Hinsegin dagar í Reykjavík - aug. 2009, Side 46
38
stjórn og samstarfsnefnd
um Hinsegin daga í Reykjavík
Þau eru fjölmörg sem leggja hönd á plóg til að gera hátíð
Hinsegin daga að veruleika á hverju ári. Sum sýna þó meira
úthald en önnur við undirbúninginn og vinna hörðum höndum
í stjórn og samstarfsnefnd árið um kring, áður en kemur að
fjögurra daga stórhátíð:
Í stjórn Hinsegin daga í Reykjavík árið 2009 sitja Þorvaldur
Kristinsson, forseti, Kristín Sævarsdóttir, ritari, Jón Sævar
Baldvinsson, gjaldkeri, Katrín Jónsdóttir, erindreki, og
Heimir Mér Pétursson, framkvæmdastjóri.
Þeim til stuðnings, aðhalds og trausts starfar öflug
samstarfsnefnd að verkefnum ársins. Allir sem þess
óska geta tekið sæti í samstarfsnefnd, þar þarf ekkert til
nema góðan vilja og samstarfshug. Þau sem einkum hafa
komið að vinnu samstarfsnefndar síðastliðið ár eru: Anna
Jonna Ármannsdóttir, Ásdís Þórhallsdóttir, Birna Hrönn
Björnsdóttir, Elaine McCrorie, Erlingur Óttar Thoroddsen,
Eva María Þórarinsdóttir, Fríða Agnarsdóttir, Matthías
Matthíasson, Ragnar Ólason, Svavar G. Jónsson, Valgerður
Þ.E. Guðjónsdóttir, Valgerður Ægisdóttir, Vallý Helgadóttir
og Þórarinn Þór. Allt þetta fólk tekur síðan forystu í ýmsum
„deildum“ hátíðarinnar og ábyrgist meðal annars sölumál,
fánaborgir, öryggi hátíðargesta, fjáröflun og auglýsingar,
stjórn gleðigöngu, móttöku erlendra listamanna, ritstjórn
útgáfuefnis og rekstur þjónustumiðstöðvar svo fátt eitt sé
nefnt. Þegar hátíðin nálgast kalla stjórn og samstarfsnefnd
síðan á mikinn fjölda sjálfboðaliða sér til aðstoðar við að
gera hátíðina sem glæsilegasta.
H I N S E G I N F é L A G A S A M T Ö K Á Í S L A N D I
Hinsegin dagar í Reykjavík – Gay Pride
www.gaypride.is
Hinsegin dagar í Reykjavík – Gay Pride eru sjálfboðaliðasamtök sem
árlega skipuleggja Hinsegin daga í Reykjavík aðra helgi í ágúst.
Hinsegin dagar eru sjálfstæð félagasamtök, en ýmis önnur félög og
hreyfingar samkynhneigðra, tvíkynhneigðra og trans-fólks eru félagar í
Hinsegin dögum ásamt einstaklingum sem standa saman að skipulagi
hátíðarinnar. Allir sem styðja markmið hátíðarinnar í ágúst geta gerst
félagar í Hinsegin dögum með því að greiða árgjaldið, 500 kr.
Samtökin ´78 – félag hinsegin fólks á Íslandi
www.samtokin78.is / skrifstofa@samtokin78.is
Samtökin ´78 eru elstu og stærstu samtök hinsegin fólks á Íslandi. Þau
voru stofnuð í maí 1978. Markmið félagsins eru tvíþætt: Að vinna að
baráttu- og hagsmunamálum hinsegin fólks í því skyni að vinna þeim
jafnrétti á við aðra á öllum sviðum þjóðlífsins, og að skapa félagslegan
og menningarlegan vettvang til þess að styrkja sjálfsvitund þeirra,
samkennd og samstöðu um sérkenni sín. Mikill hluti af starfi félagsins
snýst um réttindabaráttu á opinberum vettvangi og þar hafa unnist
miklir sigrar. Í miðstöð félagsins á Laugavegi 3 starfar fólk að fræðslu
og félagsráðgjöf og veitir aðstoð og ráðgjöf um hinsegin málefni. Þar
er einnig að finna vandað og glæsilegt almenningsbókasafn, eitt hið
besta sinnar tegundar í Norður-Evrópu en það safnar eingöngu hin-
segin efni, bókum, tímaritum og kvikmyndum.
