Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2002, Blaðsíða 4

Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2002, Blaðsíða 4
Arsþing InterPride haustið 2004 Borgarstjórinn í Reykjavík og heimsforseti interPride undirrita viljayflrlýsingu í Höföa Hinsegin dagar hafa sótt um það að haida ársþing InterPride samtakanna í Reykjavík í október 2004. Ef þetta verður að veruleika mun það styrkja mjög stöðu íslands á hinum sameiginlega vettvangi þeirra þjóða sem halda árlegar Gay Pride hátíðir lesbía og homma um allan heim. í byrjun maí heimsótti annar heims- forseti InterPride Glen Paul Freedman ísland, en Hinsegin dagar í Reykjavík hafa sótt um það að fá að halda ársþing InterPride að tveimur árum liðnum. Að tilefni heimsóknarinnar hélt borgarstjórinn í Reykjavík, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, forseta InterPride og aðstandendum Hinsegin daga boð í Höfða í byrjun maí. Þar undirritaði borgarstjóri stuðningsyfir- lýsingu borgaryfirvalda við umsókn Hinsegin daga í Reykjavík um að halda ársþing InterPride árið 2004 en stuðningur borgarinnar og borgarstjóra við þessa umsókn er mjög mikilvægur. Einnig hitti Glen Paul Freedman fulltrúa Flugleiða og fulltrúa Höfuðborgarstofu. Ákvörðun um það hvaða borg fær að halda þingið verður síðan tekin á ársþingi InterPride samtakanna í San Francisco í október. Ef það rætist að Reykjavík verði vettvangur þessarar mikilvægu ráðstefnu mun það styrkja mjög tengsl okkar við sams konar hátíðahöld á alþjóðavettvangi. Tvær aðrar borgir sækja um að halda ársþingið 2004, St. Louis ( Banda- ríkjunum og Berlín í Þýskalandi. 4 InterPride eru heimssamtök borga sem halda Gay Pride hátíðir. Ár hvert sækja

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.