Hinsegin dagar í Reykjavík - Aug 2009, Page 46

Hinsegin dagar í Reykjavík - Aug 2009, Page 46
38 stjórn og samstarfsnefnd um Hinsegin daga í Reykjavík Þau eru fjölmörg sem leggja hönd á plóg til að gera hátíð Hinsegin daga að veruleika á hverju ári. Sum sýna þó meira úthald en önnur við undirbúninginn og vinna hörðum höndum í stjórn og samstarfsnefnd árið um kring, áður en kemur að fjögurra daga stórhátíð: Í stjórn Hinsegin daga í Reykjavík árið 2009 sitja Þorvaldur Kristinsson, forseti, Kristín Sævarsdóttir, ritari, Jón Sævar Baldvinsson, gjaldkeri, Katrín Jónsdóttir, erindreki, og Heimir Mér Pétursson, framkvæmdastjóri. Þeim til stuðnings, aðhalds og trausts starfar öflug samstarfsnefnd að verkefnum ársins. Allir sem þess óska geta tekið sæti í samstarfsnefnd, þar þarf ekkert til nema góðan vilja og samstarfshug. Þau sem einkum hafa komið að vinnu samstarfsnefndar síðastliðið ár eru: Anna Jonna Ármannsdóttir, Ásdís Þórhallsdóttir, Birna Hrönn Björnsdóttir, Elaine McCrorie, Erlingur Óttar Thoroddsen, Eva María Þórarinsdóttir, Fríða Agnarsdóttir, Matthías Matthíasson, Ragnar Ólason, Svavar G. Jónsson, Valgerður Þ.E. Guðjónsdóttir, Valgerður Ægisdóttir, Vallý Helgadóttir og Þórarinn Þór. Allt þetta fólk tekur síðan forystu í ýmsum „deildum“ hátíðarinnar og ábyrgist meðal annars sölumál, fánaborgir, öryggi hátíðargesta, fjáröflun og auglýsingar, stjórn gleðigöngu, móttöku erlendra listamanna, ritstjórn útgáfuefnis og rekstur þjónustumiðstöðvar svo fátt eitt sé nefnt. Þegar hátíðin nálgast kalla stjórn og samstarfsnefnd síðan á mikinn fjölda sjálfboðaliða sér til aðstoðar við að gera hátíðina sem glæsilegasta. H I N S E G I N F é L A G A S A M T Ö K Á Í S L A N D I Hinsegin dagar í Reykjavík – Gay Pride www.gaypride.is Hinsegin dagar í Reykjavík – Gay Pride eru sjálfboðaliðasamtök sem árlega skipuleggja Hinsegin daga í Reykjavík aðra helgi í ágúst. Hinsegin dagar eru sjálfstæð félagasamtök, en ýmis önnur félög og hreyfingar samkynhneigðra, tvíkynhneigðra og trans-fólks eru félagar í Hinsegin dögum ásamt einstaklingum sem standa saman að skipulagi hátíðarinnar. Allir sem styðja markmið hátíðarinnar í ágúst geta gerst félagar í Hinsegin dögum með því að greiða árgjaldið, 500 kr. Samtökin ´78 – félag hinsegin fólks á Íslandi www.samtokin78.is / skrifstofa@samtokin78.is Samtökin ´78 eru elstu og stærstu samtök hinsegin fólks á Íslandi. Þau voru stofnuð í maí 1978. Markmið félagsins eru tvíþætt: Að vinna að baráttu- og hagsmunamálum hinsegin fólks í því skyni að vinna þeim jafnrétti á við aðra á öllum sviðum þjóðlífsins, og að skapa félagslegan og menningarlegan vettvang til þess að styrkja sjálfsvitund þeirra, samkennd og samstöðu um sérkenni sín. Mikill hluti af starfi félagsins snýst um réttindabaráttu á opinberum vettvangi og þar hafa unnist miklir sigrar. Í miðstöð félagsins á Laugavegi 3 starfar fólk að fræðslu og félagsráðgjöf og veitir aðstoð og ráðgjöf um hinsegin málefni. Þar er einnig að finna vandað og glæsilegt almenningsbókasafn, eitt hið besta sinnar tegundar í Norður-Evrópu en það safnar eingöngu hin- segin efni, bókum, tímaritum og kvikmyndum. Trans-Ísland – félag transgender fólks á Íslandi http://groups.google.com/group/trans-is-frettabref / trans-is-frettabref@googlegroups.com Trans-fólk er hinsegin að því leyti, að það breytir kynhlutverki sínu meira eða minna, og skiptir jafnvel alveg um kynhlutverk, tímabundið