Víðförli - 15.01.2007, Blaðsíða 15
JANÚAR 2007
VI'ÐFÖRLI
15
Porvoo
samkomulagið 10 ára
Laugardaginn 25. nóvember síðastliðinn var messa í Southwark
dómkirkjunni í Lundúnum í tilefni af undirritun Pon/oo sam-
komulagsins fyrir 10 árum síðan. í biskupsdæmi Southwark
hafa meðal annars finnska, norska og sænska sjómannakirkjan
haft höfuðstöðvar sínar til fjölda ára og verið virkir þátttakendur
í störfum prófastsdæmisins í Bermondsey. Soutwark dómirkjan
er ein þriggja dómkirkna í Lundúnum og stendur sunnan við
ána Thames ekki fjarri "London Bridge". Guðsþjónustan var
skipulögð af Porvoo tengslanefnd ensku biskupakirkjunnar og
þjónuðu í henni biskupar, prestar og djáknar frá öllum aðild-
arkirkjum samkomulagsins og prófasturinn í Niðarósi, séra Knut
Andersen, sem mörgum íslendingum er kunnur prédikaði. Eftir
messuna var haldin ráðstefna um Porvoo samkomulagið þar
sem sérstaklega var talað um starf með ungu fólki og hvernig
mætti gera þennan aldurshóp virkari í Porvoo samstarfinu.
Þar höfðu framsögu, æskulýðsleiðtogi frá Portsmouth, sókn-
arprestur í suður Lundúnum og prestur íslendinga í Lundúnum.
Á torgi kirkjunnar var svo komið fyrir basar þar sem boðið var
upp á vörur frá norsku, sænsku, finnsku og íslensku söfnuðun-
um í Lundúnum.
Sigurdur Arnarson
Prestur íslenska safnaðarins í Lundúnum
(mynd: Diocese of Southwark press)
Málþing um Porvoo í
Hallgrímskirkju
Þann 28. janúar kl. 14.00 verður sr. Bjarna Þór Bjarnasyni
veitt formlega leyfi til að þjóna innan Evrópustifti Ensku
biskupakirkjunnar. Með því tengjast ensku messurnar sem
haldnar eru mánaðarlega starfi Ensku biskupakirkjunnar.
David Hamid, biskup í Evrópustifti, kemur hingað og setur
Bjarna inn í embættið við enska mess í Hallgrímskirkju. Á
eftir er boðið upp á kaffiveitingar.
Porvoo í dag
Kl. 16.00 sama dag hefst í Hallgrímskirkju málþing um
Porvoo f tilefni þess að í vetur eru 10 ár frá undirritun
Porvoo samkomulagsins. David Hamid, biskup, tekur þátt í
málþinginu. Það verður nánar auglýst á www.kirkjan.is
Opin námskeið
á vegum
Leikmannaskóla
Þjóðkirkjunnar
vorið 2007
Biblíulestrar í samvinnu Leikmannaskólans og
Reykjavíkurprófastsdæmis eystra
Texti trú og tilgangur
Biblían, stjórnmál og staðleysur
Kennari er dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson héraðsprestur
Hefst fimmtudaginn 18 janúar og kennt er í 10 skipti tvo
tíma í senn kl.. 20.00-22.00 í Breiðholtskirkju
Kristur og konurnar
Kennari er dr. Arnfríður Guðmundsdóttir, dósent.
Hefst mánudaginn 29. janúar og kennt er í 4 skipti tvo
tíma í senn kl. 18.00-20.00 í Grensáskirkju
í samvinnu Leikmannaskólans og
Reykjavíkurprófastsdæmi vestra
Biblían í daglega lífinu
Kennari er sr. María Ágústsdóttir héraðsprestur.
Hefst miðvikudaginn 14. febrúar og kennt er í fjögur
skipti, tvo tíma í senn kl. 20.00-22.00 í Hallgrímskirkju
Sálmar páska og hvítasunnu
Kennarar eru dr. Einar Sigurbjörnsson prófessor við H.í
og sr. Kristján Valur Ingólfsson, lektor við H.í og sókn-
arprestur á Þingvöllum.
Hefst mánudaginn 5. mars og kennt er í fjögur skipti,
tvo tíma í senn kl. 20.00-22.00 í Grensáskirkju
Trúarbrögð á íslandi
Umsjón með þessu námskeiði hefur Steinunn Arnþrúður
Björnsdóttir guðfræðingur, verkefnastjóri samkirkju- og
upplýsingamála á Biskupsstofu. Einnig munu fulltrúar
ólíkra trúarbragða kynna sína trú, sögu hennar, helstu
kenningar og starf á íslandi.
Hefst miðvikudaginn 7. mars og kennt er í fjögur
skipti, tvo tíma í senn kl. 20.00-22.00 í Safnaðarheimili
Grensáskirkju.
Tákn og táknmál kirkju og trúar.
Kennari er Sr. Kristján Valur Ingólfsson, lektor við H.í og
sóknarprestur á Þingvöllum
Hefst þriðjudaginn 20. mars og kennt er í fjögur skipt,
tvo tíma í senn kl. 18.00-20.00 í Grensáskirkju
Frekari upplýsingar um námskeiðin má fá á heimasíðu
Leikmannaskólans, www.kirkjan.is/leikmannaskoli eða
í síma 535 1500. Þar er einnig hægt að skrá sig.