Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi - 01.12.1995, Síða 22

Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi - 01.12.1995, Síða 22
* Ályktanir um stefnumétun í félagsmálum HlV-Jákvædra samþykktar á ráðstefnu NORD-ALL dagana 18.-19. september 1995 Ályktun nr. I Skert ferðafrelsi HlV-smitaðra Þátttakendur á NORD-ALL '95 for- dæma öll þau lönd sem að einhverju leyti takmarka ferðafrelsi HlV-smitaðra ein- staklinga. Samþykkt var einróma að styðja ákvörðun Alþjóðaheilbrigðismála- stofnunarinnar (WHO) að styrkja ekki þessi lönd fjárhagslega né veita þeim faglegan stuðning til að halda HIV/ AIDS-ráðstefnur. Alyktun nr. 2 Réttur hinna HlV-jákvæðu til ein- staklingsbundinnar meðferðar Unnið út frá þeim rétti manneskjunnar að fá að ákvarða sitt eigið líf og heilsu og vera fjárhagslega í stakk búin til þess. Það þykir sýnt að óhefðbundnar með- ferðir hafa reynst HlV-smituðum mjög vel, bæði sem fyrirbyggjandi meðferð og einnig til að koma jafnvægi á andlega og líkamlega heilsu. Krafa NORD-ALL er að stjómvöld á Norðurlöndum geri hefðbundnum og „viðurkenndum“ óhefðbundnum með- ferðum (sbr. nudd, nálastungur, grasa- lækningar o.s.frv.) jafn hátt undir höfði. NORD-ALL hvetur til aukinnar samvinnu milli hefðbundinnar og óhefð- bundinnar meðferðar. Þeir sem velja hefðbundnar meðferðir fá kostnað sinn að mestu greiddan, en þeir sem velja óhefðbundnar þurfa að standa straum af öllum kostnaði sjálfir sem í flestum til- fellum reynist þeim ofviða. Við krefjumst þess að yfirvöld á Norðurlöndum veiti þeim sem velja „viðurkenndar“ óhefðbundnar meðferðir fjárhagslegan stuðning. Ályktun nr. 3 Félagsleg réttindi HlV-jákvæðra HlV-jákvæðir krefjast sama réttar til lífsskilyrða og öðmm manneskjum er boðinn og að sjúkdómsferli þeirra og dauða sé sami sómi sýndur. Sem HIV- smitaðir krefjumst við sömu réttinda og aðrir þegnar þjóðfélagsins. Þegar sjúk- dómurinn er kominn á það stig að við getum ekki lengur lifað eðlilegu lífi krefjumst við skjótrar málsmeðferðar í sambandi við félagsleg réttindi því að sjúkdómurinn þróast mjög hratt á þessu stigi. Alltof oft upplifum við að sam- hliða okkar veikindum sem HlV-jákvæð þurfum við að kljást við félagslega einangrun. Krafa NORD-ALL er: • Skjótari úthlutun hentugs hús- næðis. • Sérþjálfað fagfólk sem veitt getur ráðgjöf og aðstoð, t.d. í sambandi við lífeyrisréttindi. • Að HlV-smitaðir með slök lífeyris- réttindi fái meiri fjárhagslegan stuðning þegar þeir verða óvinnu- færir vegna veikinda. • Betri kosti en hefðbundin elli- og umönnunarheimili þar sem margir alnæmissjúklingar eru ungt fólk og hafa því aðrar þarfir en margir umönnunarsjúklingar. Ályktun nr. 4 Eiturlyfjaneytendur - lyfjagjöf/sár- saukameðferð Við krefjumst þess að HlV-jákvæðir eiturlyfjaneytendur skuli ekki brenni- merktir vegna eiturlyfjanotkunar/Metad- onmeðferðar. Við krefjumst þess einnig að HlV-jákvæðir eiturlyfjaneytendur eigi rétt á sömu meðferð og aðrir HIV- jákvæðir og tekið verði tillit til meiri lyfjaþarfar. A þetta við um hvort heldur þeir kjósa að dvelja heima, á sjúkrahúsi, sambýli eða sambærilegu. Ályktun nr. 5 Misrétti gagnvart HlV-jákvæðu fólki I mörg ár hefur Nord-All unnið að því að hamla á móti ákvæðum í lögum sem fela í sér misrétti gagnvart HlV-jákvæðu fólki. Löggjafarsamkomur Norðurlanda hafa ekki tekið tillit til ályktana Nord-All þar að lútandi. Þvert á móti er nú ætlunin í Svíþjóð að auka á misrétti með því að setja sérstök lög um HlV-smitun, sem fela í sér í raun að öll kynmök HlV-smitaðs einstaklings verða refsiverð. Tilhneigingar til þess að herða lög að þessu leyti verður einnig vart annars staðar á Norðurlöndum og rýrir það enn réttaröryggi HlV-jákvæðra. Ef réttarörygginu er varpað fyrir róða getur það leitt til hreinna galdraréttar- halda yfir HlV-jákvæðum þar sem litlar kröfur em gerðar til sönnunar. Nord-All krefst þess að afnumin verði gildandi lög sem fela í sér misrétti gagn- vart hiv-jákvæðum og andmælir sérstakri lagasetningu sem er fyrirhuguð í Svíþjóð um HlV-smitun. Jákvæðí hópurínn Sjálfstyrktarhópur HlV-smitaðra og fólks með alnæmi, Jákvæði hópurinn, er sjálfstætt félag sem er starfandi innan vébanda Alnæmissamtakanna. Upplýsingar um hópinn fást á skrifstofu Alnæmissamtakanna. Aðstandendahópurínn Sjálfstyrktarhópur aðstandenda HlV-smitaðra og fólks með alnæmi er starf- andi hjá Alnæmissamtökunum. Hópurinn hittist reglulega og efnir til fræðslufunda fyrir aðstandendur um ýmsa þætti alnæmis. Frekari upplýsingar fást á skrifstofu Alnæmissamtakanna. 22

x

Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi
https://timarit.is/publication/1509

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.