Trans-Ísland – félag transgender fólks á Íslandi
http://groups.google.com/group/trans-is-frettabref /
trans-is-frettabref@googlegroups.com
Trans-fólk er hinsegin að því leyti, að það breytir kynhlutverki sínu
meira eða minna, og skiptir jafnvel alveg um kynhlutverk, tímabundið
eða varanlega. Trans-fólk getur verið gagnkynhneigt, samkynhneigt
og allt þar á milli. Trans-Ísland var stofnað árið 2007. Félagið hefur
að markmiði sínu að skapa transgender fólki og fjölskyldum þeirra
menningarlegan vettvang og styrkja þannig sjálfsvitund þeirra, vinna
að laga- og réttarbótum, auka fræðslu til fagfólks og eiga samstarf
við sambærileg samtök, hópa og áhugafólk hérlendis og erlendis.
Fyrsta miðvikudag hvers mánaðar, stendur Trans-Ísland fyrir fundum í
húsnæði Samtakanna ’78 og eru nýir félagar velkomnir. Félagið er aðili
að Transgender Europe, Network and Council.
KMK – Konur með konum
www.kmk.is / kmk@kmk.is
Konur með konum, KMK, varð til sem grasrótarhreyfing lesbía fyrir
rúmum áratug og hefur starfað síðan með nokkrum hléum. Tilgangur
hreyfingarinnar er ekki síst að efla sýnileika lesbía, styrkja samstöðu
þeirra, gefa þeim tækifæri til að skemmta sér á eigin forsendum og
kynnast öðrum í hópnum. Stúlkurnar í KMK stunda íþróttir, einkum
blak, af kappi og hafa keppt á ýmsum alþjóðlegum leikum. Þá halda
þær sumarhátíðir og bregða sér sér í útilegur og veiðiferðir þegar vel
viðrar. Á vefsíðu KMK er að finna líflega umræðu sem átt hefur drjúg-
an þátt í að efla styrk hreyfingarinnar.
MSC Ísland www.msc.is / msc@msc.is
MSC Ísland var stofnað árið 1985. Klúbburinn hefur sínar klæðareglur,
leður, gúmmí-, einkennis- og gallaföt, og ástæðan er einfaldlega sú að
félagarnir vilja hafa karlmenn karlmannlega klædda og þá heldur ýkt
í þá áttina en hina. MSC Ísland hefur ferðamennsku og fyrirgreiðslu
við erlenda ferðamenn beinlínis á stefnuskrá sinni og félagið var
ekki síst stofnað til þess að Íslendingar gætu orðið formlegur aðili
að Evrópusamtökum slíkra klúbba, ECMC. Þau samtök hafa verið ein
virkustu alþjóðasamtök samkynhneigðra um áratugi og lagt mikið af
mörkum til baráttunnar fyrir stolti, sýnileika og samábyrgð.
Q – Félag hinsegin stúdenta
Félag hinsegin stúdenta, Q, var stofnað í janúar 1999 af einum 20
stúdentum við Háskóla Íslands. Hópurinn var fljótlega orðnir yfir
150 manns og hefur félagið haldið uppi blómlegu félagsstarfi síðan.
Markmið félagsins er að vera sýnilegt afl innan háskólasamfélagsins
á Íslandi og í forsvari þar þegar málefni samkynhneigðra ber á góma.
Félagið tekur virkan þátt í samtökum ungs hinsegin fólks í Evrópu,
IGLYO, og ANSO sem eru samtök hinsegin stúdenta á Norðurlöndum.
thanks to the Queer community
The queer comunity in Iceland has joined forces to celebrate Gay
Pride 2009 with festivities in Reykjavík during the second weekend in
August. We would like to thank five organizations and activity groups:
the National Queer Organization of Iceland, Samtökin ’78; Queer
University Student Union, Q; the women’s group Women with Women,
KMK; the transgender association Trans-Iceland, and the leather club
MSC Iceland.
útgefandi: Hinsegin dagar í Reykjavík – Gay Pride
Laugavegi 3 – 101 Reykjavík
www.gaypride.is
ábyrgðarmaður: Heimir Már Pétursson.
Hönnun: Tómas Hjálmarsson.
Merki Hinsegin daga: Kristinn Gunnar Atlason.
Ritstjórnarvinna: Þorvaldur Kristinsson, Erlingur Óttar Thoroddsen,
Heimir Már Pétursson, Páll Óskar Hjálmtýsson.
ljósmyndir: Geir Ragnarsson, Magnús Andresen,
Soffía Claessen og fleiri.
auglýsingar: Heimir Már Pétursson, Jón Sævar Baldvinsson,
Kristín Sævarsdóttir og Þorvaldur Kristinsson.
prentun: Ísafoldarprentsmiðja hf.
46