Víðförli - 15.01.2007, Blaðsíða 5

Víðförli - 15.01.2007, Blaðsíða 5
JANÚAR 2007 VÍÐFÖRLI 5 Staða og skyldur Þjóðkirkjunnar Pétur Kr. Hafstein var kjörin nýr forseti kirkjuþings. Hann gerði umræður um trúfrelsi og jafnrétti að umtalsefni í ávarpi þegar hann tók við embætti forseta og sagði meðal annars: „í stjórnmála- og þjóðfélagsumræðu blása einatt vindar úr öllum áttum og oft er breytinga krafist breytinganna vegna eða sakir nýrra kenninga, sem ganga í berhögg við gömul gildi. Nú heyrast þær raddir, að þjóðkirkjan íslenska eigi sér ekki lengur stoð í samfélagsskipuninni og staða hennar fari í bága við jafnréttishugmyndir nútímans. Víst er um það, að þjóðkirkjan stendur á margra alda bjargi og á sér mikla sögu. Frá því að íslendingar fengu fyrst stjórn- arskrá 1874 hefur þar verið áréttað, að hin evangelíska lúterska kirkja skuli vera þjóðkirkja á Islandi og ríkisvaldið skuli að því leyti styðja hana og vernda. Jafnframt hefur ríkt trúfrelsi í landinu og engum verið þröngvað til fylgis við þjóðkirkjuna andstætt sannfæringu sinni. Það er rétt, að stjórnarskráin mælir einnig fyrir um það, að allir skuli vera jafnir fyrir lögum og njóta mannréttinda meðal annars án tillits til trúarbragða. Þeim jafnréttismæli- kvarða, sem hér verður brugðið á loft, verður hins vegar aðeins beitt um þá, sem sambærilegir mega teljast. Staða þjóðkirkjunnar er einstök, bæði sögulega og I lagaskilningi, og verður að engu leyti jafnað til stöðu ann- arra trúfélaga, sem ríkisvaldið tryggir fullt frelsi til athafna og skoðana. Það er að mínum dómi fullkomið samræmi í þeirri afstöðu stjórnarskrárgjafans að tryggja annars vegar fullt trúfrelsi í landinu og tengja á hinn bóginn þjóðkirkjuna við ríkisheildina á sögulegum og guðfræðilegum grunni. Það er fagnaðarefni, að núverandi kirkjumálaráðherra hefur verið einarður í þessari afstöðu, eins og meðal annars má lesa um í frásögnum Árbókar kirkjunnar af Kirkjuþingum undanfarin ár. Ég vænti þess, að kirkjunnar menn láti ekki á sér bilbug finna um það, að þjóðkirkjan eigi sér réttmæta stoð í íslensku samfélagi um leið og hún leitar aukins sjálf- stæðis og sjálfræðis um innri málefni sín. Það má segja, að einmitt vegna stöðu þjóðkirkjunnar meðal annarra trúfélaga í landinu séu gerðar ríkar kröfur til hennar um að leita sátta og sanngirni í erfiðum úrlausn- arefnum á tilfinningasviði. Þar ber hæst um þessar mundir Pétur Kr. Hafstein, forseti Kirkjuþings, i ræðustóli. (Mynd: ÁSD) ákall samkynhneigðra um jafna stöðu og jafna virðingu á við önnur sóknarbörn þjóðkirkjunnar. Um jafna virðingu ætti enginn að velkjast í vafa - þar hvorki getur þjóðkirkjan né vill nokkurn greinarmun á gera. Um stöðu gagnvart sam- vistum samkynhneigðs fólks og aðferðum til að innsigla þær fyrir augliti Guðs gegnir af eðlilegum ástæðum nokkuð öðru máli. Þar er þjóðkirkjan ekki komin á leiðarenda en þó miðar áfram hægt og örugglega. Mér er Ijós sá guðfræðilegi vandi, sem þjóðkirkjan á við að etja gagnvart skilgreiningu hjónbands og hjónavígslu, en hvorttveggja á rætur bæði í veraldlegum rétti og kirkjulegri afstöðu. Á því leikur hins vegar ekki vafi að mínum dómi, að ráði virðing og tillitssemi för í allri umræðu og samskipt- um eiga farsælar lyktir að geta náðst í þessu efni í góðri samvinnu við talsmenn þeirra, sem málið varðar, og í Ijósi boðskapar Krists, er hann stappaði stáli í lærisveina sína á elleftu stundu og sagði: „Hjarta yðar skelfist ekki. Trúið á Guð og trúið á mig. í húsi föður míns eru margar vistarver- ur.“ (Jóh. 14.1-2.) Steinunn A. Björnsdóttir Góð aðsókn að vef Kirkjuþings Aðsókn að vef Kirkjuþings margfaldaðist meðan á þinginu stóð og má ráða af aðsóknartölum að um það bil 150 gestir hafi skoðað síður á vefnum um það bil 8000 sinnum á þeim tíma. Mikil aðsókn var í málaskrá og gerðir þingsins auk þess sem sífellt fleiri hlustuðu á upptökur af umræðum á þinginu. Á síðasta ári var í fyrsta sinn hægt að nálgast upp- tökur af viðtölum við þingfulltrúa og gesti þings- ins. Sú nýbreytni mæltist vel fyrir og er ráðgert að gera meira af því á næsta ári auk þess sem vonir standa til að hægt verði að hafa beina útsendingu frá þinghaldinu. Árni Svanur Daníelsson

x

Víðförli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víðförli
https://timarit.is/publication/1510

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.