Víðförli - 15.01.2007, Side 3

Víðförli - 15.01.2007, Side 3
VÍÐFÖRLI JANÚAR 2007 3 Vatnið breytir öllu Vissir þú að 1.1 milljarðar manna í heiminum skortir aðgang af hreinu vatni? Um 6 milljónir þeirra búa í Malaví, því að 47% af þeim 13 milljónum manna sem búa í Malaví hafa ekki aðgang af hreinu vatni. Þetta eru svo háar tölur að það er erf- itt að ímynda sér hvað býr þeim að baki. Sex milljónir manna haf ekki hreint vatn að drekka, hafa ekki vatn til að halda uppi hreinlæti og hafa ekki vatn til að nota í ræktun eða búskap. Án vatns er ekkert líf Að ekki hafa aðgang af hreinu vatni þýðir meðal annars að erfitt er að ala upp börn. Endurtekinn niðurgangur á unga aldri veldur vítamín- og næringarskorti. Heftur líkamsvöxtur helst í hendur við minni andlega getu. Börn eiga verr með að læra og fullorðnir að vinna fyrir sér. Nær eitt af hverjum fimm börnum sem fæðist í Malaví deyr fyrir 5 ára aldur. í heiminum öllum deyja fimm sinn- um fleiri börn af niðurgangi vegna óhreins vatns en úr alnæmi. Hjá Hjálparstarfi kirkjunnar höfum við haldið því fram að vatnið breyti öllu, því fátt er eins dýrmætt og nauðsynlegt eins og vatn, án því geta hvorki menn né plöntur lifað. Hvað dropin gerir í Malaví Við hófum störf í Malaví fyrir 4 árum síðan og við ætlum að starfa þar áfram. Hingað til hefur verið unnið með um 600 fjölskyldum við að afla vatns til drykkjar, matargerðar og þvotta. Það er gríðarleg breyting frá því að vera algerlega háður stopulli rigningu um fæðu og framfæri. Við höfum séð fiskiræktartjarnirnar, geitahúsin og svínastíurnar, muninn á uppskerunni þar sem taðið úr skepnunum er borið á. Þetta er hægt af því fólkið hefur vatn. Verkefnið er frá upphafi unnið með og af fólkinu sem þar býr. Það leggur fram alla vinnu enda er það stolt af breytingunum sem hafa átt sér stað. Fólkið hefur sýnt okkur brunnana, fótstignar pumpur sem það pumpar vatni út á akrana, vel gerða kamra og listlega gerða vaska með sápu og þurrkum. Á næsta ári fer á stað nýtt verkefni í Malaví, þar ætlar Hjálparstarf kirkjunnar meðal annars að grafa 11 brunna, byggja 800 kamra, planta 1,8 milljón trjám til að safna grunnvatni og gefa vatnsbólum skjól, aðstoða yfir 200 fjölskyldum með áveitur og dreifa eins mörgum geitum og hænum og safnast fyrir. Þetta og margt annað verður okkar markmið í Malaví á næstu árum og það bíða margar fjölskyldur spenntar eftir að verkefnið fari af stað. Margt smátt... Hjálparstarf kirkjunnar er lítil stofnun sem getur ekki á skömmum tíma ráðið við vatnsskort 1.1 milljarðs manna. En með stuðningi þínum, með því að við íslendingar látum okkur mál annarra varða, þá er hægt að hjálpa mörgum. Við vonum að þú styðjir jólasöfnun Hjálparstarfs kirkjunnar, sem heldur áfram nú í janúar. Hugsaðu um það þegar þú ferð í bað, vaskar upp eftir matinn og hellir upp á kaffið hvaða forréttindi það eru að búa á landi sem ekki þekkir vatnsskort. Vatnið breytir öllu og saman getum við gefið öðrum möguleika á að kynnast því. Kveðja frá Hjálparstarfi kirkjunnar. Frétt af Skagafjordur.com í desember Fjölsótt aðventukvöld í Sauðárkrókskirkju Það var sannarlega margt um manninn - eða vel á þriðja hundraðið - á árlegu aðventukvöldi í Sauðárkrókskirkju síðastliðinn sunnudag enda fastur liður í jólaundirbúningi margra að sækja kirkju á aðventunni. Ræðumaður kvöldins var Ólafur Atli Sindrason kennari við Árskóla. Barnakór kirkjunnar flutti helgileik en íris Baldvinsdóttir og Rögnvaldur Valbergsson æfa barnakórinn. Stubbarnir, 10-12 ára krakkar í kirkju- starfinu, sungu nokkur sígild jólalög með leikrænu ívafi. Síðast en ekki síst flutti kirkjukórinn aðventu- og jólasöngva undir stjórn Rögnvaldar organista. Að dagskránni tæmdri þáðu kirkjugestir piparkökur og súkkulað í safnaðarheimlinu. Frétt af BB.is á ísafirði í desember Húsfyllir á aðventukvöldi Mikið var um dýrðir að aðventukvöldi í ísafjarðarkirkju í gær, fyrsta degi aðventu. Margir hafa komið sér upp þeirri hefð að fara á aðventukvöld við upphaf jólaföstu til að setja sig í hátíð- arskap fyrir þá tíð sem að höndum fer. Mjög vel var mætt á gærkvöldi sem endranær og nánast fullt út úr dyrum. Ekki voru atriðin sem boðið var upp á af verri endanum, Sunnukórinn og kór ísafjarðarkirkju fluttu aðventu- og jólalög við undirleik strengjasveitar Tónlistarskóla ísafjarðar. Stjórnendur voru þau Ingunn Ósk Sturludóttir og Janusz Frach. Karlakórinn Ernir söng ásamt drengjakór undir stjórn Beötu Joó við undirleik Huldu Bragadóttur. Harmonikkufélag Vestfjarða og Tríó Villa Valla tóku nokkur vel valin lög. Bræðradæturnar Hildur María Halldórsdóttir og Agnes Ósk Marselíusdóttir léku á þverflaut- ur við eitt lag hjá Karlakórnum við undirleik systradætranna Margrétar Gunnarsdóttur á píanó og Huldu Bragadóttur á orgel. Séra Magnús Erlingsson og fermingarbörn lásu upp fyrir gesti og í lokin sameinuðust kórarnir og tónlistarfólkið saman í söng við ákafan fögnuð viðstaddra.

x

Víðförli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víðförli
https://timarit.is/publication/1510

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.