Víðförli - 15.03.1994, Síða 11

Víðförli - 15.03.1994, Síða 11
armörk segja til um eða jafnvel landa- mæri. Dæmi úr Dómkirkjunni í Dómkirkjunni í Reykjavík hefur verið mótuð stefna um að leitast við að taka á þeim vanda sem fólk ber sig upp með við okkur. Ekki er alltaf um fjárútlát að ræða. Miklu frekar ráð- gjöf, sálgæslu og aðstoð við að leita réttar síns sem fólk er sorglega fá- frótt um. í þetta fer talsverður tími eins og fleiri þekkja en við. En við höfum ákveðið að láta ekki króast af í þessu starfi vegna fjár- munaleysis og því höfum við sett á laggimar hjálparsjóð sem prestar safnaðarins mega einráðir veita fé úr, enda sé um lágar upphæðir að ræða. Þannig er hægt á sannfærandi hátt að leysa bráðan vanda meðan annarra úrræða er beðið eða leitað. Jafnframt hefur verið til lengi Líkn- arsjóður kvenfélagsins okkar og úr honum eru veittar stærri upphæðir, gjaman eftir ábendingu okkar prest- anna og jafnan í samráði við okkur. - Þetta síðara þekkist í fleiri söfnuðum. Við viljum einnig sjá til að ákveðin fjárhæð renni beint úr safnaðarsjóði tii Hjálparstofnunar kirkjunnar og vilj- um vera hvetjandi til þess að safnað- arfólk láti fé af hendi rakna í söfnunum hennar. Ég tel þetta enga frægð þó á þetta sé bent til eftirdæmis. Auðvelt er að taka okkur fram í þessu efni og benda á dæmi þess. Mjór er þó jafnan mikils vísir og einsýnt að hvetja söfnuði til að taka þessi mál til umræðu og móta í þeim stefnu á vettvangi kirkjunnar. Kærleikshugsjónin Það er að því fundið að Islendingar séu öðrum grannþjóðum tregari á fé til þrjóunarhjálpar. Vant er að sjá hversu það má breytast ef hvatningin kemur ekki frá kirkjunni með orði og fordæmi. Hvaðan kemur okkur yfir- leitt sú hugmynd að við eigum að gæta náunga okkar? Var það ekki Kristur sem kenndi það manna best og gaf haldbetri ástæðu til þess en aðrir. Hver gaf líf sitt til sönnunar um elsku til okkar allt til dauða? Hann! Hver sagði: Það sem þér gerið einum þessara minna minnstu bræðra það gjörið þér mér? Hann? Já, Hann! Er þetta boðskapur heimsins? Nei! Hann er sá að hver sé sjálfum sér næstur. Heimurinn þekkir ekki leyndardóm hveitikornsins sem er einmana þar til það springur og upp af því vex sproti með axi sem geymir tugi hveitikoma. Hveitikomi er ætlað að bera ávöxt. Einnigmanninum. Svo hefur sjálfur Skaparinn til skikkað. Hann á með að gera kröfu til þess. Trúverðugleiki kirkjunnar Allra þessara hluta vegna er „kom- inn tími á það“ að taka líknarþjónust- una til umræðu á vettvangi safnað- anna og móta þar stefnu um hana. Til þessa starfs þarf hver söfnuður að læra svo best er að byrja á einföldum verkefnum. Starfið að öldrunarþjón- ustunni sem er að mótast getur vísað okkur veginn um aðra þætti líknar- þjónustunnar en frjóast er að hver söfnuður fmni sér henta leið og svo má hver af öðmm læra. Kirkjan þarf að sýna samfélaginu fram á að við getum ekki keypt okkur undan náungaskyldunni með skattpeningum okkar. Ábyrgð okkar er beinni en svo. í Bandaríkjunum t.a.m. þar sem tryggingakerfið hefur til þessa verið fábrotnara en hér, ver meðalmaðurinn margfalt meiri tíma en hér gerist í ýmiskonar sjálfboða- vinnu. Hér á landi þykjast menn jafn- vel geta keypt aðra til að uppfylla fyrir þá blóðskylduna gagnvart afa og ömmu, ekki að segja pabba og mömmu, hvað þá skylduna gagnvart þeim sem við erum alls óskyld og þekkjum jafnvel ekki annað til en að þau em í vandræðum. Við þurfum að fara á undan með góðu fordæmi sem meðal annars felur í sér fagleg vinnubrögð, árvekni, kjark og úthald en umfram allt ótví- ræða elsku sem leitar uppi þörfma en bíður ekki þess að hún knúi dyra. Á kristnum söfnuðum liggur fmm- læg skylda um samábyrgð og hún varðar trúverðugleika kirkjunnar sem hugsjónasamfélags sem hefur kær- leikann að grundvallarstefnu. Þetta skrifa ég sjálfum mér og söfnuði mínum til hvatningar engu síður en öðrum. AUGLÝSING NER-styrkir Styrkir við Nordiska Ekumeniska Rádet í Uppsala Nordiska Ekumeniska Rádet, NER, sem er samstarfsvettvangur kirkna og samkirkjustarfs á Norðurlöndum, lýsir hér með eftir umsækjendum um tvo styrki, sem veittir verða haustið 1994 á vegum NER í Uppsala í Svíþjóð. Styrkirnir fela í sér dvöl hjá NER - fæði og húsnæði á kostnaðarverði. Styrkirnir eru veittir frá 4 - 8 vikna. Styrkirnir eru aðlagaðir náms- og áhugasviðum styrkþeganna. NER setur þau skilyrði, að umsækjandi sé virkur meðlimur í kirkjusamfélagi og vilji auka þekkingu sína og reynslu af norrænu og alþjóðlegu samkirkjustarfi. Umskóknir þurfa að hafa borist NER eigi síðar en 2. maí 1994. Æskilegt er að meðmæli fylgi. Frekari upplýsingar veita dr. Björn Björnsson Fræðsludeild kirkjunnar Biskupsstofu Suðurgötu 22,150-Reykjavík Sími 91-621500 Fax: 91-13284 eða framkvæmdastióri NER Gunnel Borgegárd Nathan Söderbloms plan 1 Box 640 S-751 27 Uppsala Sími: 90-46-(0)18 169511 Fax: 90-46-(0)18 133178 ÁDAGSKRÁ NER Apríl 8.-10. Norræn ráðstefna um ráðsmennsku og réttlæti, Svíþjóð 15.-17. Samkirkjustarf í næsta nágrenni (lokalekumen- ik), ráðstefna, Þránd- heimi, Noregi. Maí 7.-8. Kirkjan mætirislam Nor- ræn ráðstefna um sam- skipti trúarbragðanna. September Norræn ráðstefna um guðfræði og málfar helgisiðanna og guðs- þjónustu lífsins. Október Kvennaráðstefna (Womens conference - SADC samstarfið). Nóvember Norræn ráðstefna um félagslega siðfræði, Noregi. 11

x

Víðförli

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víðförli
https://timarit.is/publication/1508

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.