Víðförli - 15.03.1994, Side 8
KIRKJUTÓNLISTAR
VIÐBURÐUR
Sameiginlegir tónleikar Unglingakórs Selfosskirkju
og Kórs Kórskóla Langholtskirkju og Selfosskirkju
dagana 19. og 20. mars sl. mega teljast til viðburða á
sviði kirkjutónlistar hérlendis.
Efnisskráin innihélt ýmis vel þekkt
kirkjuleg verk, sem kórarnir fluttu
prýðilega bæði saman og sitt í hvoru
lagi. Meginviðfangsefni kóranna var í
þetta sinn „Gloria“ eftir Antonio Vi-
valdi. Þekkt og fallegt kórverk við
undirleik kammersveitar. Gloria Vi-
valdis mun ekki áður hafa verið flutt í
heild af svo ungum söngvurum hér á
landi. Flutningur kóranna var með
miklum ágætum og ekki síður hinna
ungu söngvara, sem gengu fram fyrir
skjöldu í ein- og tvísöngsþáttum,
enda hafa gagnrýnendur fjölmiðlanna
lokið þar lofsorði á. Þetta er „fullorð-
ins“ verk, sem ýmsir kórar hafa
spreytt sig á og mættu vel una við
þann árangur, sem þarna náðist. Víð-
förli óskar kórfélögum og stjórnend-
um, þeim Glúmi Gylfasyni og Jóni
Stefánssyni til hamingju, ásamt öllum
þeim sem að baki þeim standa og gera
þetta uppeldisstarf mögulegt í kirkj-
unni.
Barnakóravakning
Þessi árangur er uppskera af mark-
vissu uppeldisstarfi undanfarinna ára
og því sem nefnt hefur verið „bama-
kóravakningin“ í kirkjunni. Einn ötul-
asti hvatamaður bamakórastarfsins
er Glúmur Gylfason. Hann gegndi
staríi söngmálastjóra þjóðkirkjunnar í
eitt ár í leyfi Hauks Guðlaugssonar og
beitti sér þá m.a fyrir átaki í nótnaút-
gáfu fyrir barnakóra. Árlegt organ-
istanámskeið var það árið helgað
vinnubrögðum við bamakóra. Mar-
grét Bóasdóttir hefur haldið þessu
verki áfram á vegum söngmálastjóra
og staðið fyrir námskeiðum fyrir
sjómendur og áhugafólk um bama-
kórastarf.
Unglingakór Selfosskirkju er fram-
hald af bamakór kirkjunnar, sem
stofnaður var 1988. Hann er kostaður
Unglingakór Selfosskirkju
Kór Kórskóla Langholtskirkju
af sókninni og öflugt foreldrafélag
starfar í tengslum við hann.
Kórskóli Langholtskirkju var
stofnaður 1991 og starfar sjálfstætt,
en í nánum tengslum við Kór Lang-
holtskirkju og starfsamt foreldrafé-
lag.
Báðir kóramir veita þátttakendum
markvissa og faglega söng- og tón-
listarkennslu.
Tækifæri til þroska
Tilgangurinn með bama- og ungl-
ingakómm er að gefa þátttakendum
8