Víðförli - 15.01.2007, Page 6
VÍÐFÖRLI
6
26. ÁRG. 1. TBL.
Vinaleiðin og þarfir barna
Vinaleiðin, sálgæsluþjónusta Þjóðkirkjunnar í nokkrum
grunnskólum landsins hefur vakið athygli, réttara sagt
gagnrýni um að verið sé að stunda trúboð í skólum.
Fræðslusvið Biskupsstofu hefur í samvinnu við Þórdísi
Ásgeirsdóttur unnið að kynningu Vinaleiðarinnar. Þar
hefur verið lögð ríkuleg áhersla á að um stuðning og
sálgæslu er að ræða en ekki trúarlega boðun.
Samhengi Vinaleiðarinnar
Því til stuðnings er rétt að benda á samhengið. Tvennt
skiptir þar máli. Annars vegar eru ýmis teikn á lofti um
að íslenskum grunnskólabörnum líði verr en áður. Sagt
hefur verið frá auknum kvíða og þunglyndi meðal þeirra.
Kennarar hafa áhyggjur af þessari þróun og fagna því
þegar þeir fá stuðning við að hlúa að nemendunum. Þá
hafa ýmsir, nú síðast forseti íslands lýst yfir áhyggjum af
lakari aðhlynningu barna vegna tímaskorts foreldranna. Á
s.l. ári stóð Þjóðkirkjan, ásamt forsætisráðuneytinu, Heimili
og skóla, umboðsmanni barna og Velferðarsjóði barna að
herferð undir heitinu “Verndum bernskuna”. Tilgangurinn
var einmitt að styðja foreldra og uppalendur í uppeldishlut-
verkinu og hamla gegn versnandi uppeldisskilyrði barna.
Vinaleiðin er í raun framhald þeirrar vinnu, tilboð til skólans
að sinna vaxandi þörf barna fyrir stuðning.
Hitt atriðið varðandi samhengi Vinaleiðarinnar sem vert
er að benda á er sú hreyfing sem hófst hér á landi fyrir
15-20 árum og snýr að úrvinnslu á sorg og áföllum.
Frumkvöðlar að þeirri vinnu voru ekki síst sjúkrahúsprestar
og samtökin Ný dögum. Þessi hreyfing hefur leitttil þess að
nú orðið koma prestar og jafnvel annað starfsfólk kirkjunnar
að áfallavinnu í flestum grunnskólum landsins. Vinaleiðin er
rökrétt framhald þessarar hreyfingar sem hefur miðað að
því frá öndverðu að létta byrðar þeirra sem eru að takast
á við áföll og sorg. í þessu tilviki eru það börnin. í því
sambandi má einnig benda á annað verkefni Þjóðkirkjunnar
af svipuðum toga sem boðið er upp á í nánast öllum fram-
haldsskólum landsins. Það er fræðsla um sorg og áföll inni
í lífsleikni framhaldsskólanna.
í raun má segja að gagnrýnendur beini spjótum sínum
að þessu verkefni vegna þess að sumum þeim einstakling-
um sem tilheyra öðrum trú- eða lífsskoðunarhópum finnst
stundum að starfsfólk kirkjunnar sem sækir skólann heim
að ýmsu tilefni, sé ekki nógu meðvitað um þau mörk sem
ávallt hljóta að vera á þjónustu kirkjunnar við skólann.
Það eru mörkin milli fræðslu og kærleiksþjónustu annars
vegar og trúarlegrar boðunar hins vegar. Það er vert að
hlusta á þá gagnrýni almennt þótt hæpið sé að hún eigi við
Vinaleiðina sérstaklega.
En hvað er Vinaleiðin?
Vinaleiðin er verkefni sem var þróað í samvinnu kirkju
og skóla í Mosfellsbæ fyrir nokkrum árum undir forystu
Þórdísar Ásgeirsdóttur djákna og kennara. Vinaleiðin er
framhald þess samstarfs þegar leitað er til kirkjunnar í
tengslum við áföll og missi eins og áður er á minnst.
Vinaleiðin er hluti af stoðkerfi þeirra skóla sem bjóða upp
á hana. Til stoðkerfis heyra skólastjórn, námsráðgjöf, sál-
fræðiþjónusta, skólahjúkrun og sérkennsla.
í þjónustu Vinaleiðar felst að eiga samleið með barninu,
hlusta, mæta því á sínum eigin forsendum og setja sig í
spor þess. Þessi stuðningur er oft nefndur sálgæsla. Þar
er reynt að hjálpa barninu til að finna sínar eigin leiðir. Ef
um alvarlegan vanda er að ræða er haft samráð innan
stoðkerfis skólans og við foreldra/forráðamenn um leiðir.
Vinaleiðin er ávallt kynnt foreldrum og forráðamönnum
barna og byggir á trúnaði. Þó getur upplýsingaskylda er
hefur velferð barnsins að leiðarljósi stundum vegið þyngra
en þagnarskyldan og er barninu gerð grein fyrir því.
í sálgæslu Vinaleiðarinnar er lögð áhersla á að mæta
barninu eins og það er og borin er full virðing fyrir lífsskoð-
unum þess.
Halldór Reynisson
Siðareglur
Vinaleiðarinnar
• Ætíð skal stuðla að velferð barna og unglinga á
þeirra eigin forsendum, svo og að virða þeirra
mörk.
• Ekki skal fara í manngreinarálit í samskiptum við
börn og unglinga, svo sem vegna kynferðis, stöðu,
skoðana eða trúar.
• Ekki skal stofna til óviðeigandi sambands við börn
eða unglinga.
• Gæta skal trúnaðar og þagmælsku um hvað-
eina sem starfsfólk verður áskynja í starfinu.
Þagnarskylda á ekki við þegar mál koma upp er
varða ákvæði um tilkynningarskyldu (sbr. IV. kafla
Barnaverndarlaga, nr. 80/2002).
• Starfsfólk skal ávallt vera upplýst um lög og reglur
er gilda um skóla.
• Ávallt skal kynna Vinaleiðina fyrir foreldrum/for-
ráðamönnum barna.
• Vinaleiðin er þjónusta af hálfu Þjóðkirkjunnar við
skólabörn, en ávallt á forsendum skólans (sbr.
http://kirkjan.is/biskupsstofa/7stefnumal/kirkja_
og_skoli ) og að höfðu samráði við foreldra/for-
ráðamenn.
• í sálgæsluviðtölum geta trúarleg efni sem hver
önnur borið á góma. Slík umræða er þó ávallt að
frumkvæði barns eða foreldris/forráðamanns og út
frá eigin lífsviðhorfi þess.
• Prestar og djáknar er starfa að Vinaleiðinni skulu
sækja handleiðslu hjá Fjölskylduþjónustu kirkjunnar.