Bæjarins besta - 01.11.1995, Page 17
Óveðrið o/li umtaisverðu tjóni á dreifikerfi Orkubúsins
ijón á línum um átta-
h'u milliónir króna
ORKUBÚ Vestfjarða varð
fyrir umtalsverðu tjóni í af-
takaveðrinu sem gekk yfir
landið í síðustu viku. Tjón á
rafmagnslínum er talið nerna
um 80 milljónum króna, auk
þess sem talið er að keyrsla á
díselvélum muni kosta rnilli
40 og 50 milljónir króna þegar
upp er staðið. Orkubúið er ekki
tryggt fyrir skaða af þessu tagi,
að sögn Kristjáns Haralds-
sonar, Orkubússtjóra. ,,Við
höfum ekki fundið tryggingar
sem henta, þetta er lítill mark-
aður, aðallega tvö fyrirtæki sem
eru með dreifilínur og iðgjöld
verða að standa undir tjóna-
bóturn. Það er okkar mat að til
lengri tíma litið verði iðgjöld
hærri en tjónið sem við verðum
fyrir,” sagði Kristján.
27 staurastæður eru brotnar
eftir óveðrið, 118 stakir staurar
eru einnig brotnir og rúmlega
80 staurar til viðbótar eru
laskaðiráeinhvernhátt. Mestar
Skemmdir urðu í Amarfirði og
Önundarfirði, og einnig urðu
nokkrar skemmdir í Dýrafirði.
Rafmagnslínur frá Mjólkár-
virkjun skemmdust verulega,
en bráðabirgðaviðgerð lauk að-
faranótt mánudagsins síð-
asta.Vonir standa til að hægt
verði að ljúka fullnaðarviðgerð
í nóvembermánuði. Rafmagn
var skammtað hluta úr síðustu
viku. en því hefur nú verið
hætt.
Á Flateyri fór aðalspenni-
stöð Orkubúsins við Bót í snjó-
flóðinu, og er það stærsta ein-
staka tjónið sem Orkubúið varð
fyrir í óveðrinu. Skemmdir á
spennistöðinni og dreifikerfinu
á Flateyri eru taldar vera á milli
20 og 30 milljónir króna. Orku-
búið ntun leita eftir aðstoð
ríkisvaldsins vegna þess tjóns
sem ekki fæst bætt, en það er
ekki skyldugt til að liðsinna
Orkubúinu að sögn Kristjáns.
„I okkar rekstri gerum við ráð
fyrir áföllum, og það eru um
40 milljónir króna á ári sem
má reikna með í óvænt áföll,”
sagði Kristján.
Allt tiltækt starfslið Orku-
búsins, ásamt því sumarfólki
og vönu fólki sent hægt var að
smala saman, vinnur að við-
gerðum á dreifikerfinu. Frá
Landsvirkjun komu 5 mjög
vanir starfsmenn til aðstoðar,
og fleiri eru væntanlegir þegar
viðgerðum á Vesturlínu er
lokið. Lagfæringarnar ganga
því eins hratt fyrir sig og mögu-
legt er.
TRYGGVI GUÐMUNDSSON HDL
HAFNARSTRÆTI1 • ÍSAFIRÐI • b 456 3940 & 456 3244 • 0 456 4547
Fasteignaviðskipti
Ifc e* !.n I* !ai l ,
: ■~*-Írr
Pólgata 4: 76 m2 5 herbergja íbúð á 3. hœð l
þríbýlishúsi. Verð 3.500.00,-
Einbýlishús/raðhús:
Urðarvegur 25: 154,6m2. Hraun-
prýði. 5-6 herbergja íbúð að hluta á
tveimurhæðum í tvíbýlishúsi ásamt
bílskúr. Tilboð óskast.
