Víðförli - 15.01.1983, Síða 4
Kirkjan og tónlistin:
JPað er svo margt
skemmtilegt að
Það hefir áreiðanlega ekki farið fram hjá
neinum, hve mjög það hefir færst í vöxt
upp á síðkastið, að tónlist af ýmsu tagi
sé flutt við messugerð í kirkjum a.m.k.
hér í höfuðborginni. Ekki má skilja orð
mín svo, að tónlistin hafi ekki átt upp á
pallborðið hjá kirkjunni og kirkjunnar
mönnum, því fer fjarri, orðið kirkjutón-
list segir nokkuð um það samstarf og
minna má á, að margt af hinum fegurstu
tónverkum, sem heimurinn á í fórum
sínum eru til orðin fyrir kirkjuna og í
kirkjunni.Naegir í því sambandi að nefna
nafn meistarans mikla Johan Sebastian
Bach.
Þrekvirki
En til skamms tíma hefir það verið svo í
okkar kæra landi, að kirkjukórarnir og
kirkjuorganistarnir hafa verið nær einir
um allan flutning tónlistar við guðs-
þjónusturnar. Þetta er gott og blessað
svo langt sem það nær og margt þrek-
virkið hefir verið unnið í kirkjusöng og
oft við erfiðar aðstæður. En þar sem best
tekst til, rísa upp stórgóðir kórar undir
stjórn dugmikilla manna og flytja borg-
urunum hvert stórverkið úr heimi tón-
bókmenntanna á fætur öðru. í fersku
minni eru „Hita-tónleikar“ kórs Lang-
holtskirkju, og flutningar sama kórs á
Jólaóratoríu J.S.Bachs allri eins og hún
lagði sig og þurfti tvö kvöld til nú um
áramótin. Ýmsir aðrir kirkjukórar hafa
gert sitt til þess að kynna og flytja fagra
tónlist bæði í guðsþjónustum og á sér-
stökum tónleikum. Nýr organisti í Hall-
grímskirkju hefir blásið lífi í tónhstar-
starfið þar með stofnum mótettukórs og
barnakórs og svona mætti lengi telja.
Öllu þessu ber að fagna, og fólkið sem
vinnur þessi störf þarf að vita að borg-
arnir kunna vel að meta að vandað er til
söngs í kirkjunum okkar og gleðst, þeg-
ar vel tekst þótt ekki sé alltaf hægt að
sýna það.
Hátíðahljómar
En nú hefir kirkjan boðið hljóðfæraleikn-
um inn til sín og beðið um samvinnu, og
þetta merkilega framtak forsvarsmanna
kirkjutónlistarinnar hefir vakið verð-
skuldaða athygli og alveg sérstaklega
nú um hátíðarnar. Margskonar
tónlistarflutningur, allt frá einleik og
upp í kvartetta hefir farið fram við guðs-
þjónustur, auk hins hefðbundna söngs
og heyrt hefi ég hljóðfæri taka undir
með orgelinu og kirkjukórnum og varð
mikill hátíðahljómur af. Ýmsir eru
hræddir við að hleypa of mikilli tónlist
inn í kirkjuna, en ég held að það sé
óþarfa hræðsla. Falleg tónlist hlýtur að
vera af hinu góða og Guði þóknanlegt.
Sagði ekki Joseph Haydn einhvern tíma
á átjándu öldinni, þegar hann hafði
samið eitthvert létt og fallegt verk fyrir
messu í kirkjunni, að það væri glaðlegt
vegna þess, að í hvert sinn og hann
hugsaði um Guð, fylltist hjarta hans
gleði?
Tónlist og kirkja eiga samleið
Því meir sem kirkjan og kirkjunnar fólk
gerir af því að laða til sín fagra tónlist og
góðan hljóðfæraleik, því betra, og
kannske nær boðskapurinn eyrum ein-
hverra sem ella hefðu setið heima. Tón-
listin og kirkjan eiga samleið og geta
styrkt hvort annað og í raun réttri ekki
án hvors annars verið. Nú er vaxandi
skilningur á því , hve mikilvægt er að
kirkja sé þannig búin að hægt sé að
flytja margs konar tónlist innan veggja
hennar. Bústaðakirkja hér í borg er sú
kirkja, sem undirrituð hefir hvað oftast
hlýtt á góða tónlist. Þar er gott að koma
og gott að sitja og þar hljómar vel bæði
söngur og hljóðfæraleikur. Þegar kirkja
Anna Snorradóttir.
getur, auk þess að sinna sínu hefð-
bundna hlutverki, þjónað sem tónleika-
hús, er vel farið og öll aukin tónlist í
messugerðinni sjálfri er tvímælalaust af
hinu góða og ber að fagna hverju því
framtaki, auknum áhuga og skilningi
sem hnígur í þessa átt.
Söngurinn
Um almennan söng í kirkjunni mætti
skrifa langt mál. Ég ólst upp við mikinn
söng og foreldrar mínir tóku bæði þátt í
kórstarfi og sáu um kirkjusöng um langt
árabil á Flateyri, en þá var engin kirkja í
þorpinu og oft notast við barnaskólann
til guðsþjónustu, en kirkjan var að Holti
í Önundarfirði. Þessi mikli söngur varð
til þess að ég lærði einhver ósköp af
sálmalögum og sálmum og hefi alla tíð
verið þáttlát fyrir það. Við vöndumst
einnig á að syngja með við messuna og
það þótti alveg sjálfsagt. En hvað á að
gera þegar kirkjukórinn syngur hvað
best? Á að skemma fyrir áheyrendum
með því að fara að reyna að fylgjast
með? Þetta er vaxandi vandamál finnst
mér, og það sem fælir fólk frá að syngja
með í messunni er það að megnið af
sálmunum er raddsett alltof hátt. Menn
springja á efstu tónunum, reyna að
syngja áttund neðar og allt verður þetta
hið vandræðalegasta væl. Það mætti
kannski hugsa sér að hluti sálmanna
væri ætlaður fyrir kirkjugesti og svo
syngi kórinn einhver fallega æfð verk
fyrir okkur hin til að hlusta á. En al-
mennur söngur verður aldrei í kirkjum
okkar fyrr en einhver góður maður tekur
sig til og lækkar a.m.k. langflesta þeirra
sálma sem sungnir eru við venjulegar
guðsþjónustur. Ég hefi verið við guðs-
þjónustur erlendis þar sem enginn kór
var en allir sungu með orgelinu. Það var
mikil upplifun og ógleymanlegt. En
kirkjukórarnir mega að sjálfsögðu ekki
missa sig, það þarf að finna einhvern
milliveg til þess að almennur söngur
verði að veruleika, því að án hans hefir
kirkjugesturinn ekki verið í kirkju nema
að hálfu.
Anna Snorradóttir
4 - VÍÐFÖKLI
l
*