Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi - 01.12.1995, Side 18

Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi - 01.12.1995, Side 18
HlV-jjákvæðír á ráðstcfnu í Noregí: Nord-AII 1995 / Ahverju hausti hittast HIV- jákvæðir á Norðurlöndum á sameiginlegri ráðstefnu og það hafa þeir gert í sjö ár. Þar hafa 100-200 manns skipst á skoðunum, miðlað reynslu sinni, stillt saman krafta sína í helstu baráttu- málum og gert sér glaðan dag. Og þenn- an vettvang sinn kalla þau Nord-All. Ingi Rafn Hauksson var einn af átta þátt- takendum frá íslandi sem hittist á Nord- All í ár, dagana 28. september til 1. október, og hann segir hér frá ráðstefn- unni. „Hópurinn hittist í Fagernes sem er smábær norðan við Osló, en þangað er þriggja tíma akstur úr höfuðborginni. Og við vorum tuttugu sem komum þangað fimmtudaginn 28. september til þess að hefja fundarhöldin. Síðar áttu svo fleiri eftir að bætast í hópinn. En Nord-All er í rauninni tvískipt ráðstefna. Fyrstu tvo dagana er þingað um þau pólitísku og félagslegu málefni sem tengjast HIV- jákvæðum á Norðurlöndum og þar áttu fimm Norðurlönd fjóra fulltrúa hvert, en ennþá hafa hvorki Færeyjar né Grænland tekið þátt í starfi okkar. Síðari dagana þrjá komu svo 180 manns til Fagernes og þá breyttust áherslumar. Þá skipumst við í litla umræðu- og vinnuhópa eða „work- shops“ sem tókust á við ólfk málefni, bæði auðveld mál og erfið sem tengjast stöðu okkar sem lifum lífinu með HIV- veiruna í líkamanum.“ Hetitar umræður um séttvarnarlög - Pólitísk og félagsleg baráttumál HIV- jákvæðra, þar er líklega af mörgu að taka? „Já, í rauninni era málin fleiri og stærri en svo að við getum komist yfir allt á tveimur dögum. En fulltrúar hverr- ar þjóðar bera upp þau málefni sem þeim þykir brýnust og það auðveldar okkur vinnuna að sum þeirra höfum við rætt nokkram sinnum áður og erum þess vegna ekki lengur á byrjunarreit. Fundarhöldin felast að talsverðu leyti í því að halda mikilvægum málefnum til streitu. Heitustu umræðumar síðastliðin þrjú ár hafa snúist um sóttvarnarlög á Norðurlöndum sem hafa skert persónu- frelsi okkar á mjög alvarlegan hátt. Þar sem þau hafa tekið gildi er löglegt að hneppa HlV-jákvæða í stofufangelsi fyrir meintan skort á ábyrgð og í Svíþjóð og Finnlandi hefur slíkum lögum þegar verið beitt þrátt fyrir áköf mótmæli þeirra sem neita að trúa því að fangelsi veiti þegnunum vöm gegn alnæmi. Sótt- vamarlög gagnvart HlV-jákvæðum gera að okkar viti ekkert annað en að veita almenningi falska öryggistilfinningu. Þetta mál brennur líka heitt á okkur hér á íslandi því fyrir alþingi liggur núna framvarp til sóttvamarlaga sem veitir yfirvöldum rétt til að takmarka frelsi HlV-jákvæðra einstaklinga. Of margir smohhar í farangrinum Síðan vöktu Danimir máls á skyldu málefni, það er að segja frelsinu til að ferðast. Kannski var það þetta mál á fundinum sem kom mér mest á óvart. Mig grunaði ekki að hömlumar á ferða- frelsi væri svo útbreidd „alnæmisvöm“ í heiminum sem raun ber vitni. Málið snýst um það að stjórnvöld fjölmargra þjóða um allan heim neita HIV- jákvæðum um landvist ef vitað að þeir beri veiruna í blóðinu og víða nægir grunurinn einn til að synja þeim um dvalarleyfi. I þessu sambandi hugsar maður kannski fyrst um þjóðir þriðja og fjórða heimsins, en hér á blaði era líka Bandaríkin og fjölmargar þjóðir í Evrópu, til dæmis Belgía, Þýskaland og Finnland auk flestra þjóða í austurhluta álfunnar. Erlendir nemendur sem njóta opinberra styrkja til náms í Finnlandi eru skyldaðir til að gangast undir HlV-próf og yfirvöld áskilja sér rétt til að vísa þeim úr landi ef þeir reynast HIV- jákvæðir. Þá voru sagðar fáránlegar en sannar sögur af njósnum um útlendinga víða um heim þar sem ferðafrelsi okkar er skert. Dagbækur eru gerðar upptækar og þýddar, óvenju margir smokkar í farangrinum kosta strangar yfírheyrslur og brottvísun úr landi strax við landa- mæri og þar fram eftir götunum. Það segir sig sjálft að þær þjóðir sem grípa til þessara úrræða hljóta að hafa heldur vonda samvisku í forvamarmálum.“ - En á hvem hátt getur Nord-All komið mótmælum sínum á framfæri? „Norðurlöndin njóta nú einu sinni mik- ils álits á alþjóðavettvangi fyrir framlag sitt til heilbrigðismála og ekkert er eins mikilvægt og að neita allri samvinnu við löndin sem beita HlV-jákvæða valdi á þann hátt sem hér er lýst. Alþjóða- heilbrigðismálastofnunin, WHO, hefur ákveðið að neita þeim þjóðum, sem vinna svona gegn okkur, um fjárhagsleg- an og sérfræðilegan stuðning til að halda ráðstefnur og fundi um HIV og alnæmi í viðkomandi löndum þar til hömlum á ferðafrelsi hefur verið aflétt. Og Nord- All styður eindregið þessa ákvörðun. Samtök HlV-jákvæðra á Norðurlöndum taka heldur ekki þátt í ráðstefnum í þess- um löndum á meðan við eram misrétti beitt hvað snertir ferðafrelsi og grófar persónunjósnir. Svo reynum við með áskorunum og viðtölum við áhrifamenn í hverju landi að knýja stjómvöld og sér- fræðinga um HIV og alnæmi til þess að gera það sama.“ Annars konar lækningarleidir - Hvað með umræðuna um lyf og margvíslegar leiðir til að styrkja heils- una? Þessi þáttur hlýtur að vera hápóli- tískt mál fyrir HlV-jákvætt fólk. „Já, það má segja að vikið sé að þessu á hverri einustu ráðstefnu okkar í Nord- All. Norðmenn hófu umræðuna í þetta sinn og settu fram drög að kröfum um að HlV-jákvæðir fengju að velja sér leiðir þegar lyf og lækningar era annars vegar. Þó að viðurkennd alnæmislyf séu okkur ókeypis fáum við lítinn eða engan stuðn- ing til að að styrkja okkur með nála-

x

Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi
https://timarit.is/publication/1509

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.