Víðförli - 15.01.1983, Side 8

Víðförli - 15.01.1983, Side 8
Skólaspil frá Æfríku Hér á íslandi fara öll börn í skóla. Það þykir alveg sjálfsagt. En þannig er það ekki allsstaðar. í Afríku eru það forréttindi að ganga í skóla. Margir hinna fullorðnu kunna ekki að lesa, hvað þá börnin. Ef við tökum 100 börn sem fæðast í Afríku, kemur í ljós að líklega munu 21 þeirra deyja áður en þau ná skólaaldri, og 41 þeirra byrja aldrei í skólanum, en af þeim sem byrja eru líklega aðeins 10 sem ljúka skóla- námi. Hér er leikur sem kennir okkur sitthvað um skóla- göngu í Afríku auk þess sem hann er spennandi. 3-8 geta tekið þátt í leiknum, hver hefur sinn mola sem hann færir eftir númerum, eftir þvi sem teningskastið segir til um. 3. Þú deyrð áður ern þú nærð skólaaldri. Hættu leikn- um. 5. Þú verður að passa litla bróður þinn og verður að bíða í nokkur ár með að byrja í skóla. Bíður tvær umferðir. 6. Pabbi þinn er atvinnu- laus. Þú verður að vinna til að fjölskyldan fái að borða. Þú ferð því aldrei í skóla. Hættu leiknum. 8. Ef þú ert stúlka verður þú að hætta leiknum. Fjöl- skyldu þinni finnst að stúlkur þurfi ekki að fara í skóla. 25 23 22 20 19 26 25. Þú hefur verið heppinn. Þú hefur lokið 6. bekk en hef- ur hinsvegar ekki fengið nógu góðar einkunnir til þess að halda áfram, því aðeins er pláss fyrir fáa í 7. bekk. Þú hættir leiknum. 21. Þú hefur gengið í skóla í 4 ár. Foreldarar þínir hafa ekki ráð á að kosta þig lengur, því að yngri systkini þín þurfa að komast í skóla líka. Þú hættir leiknum. 17 18. Nú hefur þú gengið i skóla í þrjú ár. Ef þú ert stúlka, verðurðu að hætta í skólanum, þú átt að„ gæta yngri systkina þinna. Þú* hættir leiknum ef þú ert stúlka. 28 .30 31 9. Þú ert svo heppinn að fá pláss í skóla. Færðu þig fram um þrjá reiti. 16 10 11 12. Þú býrð 10 km. frá skól- anum og verður að fara þang- að gangandi, því að það er enginn skólabíll. Færðu þig tvo reiti afturá bak. 14 15. Þú hefur ekki peninga til þess að kaupa þér nýjan blýant. Þú ferð og safnar eldi- viði og selur, til þess að eign- ast hann. Bíður eina umferð. 13. Það eru 56 börn í bekk- num þínum. Það er ekki auð- velt að fylgjast með í tímun- um þegar börnin eru svo mörg og aðeins einn kennari. Þú bíður eina umferð. [NARt 27. Foreldrar þínir krefjast þess að þú farir að vinna, því að nú hefurðu verið 6 ár í skóla. Kannske færðu að fara aftur í skólann eftir nokkur ár. Þú bíður þrjár umferðir. 29. Þú tekur próf til þess að reyna að komast inn í menntaskóla. Kastaðu ten- ingnum aftur, ef hann sýnir 2, 4 eða 6 kemstu inn, annars verðurðu að hætta leiknum. 32. Þú verður að vinna eftir skólann á daginn til þess að hafa fyrir kostnaðinum, og tefst við það. Þú ferð afturá bak um tvo reiti. 33. Þú hefur lokið mennta- skólanum. Þið eruð aðeins örfá af þeim sem byrjuðuð í 1. bekk. Þér gengur vel og þú vilt verða verkfræðingur. 34. Það er ekki pláss fyrir alla sem vilja sækja háskól- ann. Kastaðu teningnum. Ef þú færð 6, færðu skólavist, ef þú færð 5 verðurðu að bíða tvær umferðir, ef þú færð 4 eða lægra verðurðu að hætta leiknum. 36. Þú hefur lokið háskóla- náminu, en það er ekki starf handa öllum sem ljúka því. Kastaðu teningnum. Ef 5 eða 6 kemur upp, færðu starf ef 3 eða 4 koma upp, verðurðu að leita að starfi erlendis og kemur ekki aftur og hættir þar með leiknum, ef 1 eða 2 koma upp, þú ert atvinnu- laus og verður að hætta leiknum. 38. Þú hefur fengið góða menntun og gott starf. Eru það ekki fáir sem eru jafn heppnir og þú. 8 — VÍÐFÖRU:

x

Víðförli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víðförli
https://timarit.is/publication/1508

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.