeðlilegum aðstæð-
um.
Á fyrstu vikum og mánuðum
eftir áfallið færist hæfileikinn
til að takast á við tilfinningar,
daglegt líf og starf smám saman
í eðlilegt horf. Á þessu stigi er
mikilvægt að koma auga á
einstaklinga sem eru í áhættu-
hópum og gera fyrirbyggjandi
ráðstafanir.
Á Flateyri og Isafirði hefur
áfallahjálparhópur verið starf-
andi frá slysdegi. Áfalla-
hjálparstarfi verður haldið
áfram í heilsugæslustöðinni á
Flateyri enn um sinn. Á Isa-
firði er opin móttaka áfalla-
hjálparhóps á Fjórðungs-
sjúkrahúsinu. Við viljum
hvetja alla þá sem telja sig
þess þurfa að hafa samband
við okkur sem fyrst og við
munum aðstoða eftir megni.
f.h. áfallahjálparhóps,
Agúst Oddsson, héraðs-
lceknir.
EIMSKIP
Eimskipafélag íslands h.f., óskar eftir
tilboöum i smíöi undirbyggingar undir
fyrirhugaöa vörugeymslu aö Sindragötu
15 á ísafiröi.
Helstu kennitölur verksins eru:
Grunnflötur byggingar 500 m2
Fyllingar 180 m3
Steypumót 120 m2
Steinsteypa 100 m3
Bending 5.000 kg
Lagnir í jöröu 160 m
Undirbyggingu Ijúki 15. desember
1995 en botnplötu í mars 1996.
Útboösgögn verða afhent á skrifstofu
umboösmanns EIMSKIPS á ísafirði,
Aöalstræti 24, frá og meö mánu-
deginum 30. okt. 1995. Tilboö veröa
opnuö á sama staö þriójudaginn 7.
nóvember 1995, kl. 11:00.
12 MIÐVIKUDAGUR 1. NÓVEMBER 1995