Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi - 01.12.1995, Page 17

Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi - 01.12.1995, Page 17
leiddi í ljós að þær HlV-jákvæðu höfðu að meðaltali átt sér 9 rekkjunauta en HlV-neikvæðar 16. Hún fellur þess vegna um sjálfa sig, kenningin um að við sem höfum smitast af HlV-veirunni séum fjöllyndari í ástum en aðrar konur.“ Helgin sem breytti svo mörgu - Þegar þú lítur til baka, hvað fannst þér best og mikilvægast við þessa hvíta- sunnudaga í Noregi? „Auðvitað skipti mestu máli að fá tækifæri til að hitta þessar stúlkur og heyra sögu þeirra. A Islandi þekkja fáar HlV-jákvæðar konur hver aðra. Við tókum allar þátt í umræðu- og vinnu- hópum og ég valdi meðal annars hóp sem velti upp spurningum og van- damálum í sambandi við það að segja öðrum frá því hvernig komið væri. Þegar ég fór til Noregs í vor hafði ég sagt systkinum mínum frá því að ég væri HlV-jákvæð, en ekki öðrum sem eru mér nánir. En þessi helgi breytti svo mörgu. Mamma er dáin en ég á föður á lífi og fjórum mánuðum eftir ráðstefnuna í Noregi herti ég upp hugann og sagði pabba frá því að ég væri HlV-jákvæð. Það gekk vonum framar og mér leið svo miklu betur á eftir. Allt þetta varð svo til þess að ég leitaði á vettvang Alnæmissamtakanna og fór síðan að starfa með Jákvæða hópnum. Maður má ekki lokast inni með sinni reynslu og sínu sérstaka hlutskipti - við verðum að brjóta ísinn og leita til þeirra sem eru að kljást við sömu erfiðleika og sömu reynslu." -Þ Upplýsringar Alnæmissamtökin reka upplýsingamiðstöð fyrir al- menning og athvarf fyrir smitaða og sjúka og aðstandend- ur þeirra. Upplýsingar fást á skrifstofu. Skrifstofan er opin alla virka daga kl. 12-17. Síminn er 552-8586 faxnúmer 552-0582. Netfang Aids@Centrum.is Fréttabréf Fréttabréf Alnæmissamtakanna á íslandi hefur komið út allt að 4 sinnum á ári og er dreift til félagsmanna, í skóla, félagsmiðstöðvar, heilsugæslustöðvar og víðar. Núna kemur það út í breyttu broti og fleiri eintökum og verður dreifing meiri í samræmi við það. FJármál Alnæmissamtökin hafa engan fastan tekjustofn nema félagsgjöld en hafa notið stuðnings frá Rauða krossi íslands, Öryrkjabandalagi íslands, ríkinu og Reykja- víkurborg. Einnig hafa félaginum borisl frjáls framlög sem skipt hafa sköpum við rekstur þess. Einstaklingar sem eru HlV-smitaðir eða með alnæmi geta sótt um fjárstuðning til félagsins. Styrkir eru ekki veittir til þeirra hluta sem opinberir aðilar eiga að annast. Mrinnringarguðsþjónusta Alnæmissamtökin hafa árlega staðið að minningar- guðsþjónustu um þá sem látist hafa úr alnæmi. Er hún haldin síðasta sunnudag í maí og er útvarpað á Rás 1. 17

x

Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi
https://timarit.is/publication/1509

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.