Móholt 3 142,4 m2 einbýlishús á
einni hæð ásamt bílskúr. Skipti
möquleq á er minni eign. Verð
11.500.000,-
Stakkanes 4: 135m2 raðhús á
tveimur hæðum ásamtbílskúr. Skipti
möguleg á íbúð á eyrinni.Verð
10.500.000,-
Hlíðarvegur 6: 130 m2 einbýlishús
átveimurhæðumásamtóinnréttuðu
rislofti. Verð 7.000.000,-
Fagraholt 12:156,7m2 einbýlishús
á einni hæð ásamt bílskúr. Verð
13.500.000,-
Hlíðarvegur 48: 146,4 m2 ein-
býlishús á þremur pöllum. Fallegt
útsýni. Verð 8.500.000,-
Hjallavegur 3:183 m2einbýlishús á
tveimur hæðum ásamt innbyggðum
bílskúr. Verð 11.200.000,-
Miðtún 31: 190 m2 enda raðhús í
norðurendaátveimurhæöum. Skipti
á ódýrari eign koma til greina. Verð
11.000.000,-
Miðtún 47: 190 m2 enda raðhús í
suðurenda á tveimur hæðum ásamt
bílskúr. Möguleiki aðtaka íbúð uppí.
Verð 12.900.000,-
Tangagata 22: 140 m2 einbýlishús
á tveimur hæðum ásamt bílskúr.
Verð 11.500.000,-
Strandgata 17:120 m2 einbýlis-hús
á tveimur hæðum ásamt sólstofu og
bílskúr. Verð 4.500.000,-
4-6 herbergja íbúðir
Stórholt 11: 103 m2 íbúð á 3. hæð
í fjölbýlishúsi ásamt bílskúr. Verð:
7.800.000,-.
Bakkavegur 29: 126 m2 4ra her-
bergja sér hæð í tvíbýlishúsi. Tilboð
óskast.
Stórholt 13: 103 m2 4ra herbergja
íbúð á 3. hæð í fjölbýlishúsi ásamt
bílskúr. Skipti ástærrieignmöguleg.
Verð 7.800.000,-
Stórholt13: 103 m2 4ra her-bergja
íbúð á 2. hæð í fjölbýlishúsi ásamt
bílskúr. Verð 7.900.000,-
Hreggnasi 3: 87 m2 4ra herbergja
íbúð ásamt rislofti á efri hæð í
tvíbýlishúsi. Verð 3.800.000,-
Túngata 21: 77,8 m2 4ra herbergja
risíbúð á 3. hæð í þríbýlishúsi.
Inngangur sameiginlegur með 2.
hæð. Verð 5.000.000,-
Hafnarstræti 4: 176 m2 4ra her-
berjga íbúð á 3. hæð. Einnig 116,8
m2 5 herbergja íbúð á 2. hæð. Sex
milljón króna Húsbréf fylgja. Æskilegt
er að íbúðirnar seljist saman. Verð
10.800.000,-
Tangagata 20:70 m2 4ra herbergja
íbúð á neðri hæð í tvíbýlishúsi.
íbúðin er lausstrax. Verð4.400.000,-
Fjarðarstræti 38: 130 m2 5 her-
bergja íbúð á tveimur hæðum í
þríbýlishúsi. Skipti á minni eign
möguleg. Verð 6.500.000,-
Pólgata 5A: 121 m2 4-5 herbergja
íbúð á neðri hæð í þríbýlishúsi ásamt
bílskúr. Skipti á ódýrari eign mögu-
leg. Verð 6.000.000,-
3ja herbergja (búðir
Stórholt 11: 80 m2 íbúð á 2. hæð í
fjölbýlishúsi ásamt bílskúr. Verð
6.900.000,-.
Urðarvegur 78: 93,8 m2 íbúð á 2.
hæð til vinstri í fjölbýlishúsi. Verð
7.100.00,-
Aðalstræti 26a:116 m2 íbúð á efri
hæð í þríbýlishúsi.. Verð 2.500.00,-
Aöalstræti 15: 90 m2 íbúð á efri
hæð norðurenda í fjórbýlishúsi. sér
inngangur. Verð 3.200.000,-
Stórholt 7: 76 m2 íbúð á 2. hæð
fyrir miðju í fjölbýlishúsi. Verð
4.500.000,-
Stórholt 11:72,6 m2 íbúð á 1. hæð
í fjölbýlishúsi. íbúðin er laus strax.
