Hinsegin dagar í Reykjavík - aug. 2009, Síða 30

Hinsegin dagar í Reykjavík - aug. 2009, Síða 30
Fátt er mönnunum mikilvægara en að þekkja sögu sína og rætur og fáar þjóðir leggja jafn mikla rækt við þá þekkingu og Íslendingar. Sagan er okkur eilífur efniviður til að skilja og túlka lífið á líðandi stund. Stöðugt beitum við sögulegum staðreyndum til þess að réttlæta orð okkar og gerðir, oft án þess að taka eftir því, og söguna lesum við bæði sem fyrirmynd og víti til varnaðar. Það er til dæmis ekki einleikið hve Sturlunga saga er þjóðinni ofarlega í huga á þeim örlagaríku tímum sem hófust haustið 2008. En heimildir um sögu þjóðarinnar eru ekki allar jafn sýnilegar, öðru nær. Til skamms tíma sá kvenna varla nokkurn stað í þeirri Íslandssögu sem kennd er í skólum, rétt eins og þær hefðu aldrei verið til, hvað þá að þær hefðu tekið til hendinni. Og allt fram undir aldamótin 1900 var fátæk alþýða varla nefnd á nafn á bókum nema þá helst þegar hún komst í kast við konungslög og var dæmd til tugt- húsvistar eða lífláts. Sama er að segja um það fólk sem lagði ást og girndarhug á sitt eigið kyn. Það er helst að glitti í tilveru þess á einstaka máðu skjali þar sem varað er við dauða- syndum og losta. Saga okkar hefur verið falin, bæld og strokuð út, og því er vandi þeirra mikill sem leita að hinsegin veru- leika forfeðra sinna og formæðra. Samt er þessi saga jafngömul mannkyninu, hún skiptir máli til skilnings á okkar eigin tilveru og tekur á sig fleiri birtingarmyndir en tölu verður á komið. allra laglegasti piltur Þótt Íslandssagan sé snauð af vitnisburðum um samkynhneigðar ástir er þar samt að finna fáeina mola sem segja sitthvað um tilfinningar og tíðaranda. Lítum á örstutta vitnisburði um tvo skólapilta frá 19. öld og hverfum 127 ár aftur í tímann. Vorið 1882 sat piltur norðan úr Hörgárdal með dag- bókina sína á hnjánum í litlu herbergi við Austurvöll í Reykjavík og trúði henni fyrir tilfinningum sínum. Latínuskólapilturinn Ólafur Davíðsson var ástfanginn og það á sínum sérstöku nótum: „Skelfing þykir mér vænt um Geir. Hann er líka allra laglegasti piltur og virðist vera vel viti borinn. Hann er unnustan mín. Ég kyssi hann og læt dátt að honum, hreint eins og hann væri ungmey. Hann hefur líka leitt okkur Gísla saman. Hann er líka unn- usta Gísla. (Ég þori samt ekki að ábyrgjast það). Við gengum oft með unnustum vorum, og með því vér áttum báðir sömu unnustu þá urðum vér að ganga saman.“ Pilturinn sem þetta ritaði var nýorðinn tvítugur þegar hér var komið sögu og á sínum síðasta vetri í efsta bekk Reykjavíkur lærða skóla sem síðar hét Menntaskólinn í Reykjavík. Gísli Guðmundsson, sem Ólafur nefnir, var bekkjarbróðir hans, en Geir Sæmundsson var þennan vetur fimmtán ára busi í skóla, prestsonur frá Hraungerði í Flóa. Í árbók Lærða skólans lýsir hann sjálfum sér með þessum orðum vorið sem hann útskrifaðist: „[Geir] var meðalmaður á hæð og vel á sig kominn, dökkhár og fríður í andliti og ekki karlmannlegur. Hann hafði meðalgáfur og meðalkunnáttu í námsgrein- um skólasveina. Hann var söngmaður ágæt- ur og hafði forkunnarfagran og þýðan róm, en Bakkusar vinur var hann.“ Í hálfrökkrinu Sú venja ríkti í Lærða skólanum, líkt og löngum hefur tíðkast í heimavistarskólum Breta, að piltar í efsta bekk veittu busunum vernd í skóla, en aðrir piltar níddust óspart á þeim. Leitt hefur verið getum að því að þannig hafi kynni þeirra Ólafs og Geirs hafist, að Ólafur hafi verið í hópi verndar- anna þennan vetur, en jafnframt skal haft í huga að feður þeirra voru aldavinir og kært samband milli fjölskyldna þeirra. Þann 28. mars skrifar Ólafur þetta í dagbók sína: „Eftir átta gekk ég með Gísla Guð- mundssyni og Geir og seinast fórum við inn til Gísla og sátum þar stundarkorn. Vér kveiktum ekki. Það er annars nógu notalegt að sitja svona í hálfrökkrinu hjá góðum kunningjum og tala út um alla heima og geima. En það er ekki gaman að sjá annan sitja undir kærustunni og sjá hana láta dátt að honum með öllu móti, sjá hana kyssa hann, faðma hann að sér og mæla til hans 30 Loksins varð ég þó skotinn! E f t i R Þ o R V a l d k R i s t i n s s o n

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.