Víðförli - 15.01.2007, Blaðsíða 9
JANÚAR 2007
VlÐFÖRLI
9
s r
Hörður Askelsson fær Islensku
bj artsýnis ver ðlaunin
HörðurÁskelsson, söngmálastjóri Þjóðkirkjunnarfékk íslensku
Bjartsýnisverðlaunin 2006. í tilkynningu segir að Hörður hafi
hlotið margvíslegar viðurkenningar fyrir störf sín, sem oftar
en ekki hafi einkennst af bjartsýni og þori. Hann hafi verið
atkvæðamikill við kynningu á íslenskri kirkjutónlist, frum-
flutt fjölda verka og komið fram á tónlistarhátíðum heima
og erlendis, bæði sem orgelleikari og kórstjóri. í þakk-
arávarpi sínu minntist Hörður föður síns, Áskels Jónssonar
organista og söngstjóra á Akureyri sem hann tileinkar
verðlaunin og félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju sungu
lag Áskels, Betlehemsstjarnan og annað eftir verðlaunahaf-
ann, Jólagjöfin.
Frá 1982 hefur Hörður verið organisti Hallgrímskirkju í
Reykjavík og forgöngumaður í uppbyggingu listalífs þar.
Hann stofnaði Listvinafélag og Mótettukór Hallgrímskirkju
árið 1982. Hörður er einnig stofnandi og stjórnandi Scola
Cantorum. Með kórum sínum hefur Hörðurtekið þátt í mörg-
um tónlistarhátíðum og unnið til verðlauna í alþjóðlegum
samkeppnum. Hann hefur stjórnað flutningi margra óratóría,
m.a. með Sinfóníuhljómsveit fslands. HörðurÁskelsson hefur
kennt orgelleik og kórstjórn við Tónskóla þjóðkirkjunnar og á
árunum 1985-1995 var hann lektor í litúrgískum söngfræð-
um við guðfræðideild Háskóla íslands. Hann tók við stöðu
söngmálastjóra Þjóðkirkjunnar haustið 2005.
Alcan á íslandi er bakhjarl bjartsýnisverðlaunanna, sem
áður voru kölluð Bjartsýnisverðlaun Bröstes. Ólafur Ragnar
Grímsson, forseti íslands er verndari þeirra og afhenti hann
Herði verðlaunin, verðlaunagrip úr íslensku áli og eina millj-
ón króna í verðlaunafé.
Steinunn A. Björnsdóttir
Hörður Áskelsson stýrir söng í Hallgrímskirkju (ÁSD)
Ungmenni fræðast um þrenninguna
Helgina 6.-8. október 2006 stóðu Kristileg skólasamtök (KSS)
fyrir skólamóti í Vatnaskógi fyrir ungmenni á aldrinum 15-20
ára. Alls tóku um 100 ungmenni þátt í mótinu sem þótti takast
vel. Þema helgarinnar var Heilög þrenning og voru þrjú 30
mínútna erindi flutt um hvern hluta þrenningarinnar.
Sr. Guðni Már Harðarson fjallaði um Guð - skaparann,
Sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir um Jesú - frelsarann og
Salvar Geir Guðgeirsson guðfræðingur um Heilagan anda
- huggarann. Sjö umræðuhópar fóru síðan fram á morgn-
anna þar sem ungmenninn ræddu saman um þríeinan Guð.
Stjórnendur umræðuhópanna voru: Björgvin Þórðarson
framkvæmdastjóri Háteigskirkju, Helga Magnúsdóttir
starfsmaður í sendiráði Bandaríkjanna,
Guðni Már Harðarson skólaprestur,
Salvar Geir Guðgeirsson guðfræðing-
ur, Hermann Ragnarsson háskólanemi,
Magnús Viðar Skúlason þjónustustjóri
og Elín Njálsdóttir kennari
Dagskráin var skipulögð af stjórn
KSS en hana skipa fimm mennta-
skólanemar: Benjamín Ragnar
Sveinbjörnsson, Anna Lilja Einarsdóttir,
Kristjana Kristinsdóttir, Hilmar Jónsson
og Perla Magnúsdóttir í boði voru ýmis
verkstæði, stuttmyndagerð, danshóp-
ur, sönghópur, íþróttir og svo auðvitað
mikill frjáls tími.
Heimasíða Kristilegra skólasamtaka
er www.kss.is
Guðni Már Harðarson