Bæjarins besta - 01.11.1995, Qupperneq 14
ég sat við hliðina á strák sem
var í bekknum og hann varð að
læra brjóstagjöf, rétt eins og
stelpumar. Brjóstagjöfernokk-
uð sem maður lærir í gegnum
móðurhlutverkið en ekki í
skóla, og það var ýmislegt
fleira sem við vorum ósátt við.
Eftir að hafa staðið í þessu
stríði við skólann, var sjálfs-
mynd mín sem þroskaþjálfa
ekki góð, þegar ég útskrifaðist,
og það sama átti við um marga
bekkjarfélaga mína.”
Peningum var dælt
í malaflokkinn
Hvert lá svo leiðin hjá nýút-
skrifuðum þroskaþjálfanum ?
„Ég er mjög jarðbundin
manneskja og á þessum tíma
var ég ákaflega flughrædd. Ég
hafði aldrei farið til útlanda,
en mig langaði til að vinna
erlendis og kynnast nýju um-
hverfi. Það sem stoppaði mig
af var flugið. Ég gat ekki
hugsaðméraðfaraámilli landa
í flugvél, og ég er það þrjósk
að ef ég hef bitið svona lagað í
mig, breyti ég því ekki. Ég fór
því aftur á Lyngás á meðan ég
var að átta mig á því hvað ég
vildi. Þar var ég í eitt ár og
flutti svo til Borgarness, en þá
voru lögin um málefni fatlaðra
komin, og svæðisstjórnirnar
voru að myndast. Með þeim
var þjónusta við fatlaða færð í
heimahérað, fatlaðir áttu ekki
lengur að þurfa að flytjast til
Reykjavíkur til að fá þjónustu.
Mér fannst þetta spennandi
og réð mig sem forstöðumann
leikfangasafns, sem hafði það
hlutverk að veita fötluðum
bömum upp að sextán ára aldri,
þjónustu. Ég var fyrsti starfs-
maðurinn hjá þessari svæðis-
stjórn, og ég starfaði í Borgar-
nesi í tíu ár. Ég hef ekki miklar
mætur á breytingum í mínu
líft, en eftir á að hyggja voru
tíu ár alltof langur tími. Fimm
ár í starfi er hámark, ef þú vilt
vera fersk og hafa ánægju af
því sem þú ert að gera. Það á
sérstaklega við í málaflokki
sem gerir svona miklar kröfur
og tekur svona mikið af þér
sjálfri. Auðvitað er þetta ein-
staklingsbundið, en ég er að
byrja mitt fimmta ár hér, og er
farin að finna fyrir þessu.
A þessum tíu árum upplifði
ég miklar breytingar. Fyrstu
tvö eða þrjú árin var ég eini
starfsmaðurinn, en þá var farið
að gera meiri kröfur til þjónustu
við fatlaða. Peningum var dælt
í málaflokkinn á þessum tíma.
Það voru reistar stofnanir og
sambýli út um allt, og alltaf
hægt að fá pening, bæði í stofn-
kostnað og rekstur. I þau tíu ár
sem ég var þama, var stöðugt
flipp með peninga, það var
aldrei þessi innsýn að sýna
spamað eða aðhald, því það
voru nægir fjármunir til. Ég
horfði upp á það að ég ein réði
öllu, var bara drottning í ríki
mínu. Svo var ráðinn yfir-
maður, og allt í einu þurfti ég,
sem var vön að vera minn
eiginn herra, að fara eftir
reglum og hlýða yfirmann-
inum. Hann þurfti líka að skil-
greina sig sem yfirmann gagn-
vart mér og þama hitti and-
skotinn ömmu sína. Það voru
því hnútar í samstarfinu alla
tíð. A þessum árum fjölgaði
starfsmönnum við málefni
fatlaðra á Vesturlandi úr því
að ég var ein, og upp í að vera
um þrjátíu manns. Þá var meðal
annars búið að byggja upp sam-
býli, vemdaðan vinnustað, dag-
vistun og fjölga leikfangasöfn-
um. Þetta var orðið meiriháttar
apparat og allt í einu stóðum
við frammi fyrir því að þurfa
að skera niður í málaflokknum.
Auðvitað þurfti að gera það,
við urðum að taka þátt í niður-
skurði rétt eins og allir aðrir.
Þetta var mjög lærdómsríkur
tími, en líka mjög erfiður og
ég sé það eftir á, að ég átti að
hætta fyrr. í raun er ég ekki
enn orðin sátt við seinni hluta
þessa tíma.”
Svo taka Vestfirðir við, hvers
vegna?
