Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi - 01.12.1995, Page 15
Hólmfríður Gunnarsdóttir og Lars-Olof Juhlin
Lars-Olof sagði að hann hefði reynslu
fyrir því þegar hann fylgdist með nem-
endum í sálgæslu að afstaða til kynlífs
væru oft Þrádnar í Götu. Hafa skyldi í
huga að það að virða væri ekki það sama
og að fallast á. Hlutverk sálusorgarans
væri ekki að vera með siðferðis-
prédikanir heldur að leysa úr viðjum og
miðla fyrirgefningu og náð.
Það sem menn læra af því að kynnast
berskjöldun, þjáningu og dauða er að
eina leiðin til að ná til berskjaldaðs
manns er að þora að verða berskjaldaður
sjálfur. Að gefa sig út í það leiðir til
kvalafullra tilfinninga, vanmáttar og
hjálparleysis. Það leiðir til þess að menn
fá hrukkur í andlitið en kannski þrosk-
aðra sálarlíf.
Sársaukafyllsta uppgötvunin hjá þeim
sem smitast er að það er ekki hægt að
beita venjulegum varnarháttum til að
halda dauðanum í fjarlægð. „Dauðinn
æðir nakinn í áttina til mín.“ Þar sem
sjúkdómurinn tengist kynlífi og ekki
hvað síst samkynhneigð burðast fólk oft
með þá tilfinningu að það fyrirverður sig
og finnur til sektarkenndar. í ritningunni
segir, að sannleikurinn muni gjöra yður
frjálsa. En þeir sem hafa smitast af hiv-
veirunni hljóta að velta því fyrir sér hvort
svo sé. Spurningin er hvort menn fá þann
skilning sem þeir þurfa þegar þar er
komið. Hvers vegna hjálpum við þá ekki
fólki til að lifa við sannleikann? Hver
hefur klæði til að skýla nekt sálarinnar?
Hræðslan er fylgifiskur sjúkdómsins.
Hræðslan við að eiga þetta skilið vegna
þess hvemig lífinu var lifað, hræðslan
við að verða brennnimerktur, hræðslan
við að skaða aðra í samlífi, hræðsla við
hvernig umhverfið bregst við. Það
verður að vinna gegn fordómum og
hræðslu með stöðugri fræðslu.
Afstaða kirkjunnar varðandi kynlíf
getur ekki samkvæmt kristnum viðhorf-
um verið að leggja til að fólk forðist kær-
leika og kynlíf heldur hlýtur þvert á móti
að miða að því að hjálpa fólki til að
öðlast dýpri kærleika, stunda ábyrgðar-
fullt kynlíf og eins hættulaust kynlíf og
kostur er. Þetta er ögrun fyrir kirkjuna,
ögmn, sem er jafn spennandi og hún er
áríðandi. Ef við tökum þessari ögrun
erum við í takt við tímann og mætum
fólki í hversdagslífi þess og raunveru-
leika.
Kærleikurinn á erfitt uppdráttar þar
sem hræðslan er til staðar. Hræðslan er
ekki hættulaus. Þegar hræðslan við hiv-
smit verður til dæmis svo mikil að fólk
þorir ekki almennilega lengur að vera
nærri fólki, þorir ekki að mynda til-
finningatengsl við aðra, þorir ekki að lifa
kynlífi, verður hræðslan næstum verri
skaðvaldur en smitið og sjúkdómurinn.
Ef þjóðfélagið sjálft setur þessa hræðslu
í kerfi verður þjóðfélagið ómanneskju-
legt. Það versta sem getur gerst er ef heil
kynslóð verður hrædd við kærleikann.
Jákvæði
hópurinn
Sjálfstyrktarhópur HlV-smitaðra
er starfandi innan vébanda Al-
næmissamtakanna.
Markmið hans eru:
• að gefa HlV-jákvæðu fólki
tækifæri til að hittast á eigin for-
sendum í öruggu umhverfi.
• að gefa félögunum tækifæri til
að taka afstöðu til eigin að-
stæðna með félagslegu sam-
neyti og þátttöku í ýmsum
vinnuhópum.
• að taka þátt í því að bæta
aðstæður HlV-jákvæðra al-
mennt, jafn félagslega, heilsu-
farslega og pólitískt.
• að taka þátt í því að breiða út
raunhæfar upplýsingar um HIV-
smit og alnæmi, svo og hagi
HlV-jákvæðra.
Hvað gerist í Jákvæða hópnum ?
Félagarnir standa sjálfir fyrir
öllu starfi í hópnum og því fer
starfsemin eftir þörfum þeirra,
orku og tíma. Forgöngumenn um
stofnun hans voru HlV-jákvæðir
sem sótt höfðu ráðstefnur jákvæðra
í Stokkhólmi og Kaupmannahöfn.
Hvernig nær maður sambandi
við Jákvæða hópinn ?
Viljir þú gerast félagi eða
fræðast meira um Jákvæða hópinn
getur þú hringt á skrifstofu
Alnæmissamtakanna á íslandi í
síma 552-8586 milli kl. 12 og 17
alla virka daga og fengið nánari
upplýsingar. Þá verður þér vísað á
tengilið Jákvæða hópsins. Fyllsta
trúnaðar er gætt í hvívetna.
Félagar í Jákvæða-hópnum hafa
verið með fræðsluerindi um allt
land.
Frekari upplýsingar fást á skrif-
stofu.
15