Víðförli - 15.03.1994, Side 12
Pétur Björgvin Þorsteinsson
Karlshöhe í Þýskalandi
Mörg kristin systkini mín áttu þess
kost að hefja djáknanám við Háskóla
Islands síðastliðið haust. Draumur
margra varð að veruleika og ég tel
þetta skref vera mikið framfaraskref
kirkjunnar okkar. A næstu misserum
mun djáknum á Islandi fjölga að mun
og er ég stoltur af því að vera í þeirra
hóp. Ég valdi að vísu aðra, ef til vill
torsóttari, leið: Haustið 1991 hóf ég
starfsþjálfun í þýsku kirkjunni (Wíirt-
temberg) með það fyrir augum að
geta sótt um í djáknaskólanum á
Karlshöhe í Ludwigsborg í nágrenni
Stuttgart.
Inntökuskilyrði
Skólinn sem ég sæki er kirkjuleg
skólastofnun fyrir djákna og kristni-
fræðikennara. Til þess að geta hlotið
skólavist í grunnnámi skólans þarf að
uppfylla að minnsta kosti fimm af eft-
irfarandi (mismundi mikilvægum) sjö
skilyrðum:
1. Eins árs starfsþjálfun í fullu
starfi í þýskri kirkju
2. Teljast til evangelísku kirkjunn-
ar
3. Hafa lokið stúdentsprófi
4. Hafa lokið iðngrein og unnið við
hana í þrjú ár
5. Geta skilað vottorði frá prest-
um og framámönnum í kristi-
legu starfi um hæfni til starfsins
6. Geta sýnt fram á að fjármögnun
námsins sé tryggð
7. Hafa staðist inntökupróf sem
fram fer í formi „spjalls yfir
kaffibolla með nokkrum kenn-
urum“ þar sem prófaðir eru
þættir eins og hæfni til mann-
legra samskipta, tjáning, virk
hlustun og fleira.
Þá býður skólinn nemandanum upp
á þann möguleika að setjast beint á
skólabekk í aðalnáminu, það er að
segja djáknanáminu sjálfu. Til þess að
eiga möguleika á því þarf maður að
uppfylla sömu skilyrði eins og fyrir
eins árs djáknanámið við Háskóla Is-
lands.
Gamla skólahúsið
„Kirkjulegt" og
„veraldlegt" nám í
einum pakka
Eins og ég greindi frá hér að ofan
greinist námið í grunnnám og aðal-
nám. Ein helsta ástæðan fyrir því að
farin var þessi leið við þennan skóla
sem er einn af þrem stærstu skólum
fyrir djákna í Þýskalandi, er sú að
forráðamenn kirkjunnar vildu opna
möguleika fyrir ungt fólk í kirkjunni til
að mennta sig frá grunni innan henn-
ar. Um leið var þeim möguleika haldið
opnum að fólk sem vildi fyrst mennta
sig við aðra skóla, ætti samt mögu-
leika á að ljúka djákna- eða kristin-
fræðikennaranámi frá skólanum. I því
tilfelli kemur nemandinn beint inn í
aðalnámið.
Grunnnám: Uppeldisfræði
með biblíulegu ívafi
Grunnnámið er í formi uppeldis-
fræðináms með sérstakri áherslu á
umgengni við og meðferð á bömum
og unglingum sem hafa lent upp á kant
við þjóðfélagið eða eru á einhvem
hátt seinni í þroska líkamlega eða and-
lega. Þessi hluti námsins hefst með
einni bóklegri önn. Næsta önn skipt-
ist í tvennt, tveggja mánaða starfs-
þjálfun á stofnun og fjögurra mánaða
bóklegt nám. Þriðja og fjórða önn eru
bóklegar en að auki sér hver nemandi
um hóp í kirkju undir leiðsögn kenn-
ara (starfsþjálfunarþáttur). Þessum
§órum önnum lýkur með prófum í
uppeldisfræði, sálfræði, félagsfræði,
félagslegum rétti (lögfræði), prakt-
ískri hópleiðsögn, ritskýringu, biblíu-
þekkingu og trúfræði. Hver nemandi
þarf að ljúka sex af þessum átta próf-
um og velur hann fyrirfram eftir
ákveðnum reglum hverjum þeirra
hann vill sleppa. Falli nemandi á einu
eða fleiri prófum endurtekur hann
nám á þriðju og fjórðu önn. Fimmta og
sjötta önn grunnnámsins er í formi
starfsþjálfunar. Þessi starfsþjálfun
getur farið fram á stofnun, í félags-
starfi eða kirkjulegu starfi. Einungis
eru settar fram tvær kröfur: Sá sem
tekur nemandann í starfsþjálfun þarf
að hafa lokið prófi í starfsþjálfunar-
leiðsögn og nemandinn skal starfa
með 7 til 18 ára börnum og ungling-
um.
AF DJÁKNANÁMI
12