Víðförli - 15.01.2007, Qupperneq 4
VÍÐFÖRLI
4
26. ÁRG. 1. TBL.
r
Islenska ríkið og Þjóðkirkjan
semja um prestssetur
Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra, Karl Sigurbjörnsson blskup og
Árni M. Mathiesen, fjármálaráðherra. (Mynd: ÁSD)
í október 2006 undirrituðu biskup
íslands Karl Sigurbjörnsson, dóms- og
kirkjumálaráðherra Björn Bjarnason
og fjármálaráðherraÁrni M. Mathiesen
samkomulag milli íslenska ríkisins og
Þjóðkirkjunnar um prestssetur.
Viðræður aðila um þetta mál hafa
staðið með hléum undanfarin ár.
Samkomulagið verður viðauki við
samkomulag sömu aðila frá 10. janú-
ar 1997 um afhendingu kirkjujarða
til ríkisins og endurgjald ríkisins til
Þjóðkirkjunnar vegna þeirra. Þá voru
prestssetrin undanskilin og kveðið á
um, að síðar yrði tekin afstaða til
þeirra. Hefur það nú verið gert.
í samkomulaginu eru prestssetur á for-
ræði Þjóðkirkjunnar ákveðin og hver
þeirra eru ríkiseign. Staðfest er að þær
eignir sem Prestssetrasjóður f.h. Þjóðkirkjunnar tók við frá
dóms- og kirkjumálaráðuneytinu 1994 verði þinglýstar eignir
Þjóðkirkjunnar. Endurgjald ríkisins vegna samkomulagsins
felst í því að árlegt framlag ríkissjóðs í Kirkjumálasjóð er
hækkað um 3%. Samhliða þessu falla brott ýmsir liðir á
fjárlögum þar sem veitt hefur verið fé til nokkurra verkefna
Þjóðkirkjunnar, þannig að heildargreiðslur úr ríkissjóði aukast
um 35 milljón krónur á ári.
Aðilar að samkomulaginu lýsa yfir því í lok þess „að sú
eignaafhending og árleg greiðsla sem á sér stað með sam-
komulagi þessu sé fullnaðaruppgjör milli íslenska ríkisins
og Þjóðkirkjunnar vegna allra prestssetra og hvorugur aðili
eigi kröfu á hendur hinum vegna þeirra.“
Kirkjuþing samþykkir
stóraukna áherslu á
þjónustu og hjálparstarf
Stefnumótun á sviði kærleiksþjónustu og hjálparstarfs
var samþykkt á Kirkjuþingi 2006. Með henni eru
sóknir hvattar til að huga sérstaklega að þeim þætti
í þjónustu kirkjunnar er lítur að stuðningi við fólk í
erfiðum aðstæðum, og leggja sérstaka áherslu á
vinaheimsóknir til þeirra sem eru einangraðir.
Hvatt er til samstarfs á þessu sviði milli safnaða og
við stofananir og félagasamtök og minnt á nauðsyn
þess að sóknirnar leggi fé í þetta starf.
Stefnumótun á sviði Kærleiksþjónstu er liður í að
framfylgja Stefnu- og starfsáherslum Þjóðkirkjunnar
sem samþykkt voru á kirkjuþingi 2003. Samkvæmt
henni verður sérstaklega vakin athygli á kærleiks-
þjónstu kirkjunnar starfsárið 2006 - 2007 og hvatt til
verkefna á því sviði.
Steinunn A. Björnsdóttir
Kirkjuþing samþykkir
fjölskyldustefnu kirkjunnar
Á Kirkjuþingi 2005 var lögð fram ályktun um Fjölskyldustefnu
kirkjunnarsem starfshópurávegum biskups íslands hafði unnið,
byggt á fjölskyldustefnu kirkjunnar frá 1994. Á þinginu 2005 var
samþykkt meginstefna skjalsins ásamt með nokkurm ábend-
ingum um orðalag og áherslur. Lagt var til að starfshópurinn
útfærði þessa stefnu til vors 2006 og leitaði hugmynda hjá sem
flestum þátttakendum í starfi kirkjunnar um leiðir og aðferðir til
að þessi markmið næðust. Stefnan hefur verið kynnt á fundum
víðs vegar um land, héraðsfundum, leikmannastefnu, prófasta-
fundi, og á námskeiðum á vegum biskupsstofu. Lokatillaga var
lögð fyrir Kirkjuþing 2006. í markmiðum stefnunnar segir:
Þjóðkirkjan vill:
a) Vera bandamaður fjölskyldunnar, ekki síst barna og
þeirra sem minna mega sín.
b) Efla kærleika, réttlæti, tryggð, gagnkvæma virðingu og
traust innan fjölskyldunnar.
c) Styðja trúarlíf innan fjölskyldunnar.
d) Stuðla að því að sérhver einstaklingur og fjölskylda finni
til ábyrgðar á lífi annarra og samfélaginu öllu.
Steinunn A. Björnsdóttir