Víðförli - 15.01.2007, Side 10
VÍÐFÖRLI
10
26. ÁRG. 1. TBL.
Metþáttaka á Landsmóti
Æskulýðsfélaga
Æskulýðssamband Þjóðkirkjunnar - ÆSKÞ - gerði samning
við fræðslusvið Biskupsstofu um að taka að sér alla umsjón
og rekstur Landsmóta næstu árin. Þetta var stórt skref fyrir
nýstofnað samband en um leið mikilvægt til framtíðar litið.
Margir lögðu hönd á plóginn til þess að mótið yrði sem best
úr garði gert. Má með sanni segja að vel hafi tekist til í alla
staði og greitt hafi verið úr þeim hnökrum sem upp komu
fljótt og örugglega. Mótstjórar voru Sr. Hildur Eir Bolladóttir
og Magnea Sverrisdóttir djákni ásamt undirritaðri.
Metþátttaka var á Landsmóti æskulýðsfélaga en 339
unglingar og leiðtogar lögðu leið sína í Vatnaskóg til kær-
leiksríkrar samveru helgina 20.-22. október s.l. Hr. Karl
Sigurbjörnsson biskup var heiðursgestur mótsins en hann
ávarpaði landsmótsgesti á kvöldvöku á laugardagskvöldinu
við mikinn fögnuð allra viðstadda.
Yfirskrift mótsins var "Kjóstu kærleikann" XK og var í fyrsta
skipti samið sérstakt landsmótslag sem ber sama heiti og yfir-
skrift mótsins. Þeirri nýbreytni var komið á að prestar sinntu
sálgæsluvakt á mótinu. Er þetta fyrirkomulag í mótun, en nú
var sá háttur hafður á að leiðtogunum var sagt frá sálgæslu-
vaktinni og að unglingarnir hefðu aðgang að sálgæsluvið-
tölum alla helgina, var þetta nýtt að nokkru leiti. Góður hópur
presta var á mótinu og voru þeir virkjaðir í þetta ásamt fleiru.
Að kynnast ólíkum aðstæðum
Fræðsla mótsins miðaði að því að krakkarnir kynntust
ólíkum aðstæðum fólks og náðu þannig að skynja að kær-
leikurinn kristallast í því að setja sig í spor annarra, að elska
fjölbreytileikann og láta aðstæður náungans sig ætíð varða.
Markmiðið var skýrt: Að unglingarnir geri sér grein fyrir því
að með að kjósa kærleikann eru þau að kjósa Krist - X-K.
Þess vegna var kallað til fólk úr ýmsum áttum til að tala
um ólíka lífsreynslu sína. Unglingarnir völdu sér síðan lífs-
reynsluhópa. Fjallað var um það að vera fatlaður og full-
frískur, um fíkn og frelsi, stríð og frið, samkynhneigð og
gagnkynhneigð, íslendinga og útlendinga, stráka og stelpur
og að gefa og þiggja hjálp.
Gestir mótsins voru: Freyja Haraldsdóttir, Vilhjálmur Svan
Jóhannsson, Þórir Guðmundsson, Grétar Einarsson, Akeem,
Sr. Hulda Hrönn Helgadóttir og Ármann H. Gunnarsson.
Verkstæði, smiðjur og Hjálparstarfssjopppa
Eins og fyrri ár voru dagskrártilboð í boði leiðtoganna
sjálfra. Úr þeirra smiðju kom m.a trúðasmiðja, brúðugerð,
vinabandagerð, söngsmiðja, hljómsveitarsmiðja, táknmáls-
smiðja, snyrtismiðja o.fl. Sjoppa var rekin á staðnum eins
og áður en ágóðinn rann í fyrsta skipti til Hjálparstarfs kirkj-
unnar. Það var æskulýðsfélag Seltjarnarneskirkju sem sá
um að reka sjoppuna.
Ég vil að lokum þakka öllum þeim sem komu að lands-
mótinu á einn eða annan hátt. Þakka leiðtogunum fyrir
frábæra frammistöðu og elju alla þessa helgi. Mótstórunum
Sr. Hildi Eir og Magneu þakka ég kærlega fyrir samstarfið
og styrka stjórn á mótinu. Síðast en ekki síst bið ég góðan
Guð að vaka yfir þeim fjölda ungmenna sem sóttu þetta
mót og munu sækja mótið á nýju ári. Megi landsmót fram-
tíðarinnar efla trú og breytni meðal æsku landsins.
Arna Grétarsdóttir, formaður ÆSKÞ