eða varanlega. Trans-fólk getur verið gagnkynhneigt, samkynhneigt og allt þar á milli. Trans-Ísland var stofnað árið 2007. Félagið hefur að markmiði sínu að skapa transgender fólki og fjölskyldum þeirra menningarlegan vettvang og styrkja þannig sjálfsvitund þeirra, vinna að laga- og réttarbótum, auka fræðslu til fagfólks og eiga samstarf við sambærileg samtök, hópa og áhugafólk hérlendis og erlendis. Fyrsta miðvikudag hvers mánaðar, stendur Trans-Ísland fyrir fundum í húsnæði Samtakanna ’78 og eru nýir félagar velkomnir. Félagið er aðili að Transgender Europe, Network and Council. KMK – Konur með konum www.kmk.is / kmk@kmk.is Konur með konum, KMK, varð til sem grasrótarhreyfing lesbía fyrir rúmum áratug og hefur starfað síðan með nokkrum hléum. Tilgangur hreyfingarinnar er ekki síst að efla sýnileika lesbía, styrkja samstöðu þeirra, gefa þeim tækifæri til að skemmta sér á eigin forsendum og kynnast öðrum í hópnum. Stúlkurnar í KMK stunda íþróttir, einkum blak, af kappi og hafa keppt á ýmsum alþjóðlegum leikum. Þá halda þær sumarhátíðir og bregða sér sér í útilegur og veiðiferðir þegar vel viðrar. Á vefsíðu KMK er að finna líflega umræðu sem átt hefur drjúg- an þátt í að efla styrk hreyfingarinnar. MSC Ísland www.msc.is / msc@msc.is MSC Ísland var stofnað árið 1985. Klúbburinn hefur sínar klæðareglur, leður, gúmmí-, einkennis- og gallaföt, og ástæðan er einfaldlega sú að félagarnir vilja hafa karlmenn karlmannlega klædda og þá heldur ýkt í þá áttina en hina. MSC Ísland hefur ferðamennsku og fyrirgreiðslu við erlenda ferðamenn beinlínis á stefnuskrá sinni og félagið var ekki síst stofnað til þess að Íslendingar gætu orðið formlegur aðili að Evrópusamtökum slíkra klúbba, ECMC. Þau samtök hafa verið ein virkustu alþjóðasamtök samkynhneigðra um áratugi og lagt mikið af mörkum til baráttunnar fyrir stolti, sýnileika og samábyrgð. Q – Félag hinsegin stúdenta Félag hinsegin stúdenta, Q, var stofnað í janúar 1999 af einum 20 stúdentum við Háskóla Íslands. Hópurinn var fljótlega orðnir yfir 150 manns og hefur félagið haldið uppi blómlegu félagsstarfi síðan. Markmið félagsins er að vera sýnilegt afl innan háskólasamfélagsins á Íslandi og í forsvari þar þegar málefni samkynhneigðra ber á góma. Félagið tekur virkan þátt í samtökum ungs hinsegin fólks í Evrópu, IGLYO, og ANSO sem eru samtök hinsegin stúdenta á Norðurlöndum. thanks to the Queer community The queer comunity in Iceland has joined forces to celebrate Gay Pride 2009 with festivities in Reykjavík during the second weekend in August. We would like to thank five organizations and activity groups: the National Queer Organization of Iceland, Samtökin ’78; Queer University Student Union, Q; the women’s group Women with Women, KMK; the transgender association Trans-Iceland, and the leather club MSC Iceland. útgefandi: Hinsegin dagar í Reykjavík – Gay Pride Laugavegi 3 – 101 Reykjavík www.gaypride.is ábyrgðarmaður: Heimir Már Pétursson. Hönnun: Tómas Hjálmarsson. Merki Hinsegin daga: Kristinn Gunnar Atlason. Ritstjórnarvinna: Þorvaldur Kristinsson, Erlingur Óttar Thoroddsen, Heimir Már Pétursson, Páll Óskar Hjálmtýsson. ljósmyndir: Geir Ragnarsson, Magnús Andresen, Soffía Claessen og fleiri. auglýsingar: Heimir Már Pétursson, Jón Sævar Baldvinsson, Kristín Sævarsdóttir og Þorvaldur Kristinsson. prentun: Ísafoldarprentsmiðja hf. 46

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.