Víðförli - 15.01.2007, Blaðsíða 16
VÍÐFÖRLI
16
26. ÁRG. 1. TBL.
KIRKJUHÚSIÐ - BÓKABÚÐ Á KRISTNUM GRUNNI
Kirkjuhúsið - Skálholtsútgáfan Laugavegi 31 Sími: 552 1090 og 562 1581
Netfang: skalholtsutgafan@skalholtsutgafan.is www.skalholtsutgafan.is
“Hííííí-eróóóóónýmus! Hííííí-eróó-
óóónýmus!" hrópar Pétur við dyr
himnaríkis. Það heyrist greinilega að
hann er reiður...
Litli engillinn, hann Híerónýmus, er
mikill prakkari. Hann eltist við him-
neskar kindur, týnir lyklinum að hliði
himnaríkis og truflar kórsöng him-
insins. Hvernig ætti slíkur engill að
geta orðið góður verndarengill?
Dag nokkurn fær Híerónýmus verð-
ugt verkefni og sekkur sér ofan í það
Fást í Kirkjuhúsinu og öllum helstu bókaverslunum
VERNDARENGILL LEYSIR MÁLIÐ
BÆNABÓKIN
Bænasafn heimilanna er að finna í þessari fallegu
bænabók. Hún veitir ómetanlega leiðsögn þeim sem
vilja fræðast um bæn og þroska trúarlíf sitt.
Hér getur hver og einn fundið við sitt hæfi bænir í
önnum hversdagsins, í gleði og sorg, nýjar og gamlar,
kunnar og óþekktar. Karl Sigurbjörnsson biskup vefur
hér saman fortíð og nútíð, reynsluheimi kynslóðanna
og veruleika nútímafólks. Þessi bók ætti að vera tij á
hverju heimili.
Bókin er hönnuð af myndlistarkonunum Björgu
Vilhjálmsdóttur og Höllu Sólveigu Þorgeirsdóttur.
Höfundur er Karl Sigurbjörnsson, biskup.
Bæn úr Bænabókinni:
Þarfnast þú handa minna, Drottinn,
til að geta hjálpað sjúkum,
fátækum og nauðstöddum?
Drottinn, í dag vil ég gefa þér hendur mínar.
Þarfnast þú fóta minna, Drottinn,
til að geta vitjað þeirra,
sem einmana eru og án vonar?
Drottinn, í dag vil ég gefa þér fætur mína.
Þarfnast þú vara minna, Drottinn,
til að geta talað til allra þeirra,
sem þrá kærleiksríkt orð og viðmót?
Drottinn, í dag vil ég gefa þér varir mínar.
Þarfnast þú hjarta míns, Drottinn,
að geta elskað
skilyrðislaust sérhvern mann?
Drottinn, í dag vil ég gefa þér hjarta mitt.
(Móðir Theresa)