Víðförli - 15.01.2007, Blaðsíða 14
VÍÐFÖRLI
14
26. ÁRG. 1. TBL.
Kyrrðardagar í Skálholti
Kyrrðardagar eru haldnir mánaðarlega í Skálholti á vormisseri og er með ýmsu sniði
26.-28. janúar: Kyrrðardagar og sjálfsskoðun
Systkinin dr. Pétur Pétursson prófessor og Sólveig
Pétursdóttir félagsmálastjóri veita leiðsögn á þessum
dögum þar sem veitt er aðstaða til sjálfstjáningar í hóp-
vinnu (socio-drama) og boðið upp á stuðningsviðtöl í
vernduðu umhverfi kyrrðardaga. Ekki er um meðferð að
ræða. Hámark 14 þátttakendur.
23.-25. febrúar: Æðruleysi
Sr. Karl Matthíasson vímuvarnaprestur leiðir þessa daga
ásamt Kristni Ólasyni. Þessir dagar eru einkum ætlaðir fólki
sem hefur sótt æðruleysismessur.
19.-22. apríl: Kyrrð og útivist
Sr. HalldórReynissonfræðslustjóri og sr. Eiríkur Jóhannsson
prestur í Hruna annast göngu- og kyrrðardaga þar sem
áhersla er lögð á útivist og hreyfingu, andlega og líkamlega
hollustu. Þessir dagar hefjast á fimmtudagskvöldi og þeim
lýkur á sunnudegi.
27.-29. apríl: Hjónadagar
Þessir dagar eru ætlaðir hjónum sem vilja eiga sameig-
inlega reynslu af kyrrð, íhugun og samveru. Þeir standa frá
fimmtudegi fram á sunnudag. Umsjón er í höndum Hafliða
Kristinssonar hjónabandsráðgjafa.
1.-4. mars: Systradagar
Konur í kirkjunni koma saman á Imbrudögum að vori.
Þessir dagar hefjast á miðvikudagskvöldi og þeim lýkur
á sunnudegi. Systurnar annast sjálfar skráningu á þessa
kyrrðardaga.
22.-25. mars: Heilsudagar
Um þessa daga gildir það sama og um heilsudaga að
hausti. Markmið daganna er að tengja saman kyrrð og
heilsu. Skráning á þessa daga er í höndum starfshóps um
heilsudaga í Skálholti.
27.-29. mars: Kyrrð með Qi Gong
4.-6. maí: Fylgdardagar
Þessir kyrrðardagar eru samstarfsverkefni Skálholtsskóla
og fylgdarhóps líknardeildar LSH og eru ætlaðir fólki sem
tengist þjónustu líknardeildarinnar. Umsjón með þeim hefur
sr. Guðlaug Helga Ásgeirsdóttir sjúkrahúsprestur ásamt
fylgdarhópi LSH. Skráningu annast ritari deildarinnar, María
Líndal Brynjólfsdóttir í síma 5436603 eða í netpósti:
marialin@landspitali.is.
Allir sem áhuga hafa eru velkomnir á kyrrðardaga. Verði
er stillt í hóf. Skráning í s. 486 8870 eða með netfanginu
skoli@skalholt.is
30. mars -1. apríl:
Kyrrð líkama og sálar
Sr. Jakob Hjálmarsson
dómkirkjuprestur og Auður
Bjarnadóttir jógakennari
leiða þátttakendur á þessum
kyrrðardögum inn í kyrrð lík-
ama og sálar.
4.-7. apríl: í Dymbilviku
Sr.HelgaSoffíaKonráðsdóttir
prestur í Háteigskirkju leiðir
þessa kyrrðardaga þar sem
meðal annars er fjallað um
atburði kyrruvikunnar. Þessir
dagar hefjast á miðviku-
dagskvöldi og þeim lýkur á
laugardegi fyrir páska.
Gunnar Eyjólfsson leikari leiðir kyrrðardaga sem hefjast á
þriðjudagsmorgni og bygg-
jast á æfingum og hug-
myndafræði Qi Gong tíl að
öðlast innri sátt og kyrrð
hugans í samhengi kyrrð-
ardaga.
Skálholt (mynd SÁÞ)