Hinsegin dagar í Reykjavík - ágú. 2009, Blaðsíða 32

Hinsegin dagar í Reykjavík - ágú. 2009, Blaðsíða 32
að kortleggja, skrá og hemja mannlífið á 19. öld færðust læknavísindi og refsiréttur í aukana og sáu það meðal annars sem tilgang sinn að verja heiminn gegn öllu því sem vék frá hinni góðu gagnkynhneigð. Þeir sem framfylgdu lögum og rétti gengu hraustlega til verka, og nærtækt er að minnast réttarhaldanna yfir Oscar Wilde í Lundúnum árið 1895 eða lögregluaðgerða gegn hommum í höfuðborg Íslendinga, Kaupmannahöfn, undir lok 19. aldar eftir að refsilöggjöfin hafði verið hert. Þessar aðgerðir miðuðu fyrst og fremst að því að hræða karlmenn frá því að stofna til náins samneytis og ásta hver við annan. Trúlega þekkti Ólafur Davíðsson blaða- fréttir af slíkum aðgerðum á árum sínum í Kaupmannahöfn rétt eins og aðrir íbúar borgarinnar þótt engum vitnisburðum um það sé til að dreifa, en í Höfn dvaldi hann við nám og störf frá 1882 og allt til ársins 1897 þegar hann sneri heim til Íslands. Ekkert er vitað um ástarlíf hans eftir lokaveturinn í Lærða skólanum, og þótt hann kallsi stundum um girnd sína til kvenna og láti lítið eitt fjúka um þær úr penna sínum, fer engum sögum af ástum hans með konum – né heldur körlum. Eitt og annað mun þó hafa verið hvíslað um hneigðir hans til karla í sveitum norðan- lands. Ólafur kvæntist aldrei og eignaðist enga afkomendur, en eftir að hann sneri heim frá Kaupmannahöfn vann hann að fræðilegum hugðarefnum sínum heima í Hörgárdal og sinnti annað slagið kennslu við Gagnfræðaskólann á Möðruvöllum. Um aldamótin 1900 varð Geir Sæmundsson prestur á Akureyri, þá kvæntur maður og faðir tveggja barna, en ekki er vitað um samskipti þeirra Ólafs þau fáu ár sem þeir voru samtíða í Eyjafirði. Endalok Ólafs Davíðssonar urðu svipleg og ýmsum nokkur ráðgáta. Hann drukknaði í Hörgá, einn á ferð á hesti sínum, aðfaranótt 6. september 1903, 41 árs að aldri. Meðal heimilda: Bjarki Bjarnason (ritstj.). (2006). Sveinaástir í Lærða skólanum. Ísland í aldanna rás 1800–1899. Reykjavík: JPV útgáfa Steindór Steindórsson. (1967). Ólafur Davíðsson Viltu vera með atriði í gleðigöngunni? Atriðum í gleðigöngunni hefur fjölgað ár frá ári og mörg hver hafa verið einstaklega glæsileg. Til þess að setja upp gott atriði er mikilvægt að hugsa málin með fyrirvara. Góð atriði þurfa ekki að kosta mikla peninga. Gott ímyndunarafl og liðsstyrkur vina og vandamanna dugar oftast nær. Þátttakendur sem ætla að vera með form- leg atriði í gleðigöngunni verða að sækja um það til Hinsegin daga eigi síðar en 3. ágúst. Nauðsynlegt er að skrá atriði með því að fylla út eyðublað sem finna má á www.gaypride. is. Nánari upplýsingar veita Katrín göngustjóri, kaos@simnet.is, eða Heimir Már framkvæmda- stjóri, heimirmp@internet.is Einnig má hafa samband við Katrínu í síma 867 2399 eða Heimi Má í síma 862 2868. Hægt er að sækja um styrki til einstakra gönguatriða en Hinsegin dagar áskilja sér rétt til að samþykkja eða hafna öllum beiðnum um styrki í samræmi við fjárhag hátíðarinnar. Byrjað verður að raða göngunni upp við lögreglustöðina á Hlemmi kl. 12:00, laugardaginn 8. ágúst og þeir þátttakendur sem eru með atriði verða skilyrðislaust að mæta á þeim tíma. Gangan leggur stundvíslega af stað kl. 14 og bíður ekki eftir neinum. Hinsegin dagar hvetja einnig fólk til að að fara ekki niður Laugaveg í göngunni á stærri ökutækjum en svo að þau komist með góðu móti leiðar sinnar. Hafa verður í huga öryggi vegfarenda í þeirri fræðimaður. Merkir Íslendingar VI. Reykjavík: Bókfellsútgáfan. Þorsteinn Antonsson. (1990). Sveinaást Ólafs Davíðssonar. Vaxandi vængir: Aftur í aldir um ótroðnar slóðir. Reykjavík: Fróði. s c H o o l B o y s i n l o V E Ólafur davíðsson (1862–1903) was one of iceland’s most brilliant folklorists in the 19th century. in this essay, Þorvaldur kristinsson discusses entries from the diary he wrote as a twenty year old school-boy in Reykjavík. in them, Ólafur describes his love and affection for another young friend during the spring of 1882. these diary entries are remarkable for several reasons, primarily for being the clearest documented expression of homosexual love during the period, long before the icelandic people even thought of a name for such tendencies. not less interesting is the fact that these particu- lar entries were completely censored when Ólafur davíðsson’s diary was printed in 1955. they were first published in 1990. do you want a float or space in the parade? People who wish to perform a number in the parade must register before 3 August. You can register on the website www.gaypride.is, from the link “Parade Application” on the English ver- sion of the website, or send an e-mail to Katrín, kaos@simnet.is or Heimir, heimirmp@internet. is. Please inform us how many people will be participating in your number and whether it will involve a float or a car. We will also need the name, address and phone number of the contact person in charge. Participants please meet at 12 noon on Saturday, 8 August, by the Police Station at Hlemmur Square. The parade starts at 2 p.m. sharp. mannþröng sem er í miðborginni þennan dag og velja vagna í nánu samráði við göngustjóra hátíðarinnar. 32

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.