„Síðustu tvö árin sem ég var
í Borgarnesi, fór ég aftur í
Þroskaþjálfaskólann, í fram-
haldsnám í stjómun, en ég var
ekki viss um að ég myndi endi-
lega halda áfram í þessum
málaflokki. Eins og náms-
tíminn hafði verið erfiður áður,
voru þessi tvö ár yndisleg og
því hafði ég ekki átt von á.
Þegar náminu var lokið, ákvað
ég að mig langaði til að vinna
við stjómun og starfsmanna-
hald af einhverju tagi. Ég vildi
ekki fara til Reykjavíkur og
vildi ekki vera áfram í Borgar-
nesi.
Staða framkvæmdastjóra
Svæðisskrifstofunnar á Vest-
fjörðum var laus, ég sendi bréf
og kynnti mig og viðbrögðin
voru mjög sterk, og mig minnir
að ég hafi verið ráðin í gegnum
síma. Magnús Reynir Guð-
mundsson var þá formaður
svæðisstjómar, hann réði mig
og með það kom ég. Ég hafði
aldrei komið hingað vestur
þegar ég réð mig í starfið, og
viðbrögðin hjá fjölskyldu og
vinum voru þau að nú væri ég
að grafa mig lifandi. I augum
fólks var þetta veðravíti.
Ég var ennþá mjög flug-
hrædd þegar ég réð mig, en lét
mig samt hafa það að fljúga
hingað. Ég kom í byrjun júlí
1991 og fékk glampandi gott
veður, sólskin og stafalogn.
Magnús Reynir tók á móti mér,
og sýndi mér það helsta. Hann
fór meðal annars með mig um
Oshlíðina, sem ég leit á sem
eitthvað hryllingsverk í nátt-
úrunni. Ég stoppaði hér í sólar-
hring, og ég féll gjörsamlega
fyrir Vestfjörðum. Ekkert
frekar fyrir Isafirði en öðru sem
ég sá, en fjöllin heilluðu mig
algjörlega og ég ákvað að ráða
mig hingað. Auðvitað fékk ég
oft andþrengsli og hugsaði
„Guð minn góður, hvað er ég
að gera, hvað er ég að taka að
mér?”, en ég sé ekki eftir því
að hafa komið hingað.”
Hvernig hefur þessi tími svo
verið?
„Hann hefur verið mjög lær-
dómsríkur, bæði mjög góður
en einnig erfiður. Þegar ég kem
hingað var þjónustan bundin
við Bræðratungu, en við þurf-
um að sinna öllum Vest-
fjörðum. Ég fór mjög hratt af
stað, ég var búin að sjá hvernig
þjónustan hafði byggst upp á
Vesturlandi og mér fannst
Vestfirðingar hafa borið skarð-
an hlut frá borði og ekki fengið
það sama og aðrir. Þetta er
búið að vera erfitt, því forverar
mínir í starfi höfðu stoppað
stutt við. Mér finnst eftir á, að
ég hafi farið fullhratt í upp-
bygginguna, því ég bara kýldi
á hana, „bjargvætturinn Lauf-
ey” mætt á staðinn. Ég fór um
Vestfirði, hitti sveitarstjórnar-
menn, fatlaða og foreldra
þeirra, og ég gleymi þessum
tíma aldrei. Þegar ég kom inn á
heimili fólks, var ég spurð að
því til hvers ég væri að koma,
fólk gerði engar kröfur til
þjónustu og hún var ekki til.
Má kannski kalla
mig lélegan
fjarmalastjornanda
Hvað hefur áunnist í mál-
efnumfatlaðra á þessum árum ?
„Það eru komnir starfsmenn
á öll þjónustusvæðin, á Pat-
reksfjörð, Reykhóla, Hólma-
vík. Það er boðið upp á skamm-
tímavistun á Patreksfirði,
Bolungarvík og Hólmavík. Við
veitum fólki sem býr út af fyrir
sig í fbúð, þjónustu. Svo hefur
bæst við ráðgjöf og stuðningur
við fatlaða og fjölskyldur
þeirra. Það eru um áttatíu og
fimm manns sem fá þjónustu
frá okkur. Við eigum sam-
kvæmt lögunum að sinna öllum
öryrkjum, en það hefur þróast
þannig að við sinnum því fólki
sem býr við hreyfihömlun,
þroskaheftingu og geðfötlun.