Verð 4.500.000,-
Seljalandsvegur 52:64m2íbúðá
efri hæð í tvíbýlishúsi ásamt rúm-
góðu rislofti yfir allri íbúðinni. Verð
3.700.000,-
Hliðarvegur 33: 80 m2 íbúð
á neðri hæð í fjórbýlishúsi
ásamt bílskúr. Tilboð óskast.
2ja herbergja íbúðir
Seljalandsvegur 52: 64 m2 2ja
herbergja íbúð á neðri hæð í tví-
býlishúsi. Verð 2.200.000,-
Sundstræti 25: 52 m2 2-3ja her-
bergja íbúð á neðri hæð
í tvíbýlishúsi (aukaherbergi í kjall-
ara). Verð 2.000.000,-
Urðarvegur 80: 55,4 m2 íbúð
á jarðhæð í fjölbýlishúsi. Verð
4.600.000,-
Túngata 13: 57,1 m2 íbúð í kjallara í
þríbýlishúsi. Verð 2.200.000,-
Hlíf II, Torfnesi: 50 m2 íbúð á
jarðhæð í Dvalarheimili aldraðra.
Verð 6.200.000,-
Seljalandsvegur 84a: 85m2 einbýlishús á einni
hæð. Endurbyggt 1992. Verð: 6.900.000,-
Engar landanlr
álsallrði
ísafjarðarhöfn var þétt setin
skipum og bátum í síðustu viku,
en á þriðja tug skipa leituðu
þar vars fyrir því aftakaveðri
sem gekk yfir landið. Flest
skipin héldu til veiða síðast-
liðinn föstudag og því voru
engar landanir á Isafirði síðustu
vikuna.
Páll Helgi með
3,4 tonn
I Bolungarvík setti óveðrið
að sjálfsögðu strik í afla-
reikninginn, líkt og annars
staðar. I síðustu viku lönduðu
tveir línubátar, samtals 4,4
tonnum ítveimurróðrum. Guð-
ný var aflahærri báturinn, með
3,1 tonn í einum róðri. Þá
landaði einn dragnótarbátur,
Páll Helgi, 3,4 tonnum úr
einurn róðri. Þann 22. október
landaði Heiðrún 19,2 tonnum
af rækju í Bolungarvík, og
sama dag landaði Súlan 14,7
tonnum. Daginn eftir landaði
Hafberg 5,6 tonnum af rækju.
Rækjubátarnir eru að veiðum
og eru væntanlegir til hafnar á
fimmtudag eða föstudag.
34 tonn a!
rækju í Súðavík
Rækjuskipin Kofri og Haf-
fari frá Súðavík lönduðu á
ntánudag í síðustu viku, sam-
tals 34 tonnum, og héldu ekki
til veiða á ný fyrr en á föstu-
daginn var. Bæði skipin eru
væntanleg til lands síðari hluta
vikunnar
Léttaþurfti
Guðkjörgina
Eins og greint var frá hér í
blaðinu, hélt frystitogarinn
Guðbjörg áleiðis til Akureyrar
fyrir stuttu, þar sem fram fer
svokölluð ársskoðun á skipinu.
Áður en skipið var tekið upp í
hina nýju flotkví þeirra Akur-
eyringa, þurfti að létta skipið
um 150 tonn, þar sent lyftigeta
kvíarinnar er um 5.000 tonn.
Guðbjörgin er um 64 að
lengd og þykir óvenju stutt
miðað við þyngd. Reyndist
Guðbjörgin vera 2.850 tonn að
þyngd þegar búið var að taka
niður hlera, togvíra, veiðarfæri
og annað, samtals um 150 tonn.
MIÐVIKUDAGUR 1. NÓVEMBER 1995 17