Víðförli - 15.01.1983, Síða 14
L
J
*
O
s
A
KROSSAR
Bót eda böl?
Víða um land hafa kirkjuvinir gefið ljósakross til kirkju sinnar gjarnan sem
minningargjöf um kæran ástvin. Hefur mönnum þótt gott að sjá bjartan krossinn
lýsa í myrkrum og þótt það táknrænt að kirkjan lýsti þannig veg.
En það eru fleiri fletir á þessu máli.
Ný andlit í kirkju á
Neskaupstað
Það er fljótt að skila sér í safnaðarstarf-
inu þegar námskeið eru haldin á heima-
slóðum, segir séra Svavar Stefánsson, á
Neskaupstað. 4 fullorðnir, þau Þröstur
Einarsson, verkstjóri, Ása Karlsdóttir,
skrifstofumaður, Guðrún Björnsdóttir,
fóstra og Hilmar Símonarson, málari,
vinna nú við barnastarf kirkjunnar auk
séra Svavars, og sóttu þau mjög gagn-
legt og skemmtilegt námskeið Æsku-
lýðsstarfs kirkjunnar sem haldið var í
haust.
„Börnin eru himinlifandi að sjá
þarna önnur andlit en mitt og margar
nýjar hugmyndir eru komnar til fram-
kvæmda. M.a. buðu börnin skyldfólki
sínu til messu á 1. sd. í aðventu og önn-
uðust þau þar ýmis atriði, enda orðin
kunnug messunni!' Var kirkjan þéttset-
in, að sögn sóra Svavars.
Umræður um friðarmál jukust og mjög
í bænum eftir hressilega hugleiðingu
Gerðar Óskarsdóttur, skólameistara, á
aðventukvöldi í kirkjunni. Lagði hún út
af því hefti Kirkjuritsins, sem fjallaði um
frið á jörðu, út frá eigin forsendum. Þótti
sumum fullmikið vera af pólitík í kirkj-
unni en öðrum hinsvegar að menn
mættu ekki vera svo uppteknir af eilífð-
inni að þeir gleymdu aðstæðum heims-
ins. Safnaðarheimilið sem Norðfirðingar
eru að byggja verður væntanlega tekið í
notkun í febrúar eða mars. Er þegar far-
ið að bóka þar ýmis mannamót. Ferm-
ingarbörn seldu jólakort til ágóða fyrir
heimihð og fékkst þar góður stuðningur.
Er þörfin brýn fyrir heimilið enda safn-
aðarstarf í vexti.
Nýjar kapellur í Fossvogi
og í Hafnarfirði
Nýlega hafa verið teknar í notkun kap-
ellur við kirkjugarðana í Hafnarfirði og í
Fossvogi. Eru þær fyrst og fremst ætlað-
ar til bænastunda vegna kistulagninga,
en einnig fyrir þær jarðarfarir þegar fáir
verða viðstaddir.
Kapellan í Fossvogi er í útbyggingu
Fossvogskirkju. Þar hefur undanfarið
verið aðeins ein kapella í notkun auk
kirkjunnar sjálfrar og hefur verið mjög
bagalegt þar sem fjöldi athafna fer þar
fram daglega. Ólafur Sigurðsson teikn-
aði kapelluna og er hún prýdd steindum
gluggum eftir Leif Breiðfjörð. Sr. Ólafur
Skúlason, dómprófastur, vígði kapell-
una á fyrsta sunnudegi ársins 1983.
Við kirkjugarð Hafnarfjarðar hefur
verið reist myndarlegt hús teiknað af
Þorvaldi S. Þorvaldssyni. Auk kapell-
unnar rúmar það vinnuaðstöðu fyrir
starfsmenn kirkjugarðanna, herbergi
fyrir presta o.fl. Reyndar er gert ráð fyrir
viðbyggingu síðar sem hýsa skal bæna-
húsið í framtíðinni, en núverandi kap-
ella er í bráðabirgðahúsnæði í bygging-
unni.
Séra Bragi Friðriksson, prófastur,
vígði kapelluna.
Öryggishliðin
Rafmagnseftirhtið hefur lengi haft
áhyggjur af ljósakrossunum og nýverið
hefur Óskar Hallgrímsson frá Raf-
magnseftirliti ríkisins komið á Biskups-
stofu og leitað eftir samstarfi við kirkju-
stofnanir til þess að koma í veg fyrir lé-
legan búnað og frágang neonljóskrossa
á kirkjum, sem víða er hættulegur.
Biskupsstofa vísaði málinu til kirkjulist-
arnefndar.
Jóhannes Kjarval arkitekt, einn
nefndarmanna, átti viðræður við raf-
magnseftirhtsmenn og hann segir svo
frá:
„í viðræðunum lýstu þeir hættum í
sambandi við rafbúnað kirkna almennt,
sem stafar sérstaklega af stopuhi notk-
un þeirra, t.d. brúa flugur fasa og mýs
vilja gera sér hreiður í raflagnagöngum.
Raflagnir eru iðulega gamlar með tjöru-
einangrun, sem er úr sér gengin. Raf-
lagnir eru yfirleitt lagðar þannig að þær
sjást ekki, s.s. undir hvelfingum, bak við
sperrur og í loftum þar sem kuldaskila
gætir mikið. Ljósaútbúnaður er víða
gamall og úr sér genginn. Viðhald
krossa er mjög dýrt og vilja þeir oft bila.
Sama er að segja um klukknaspil. Raf-
magnseftirlitsmenn fóru þess á leit að
Kirkjulistarnefnd sendi bréf til sóknar-
nefnda varðandi þetta efni.
Útlitið
Kirkjulistarnefnd hefur margoft fjallað
um ljósakrossa á fundum sínum og hef-
ur verið ítrekað á það bent, að ljósa-
krossar eru víða til mikilla lýta á kirkjum.
Eru þeir oftlega of stórir eða falla ekki að
byggingarlagi kirkjunnar og raskar
þannig hlutföllum á annars fahegri
byggingu.
Ef ennfremur er um lélega framleiðslu
og frágang að ræða, er nefndin eindreg-
ið sammála um að stöðva ætti notkun
krossanna. Sama gilti um lélegan raf-
magnsbúnað við kirkjuklukkur, þar
þyrfti tafarlaust að bæta úr. Lýstu nefnd-
armenn fullum stuðningi við aðgerðir
Rafmagnseftirlits ríkisis í þessu máli.
Kirkjuhstarnefnd mun fylgja þessu máh
eftir og mun skrifa sóknarnefndum.
Er mikU ástæða að kanna þessi mál
vel á hverjum stað. Hætta er á veruleg-
um skaða ef eldur brytist út af völdum
lélegs rafmagnsbúnaðar. Annarsvegar
eru margar kirkjur eftirhtshtlar dögum
saman og hinsvegar er þar oft mikiU
mannfjöldi samankominn.
Klukkur og klukkuspil
Ýmsir söfnuðir munu hafa hug á að afla
kirkjum sínum nýrra klukkna, en það
hefur löngum gengið erfiðlega. Bú-
staðakirkja í Reykjavík mun í vor taka í
notkun veglegar klukkur og klukkuspU.
Hefur Ottó Michelsen safnaðarfulltrúi
annast útvegun þessara muna og hefur
hann því viðað að sér margvíslegum
upplýsingum um útvegun, innflutning
og öryggisbúnað þeirra. Hefur Ottó góð-
fúslega lofað að miðla þeim upplýsing-
um til þeirra er áhuga hefðu.
*
Á
14- VÍÐFÖKLI,