Aðrir öryrkjar, hafa ekki
leitað til okkar, þó svo þeim sé
það heimilt. Mér finnst ekki
eðlilegt að bara vegna þess að
þú sért skilgreind öryrki eða
þroskaheft, þá verðir þú að
tengjast einhverju sérkerfi. Það
á að fara eftir þínum vilja, við
erum þjónstustofnun og ef þú
vilt leita til okkar þá er það í
lagi, en okkar hlutverk hefur
þróast í að vinna fyrir þá sem
ekki geta unnið í sínum málum
sjálfir.
Ég vil ekki bera okkur saman
við önnur landssvæði, því allur
samanburður er svo erfiður, en
mér finnst við veita mjög góða
þjónustu í dag. Auðvitað er
alltaf hægt að gera betur, en
fólk þarf ekki lengur að flytja
til þjónustunnar. En hvað fjár-
muni varðar, hafa framlög til
málefna fatlaðra á Vestfjörðum
einungis aukist um átta hundr-
uð þúsund krónur síðan 1992.
Við gátum hagrætt töluvert og
þannig nýtt fjármagnið betur,
en í dag er verið að reka þessa
þjónustu í þremur og hálfri
milljón í mínus á hverju ári.
Ég er þeirrar skoðunar að ef
ég hefði beðið þar til peningar
fengjust, væri engin þjónusta
komin. Það má kannski kalla
mig lélegan fjármálastjórn-
anda, en ég tók þá ákvörðun að
keyra málaflokkinn í mínus,
til að sýna að þörfin ertil staðar.
Auðvitað fæ ég oft samvisku-
bit vegna þessa, því það er oft
kvartað frá ráðuneytinu. En ég
er sannfærð um að ef ég hefði
ekki tekið þessa afstöðu, væri
bara komin þjónusta við fatlaða
á Hóimavík og Barðastrandar-
sýslurnar sætu eftir. Við sitjum
uppi með það að þjónustan er
komin, þörfin er til staðar og
ráðuneytið verður að koma til
móts við okkur. Það er ekki
mikið að bæta þremur til
fjórum milljónum við framlög
okkar.”
Laufey hýr ein og hún segir
það vera val.
„Ég hef alltaf verið ein, og
fólk hváir svolítið þegar ég segi
að ég hafi aldrei verið í sam-
búð, en ég hef tekið þessa af-
stöðu í lífinu. Ég er í sjálfu sér
ekki búin að taka afstöðu til
framtíðar, en mér líður mjög
vel einni. Ég er ekki einfari, ég
umgengst fólk og veit ekkert
skemmtilegra en að fá vini
mína í heimsókn, eða að
heimsækja þá sjálf. Ég tók
þessa ákvörðun fyrir löngu
síðan og er ekki ósátt við hana.
En það er ekki endilega þar
með sagt að þetta sé það form
sem ég vil í framtíðinni.
Ég er mjög viðkvæm fyrir
því að vera kölluð piparjúnka
og upplifi það sem ákveðinn
dóm. Það er ákveðinn stimpill,
ég ber ekki mitt einkalíf á torg
og það eru fáir sem ég treysti
fyrir mínu einkalífi. Aðrir vita
ekki neitt, þannig vil ég hafa
það og mér finnst að ég eigi að
hafa leyfi til þess án þess að fá
á mig einhvem stimpil.”
Nú segirðu aðfimm ár í starfi
sé nœgilega langur tími, og þú
ert að hyrja fimmta árið hjá
Svœðisskrifstofu málefna fatl-
aðra, hvað tekur við eftir árið?
„Ég hef mikið velt því fyrir
mér hvort þetta sé það sem ég
vil gera í framtíðinni. Það er
búið að vera ákaflega mikið að
gera, og á tímabili í fyrravetur
komst ekkert að nema vinnan.
Mér fannst ég vera að svíkjast
um þegar ég fór í hádegismat
eða hætti í vinnunni á réttum
tíma. Ég missti í raun stjórn á
mér í vinnunni og var vakandi
og sofandi að hugsa um hana.
Þetta var mjög lærdómsríkt að
fara í gegnum þetta, en ég vildi
heldur vera laus við að hafa
þessa reynslu á bakinu, og
þakka alls ekki fyrir hana. Ég
þurfti að taka sjálfa mig mjög
rækilega í gegn og fór á
endanum á heilsuhælið í Hvera-
gerði til að ná mér niður. Ég
tók það með trompi eins og allt
annað, og hvíldi mig í fimm
vikur, en ég hafði aldrei tekið
mér langt frí frá vinnunni fyrr.
Ég var lengi að ná mér niður úr
vinnunni, fyrst á þriðju viku
komu tímar þar sem ég hugsaði
ekki um vinnuna, á fjórðu viku
hugsaði ég alls ekkert um
vinnuna og þá fimmtu hugsaði
ég yfirhöfuð ekki neitt.
Ég stend frammi fyrir því að
ég vil ekki lenda í þessu mynstri
aftur, og er þess vegna að hugsa
um hvort það sé ekki kominn
tími á mig í þessu starfi, ef svo
má segja. Mig langar í nám, og
vil gjaman læra sálarfræði. Ég
tel mig hafa mikla innsýn í
mannlegt eðli og tel mig geta
orðið góðan sálfræðing. Þetta
er líka spurning um framtíðar-
áform, ég vil ekki verða gamall
þroskaþjálfi, ég held að það sé
lítið spennandi. En ég hef ekki
tekið neinar ákvarðanir og ef
ég fer héðan, byrja ég á að fara
í leyfi í eitt ár.
Búseta mín á Vestfjörðum
hefur mótað mig mjög. Veður-
farið og umhverfið hefur gert
það að verkum að ég hugsa
mun oftar um það hvers virði
lífið er Mér finnst ég oft of
langt frá fjölskyldu minni og
vildi gjaman að hluti af henni
vildi búa hér fyrir vestan. Mér
hefur alltaf liðið vel hér, þótt
ég hafi að sjálfsögðu átt mínar
erfiðu stundir. Mér þykir mjög
vænt um Vestfirði, ekki bara
Isafjörð, ég er ekki meiri Is-
firðingur en Vestfirðingur.
Kannski vegna þess að ég hef
átt kost á að fara um alla firðina,
norður úr Arnesi og suður að
Hvallátrum, og fengið að
kynnast lifnaðarháttum og
búsetuskilyrðum fólks. Mér
finnst allir staðir á Vestfjörðum
fallegir og mér finnst vænna
um Vestfirðina en nokkurn
tímann Snæfellsnesið. Þó ég
beri hlýhug til Snæfellsnessins
er ég miklu stoltari af Vest-
fjörðum. Mér finnst oft fylgja
því forréttindi að búa hér, og
hér hef ég kynnst besta veðri á
landinu, eins og logninu. Ég
sagði gjarnan þegar ég flutti
hingað frá Borgamesi, að ég
hafi dottið á andlitið fyrstu
dagana, því það vantaði mót-
stöðuna. Það sem ég hef á-
hyggjur af í þessu samfélagi,
er hversu mikil ósamstaða er
meðal fólks. Samstaðan er fyrir
hendi ef eitthvað bjátar á, en
hún er ekki til staðar dags dag-
lega, og það stendur þessum
byggðum fyrir þrifum.
Ég er orðin mjög viðkvæm
fyrir neikvæðum viðhorfum til
Vestfjarða. Fjölmiðlar hér fyrir
vestan eru ekki sparir á nei-
kvæða umræðu og eðlilega
mótar það viðhorf annarra
landsmanna til okkar. Ég var í
Reykjavík í vikutíma á dög-
unum, og sem dæmi um hve
viðhorf annarra í garð okkar er
orðið neikvætt, má nefna að á
þessum tíma komu fréttir um
að Isafjarðarkaupstaður vildi
taka á móti flóttamönnum. Mér
fannst þetta mjög jákvætt mitt
í fréttum um kvótasvindl og
norðaustanáttir, en það sem
stóð eftir í umræðunni í Reykja-
vík var að það væru svo mörg
hús tóm hér. Það mundi enginn
eftir því að við ætluðum að
taka á móti flóttafólkinu.”
Ekki tilbuin til að
vinna lengur í
sérkerfi
Hvernig líst þér á þá hreyt-
ingu sem framundan er að
sveitarfélögin taki við mál-
efnum fatlaðra í stað þess að
þau séu á hendi ríkisins?
„Mér finnst það mjög eðli-
legur hlutur og með þeirri
skiptingu sem er á milli þjón-
ustusvæða eru sveitarfélögin
orðin meira ábyrg fyrir þessari
þjónustu. Mín skoðun er hins
vegar sú að málefni fatlaðra
eigi að fara undir fjórðungs-
sambandið og að við veitum
þjónustuna á kjördæmavísu í
stað þess að einstök sveitarfé-
lög sjái um hana. Þessi hug-
mynd hefur verið reifuð í
tengslum við yfirtöku Fjórð-
ungssambandsins á fræðslu-
skrifstofunni. Þetta er hugsað
þannig að málefni fatlaðra
14 MIÐVIKUDAGUR 1. NÓVEMBER 1995